Lögberg - 13.06.1957, Page 1
SAVE MONEYI
use
LALLEMAND
quick rising
DRY YEAST
In Vi Lb. Tlns
Makes the Finest Bread
Avallablc at Tonr Favorlte
Grocer
SAVE MONEYI
use
LALLEMAND
quick rising
DRY YEAST
In y< Lb. Ttns
Makes the Flnest Bread
Avallable at Tonr Favorlte
Grocer
70. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 13. JÚNÍ 1957
NÚMER 24
Sextugsamæli
Dr. Stefán Einarsson
Á sunnudaginn var varð Dr.
Stefán Einarsson, prófessor
við Johns Hopkins háskólann,
Baltimore, Maryland, sextug-
ur að aldri, og var þá kominn
í sumarfrí til Islands ásamt
frú sinni. Dr. Stefán er góður
rithöfundur og ágætur fræði-
maður, sem holt er að kynn-
ast.
Lögberg flytur afmælis-
barninu hugheilar árnaðar-
óskir og þakkar góða sam-
vinnu.
Liberalar bíða
eftirminnilegan
ósigur
Við kosningar þær til sam-
bandsþings, er fram fóru í
þessu landi síðastliðinn mánu-
dag, biðu Liberalar svo eftir-
minnilegan ósigur, að óhugs-
anlegt sýnist að þeir verði
áfram við völd; að afstöðhum
kosningunum 1953 réð Liberal
flokkurinn yfir 170 þingsæt-
um, auk þriggja óháðra
Liberalþingmanna, er grípa
mátti til ef þörf gerðist; á
mánudaginn fékk St. Laurent
stjórnin aðeins kosna 103
þingmenn, en tala þingmanna
verður 265. Þrír óháðir Libe-
ralar náðu kosningu; allir
flokksforingjarnir voru endur-
kosnir; níu ráðherrar féllu í
val, þar á meðal C. D. Howe
í Port Arthur, er C.C.F.-fram-
þjóðandi lagði að velli, Mr.
Stuart S. Garson, Marquette,
Manitoba, og hermálaráðherr-
ann, Mr. Chapney í Vancouver
Centre, er kínverskur lög-
fræðingur kom fyrir kattar-
nef.
íhaldsflokkurinn, undir for-
ustu Mr. Diefenbakers, telur
110 þingsæti, og verður hon-
Kirkjugluggi helgaður Vestur-íslendingum
Hin fornfræga kirkja að Bessastöðum á Islandi hefir verið endurbætt og skreytt
á ýmissan hátt á síðari árum eftir að Bessastaðir urðu að forseta-setri. Hefir
forseti, Ásgeir Ásgeirsson, sýnt mikinn áhuga fyrir því starfi, einkanlega með því
að gangast fyrir, að kirkjan yrði skreytt steindum gluggum (gluggamálverkum).
Átta steindir gluggar voru gerðir í verksmiðju William Morris í London
eftir teikningum íslenzkra listamanna og eru nú í kirkjunni. Þeir voru vígðir s.l.
sunnudag — hvítasunnudag. Gluggamyndirnar eru þessar: Jesú flytur fjallræðuna;
María mey með Jesúbaimið; Irskir munkar koma til íslands; Þorgeir Ljósvetninga-
goði við kristnitöku; Jón Arason; Guðbrandur Þorláksson; Hallgrímur Péturs-
son; Jón Vídalín. — Myndin, sem hér er sýnd, er af Jóni biskupi Arasyni, skáldinu,
fræðimanninum og hetjunni, er barðist gegn yfirráðum Danakonungs. Guðmundur
myndhöggvari Einarsson frá Miðdal teiknaði myndina, og er hún helguð
Vestur-fslendingum.
um sennilega falið á hendur
að taka við stjórnartaumum,
þó mjög skorti hann á að njóta
meirihluta þingfylgis.
í Winnipeg voru kosnir
tveir íhaldsmenn, Gordon
Chown í Suður-Winnipeg, og
Gordon Churchill í Mið-
Winnipeg kjördæminu syðra,
en í Winnipeg kjördæminu
hinu nyrðra var Stanley
Knowles, C.C.F., endurkosinn
með miklu afli atkvæða, og
hið sama var að segja um
Alistair Stewart, C. C. F., í
N or ður-W innipeg.
Tveir íslendingar, er í kjöri
voru á mánudaginn, náðu
báðir endurkosningu, þeir
W. M. Benedickson, Liberal-
Framhald á bls. 8
Sextugur
Dr. Richard Beck
Síðastliðinn sunnudag átti
Dr. Richard Beck prófessor í
norrænum fræðum við ríkis-
háskólann í North Dakota
sextugsafmæli, og var hann
oá hyltur af fjölmennum að-
dáendahópi bæði á íslandi og
víðsvegar um þessa álfu; í til-
efni afmælisins gáfu vinir
hans á íslandi út eftir hann
mikla og vandaða bók, sem
inniheldur úrval af ræðum
hans og ritgerðum.
Lögberg hefir um langt
skeið átt góðan hauk í horni
þar, sem Dr. Beck er, og flytur
blaðið og ritstjórn þess honum
og fjölskyldu hans innilegar
kveðjur á þessum merku tíma-
mótum.
Aðalræðumaður
við uppsögn ríkisháskólans
í N. Dakoia
Valdimar Björnson, fjár-
málaráðherra í Minnesota, var
aðalræðumaður við uppsögn
ríkisháskólans í N.-Dakota í
Grand Forks, er fram fór með
mikilli viðhöfn og að við-
stöddum miklum mannfjölda
síðdegis sunnudaginn þ. 9.
júní. Var ágætur rómur gerð-
ur að ræðu hans, enda var
hún tímabær að efni, vel
samin og skörulega flutt.
Meðal sérstakra gesta við
hátíðahaldið var dr. Albert F.
Árnason, fræðslumálastjóri
æðri skóla í N. Dakota; í hópi
annarra íslendinga, sem við-
staddir voru við skólaupp-
sögnina, var Guðmundur
Grímson dómstjóri Hæsta-
réttarins í N. Dakota.
Að þessu sinni voru 420
stúdentar brautskráðir af rík-
isháskólanum. Meðal þeirra
voru eigi allfáir nemendur af
íslenzkufn ættum, og verður
þeirra nánar getið síðar í
vestur-íslenzku vikublöðun-
um. R. Beck