Lögberg


Lögberg - 19.09.1957, Qupperneq 3

Lögberg - 19.09.1957, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 19. SEPTEMBER 1957 3 skipaleiðsögn höfðum með höndum, sáum ekki út úr því, sem við höfðum að gera. Það fór að bera á skorti á leið- sögumönnum. Margir þeirra höfðu sumarleyfi og skipin söfnuðust saman við skurðar- mynnin, þar sem enginn af þeim, sem höfðu sumarleyfi, komu aftur. Við urðum færri með degi hverjum. Hinir nýju yfirboðarar gáfu þeim mönn- um sumarleyfi, er höfðu rétt til að fá það, þar til 15- ágúst, þá var fyrst neitað um leyfi, en þá var aðeins 26 hafnsögu- mönnum á að skipa, í stað 40 undir venjulegum kringum- stæðum. Það várð óumflýjanlegt að minnka siglingarnar gegnum skurðinn þannig, að ein skipa- lest var send daglega. Dag- lega bar það við, að það biðu fleiri skip eftir því að fá hafn- sögumann en mögulegt var að sinna, svo að skipin urðu að bíða til næsta dags. Brátt tókst nýju stjórninni að útvega aðra hafnsögumenn í stað þeirra, sem farnir voru. Nokkrir þeirra voru frá Alex- andría, svo voru og nokkrir frá herskipa- og verzlunar- flotanum. Þeir fengu aðeins tveggja vikna undirbúnings- kennslu, svo óhætt má full- yrða, að þeir hafa tæplega verið vaxnir starfi því, er þeir tókust á hendur. Til að byrja með virðist siglingin hafa gengið framar öllum vonum. Engin veruleg óhöpp hafa komið fyrir, en siglingartíminn gegnum skurð inn hefur orðið lengri en áður. Veðrið hefur verið gott og að- eins siglt á björtum degi, en ekki á nóttunni. Örðugleik- arnir byrja fyrst fyrir alvöru hjá þessum lítt æfðu leiðsögu- mönnum, þegar haustar að, og þokan og sandstormarnir byrja fyrir alvöru, því þá geta þaulæfðir skurðarleiðsögu.- menn komizt í hann krapp- ann, því komi óhapp fyrir hjá einu skipi í lestinni, er voði fyrir dyrum hjá fleirum. Leiðin frá Suez til stöðu- vatnsins mikla er háð skipt- andi sjávarföllum — fljóði og fjöru. — Með nýju og fullu tungli getur straumurinn far- ið með þriggja mílna hraða, ýmist með eða hóti. Straum- skipti eru reglubundin, en með sandstormum af suðaustri og suðvestri þjappast sjórinn úr Rauðahafinu saman upp í Suezflóann og inn í skurð- inn. Sífelldur norðanstraumur helst þá við, þar til veðrið lægir. Allir útlendir verkamenn, er unnu við skurðinn, sögðu upp starfi sínu strax og egypzka stjórnin hafði lýst yfir þjóðnýtingu hans, enginn óskaði að halda áfram starfi sínu. Aðeins fáeinir Grikkir urðu áfram eftir skipan grísku stjórnarinnar. Þann 12. sept- ember fengum við skipun frá stjórn skurðarins í París, að við ættum að hætta vinnu að kvöldi þess 14. september, sem við líka gerðum. Við höfðum nokkru áður undirbúið allt til að ljúka starfi okkar og vera reiðubúnir til burtfarar fyrirvaralaust. Ferðaskrínur okkar voru pakkaðar og inn- anstokksmunir allir í umbúð- um komið fyrir á tryggum stað í vörzlum ræðismanns okkar- En þó ber ekki að neita pví, að okkur fannst sárt að skilja við hús og heimili, sem Elinborg Jakobsen útskrif- aðist frá Lærðaskólanum í Reykjavík árið 1897, eða fyrir 60 árum, eins og Morgunblað- ið. skýrði frá um síðustu mánaðamót. Þar var því bætt við að hún muni hafa orðið að taka prófið utan skóla — eða ekki fengið skólavist — en það er ekki rétt. Hún var bekkjarsystir mín í 6. bekk skólans veturinn 1896—’97, og auk þess las ég með henni skólafögin þann vetur — og hlaut að launum lúsnæði og morgunkaffi. Því finnst mér skylt að leiðrétta þetta og bæta við um leið nokkrum upplýsingum, sem fallnar munu í gleymskunnar sjó hjá mörgu gömlu fólki hvað þá hinum. Væntanlega geta þær og verið áhugunar- efni ungu kvenstúdentunum. Foreldrar Elinborgar voru frá Færeyjum en höfðu dvalið hálfa ævina eða lengur í Reykjavík, því að Elinborg var fædd í Reykjavík 10. októ- ber 1871. Faðir hennar stund- aði skósmíði og bjó lengi í húsi Kristjáns Ó. Þorgríms- sonar við Austurvöll. Halldór Friðriksson yfirkennari bjó í næsta húsi og konur þeirra Halldórs og Jakobsens voru vinkonur. Mun það hafa kom- ið sér vel þegar Elinborg sótti um skólavist. Það var dálítið erfiðara þá en nú fyrir ungar stúlkur að ganga menntaveginn. Elin- borg tók 4. bekkjar próf utan skóla vorið 1894 með III. eink- unn- Latneski stíllinn og stærðfræðin aðalþröskuldarn- ir, enda tímakennslan áður í mestu molum, — og það sem lakara var: greinileg andúð margra kennara og skólapilta á því, að konur færu „að troða sér í lærðra manna tölu“. Móðir Elinborgar og fleiri hvöttu hana til að halda á- íram námi og sækja um skóla- vist. En það var ekki auðsótt, þegar rektor Lærðaskólans og sumir kennaranna voru því andstæðir — þeir höfðu sízt búizt við „að Halldór Frið- riksson færi að mæla með jafn vafasamri nýbreytni“. Lands- höfðingi mun hins vegar hafa stutt „nýbreytnina“, — og var þá þessu „stórmáli“ skotið til ráðgjafa íslands í Khöfn. í desember 1896 kom „ráð- gjafabréf“ dagsett 10. nóvem- ber sama ár, er ákvað að Elin- borgu skyldi leyfð skólavist þegar í stað. Halldór yfir- kennari mun hafa búizt við við höfðum unað við í mörg ár, og þegar á allt er litið, liðið mjög vel. Þann 14. september um miðnætti fór ég með fjöl- skyldu mína, ásamt tveimur hafnsögumönnum — öðrum hollenzkum og hinum norsk- um — til Kairo og þaðan með flugvél til Róm og síðan til Kaupmannahafnar. Lausleg þýðing. —M. Þ. —VÍKINGUR því svari, því að hann bað mig, í byrjun skólaársins, að lesa með henni „undir skóla- tíma.“ Skálapiltar tóku henni með „þegjandi vinsemd“ eða fullu afskiptaleysi, og svipað var um kennarana — nema rektor Björn Ólsen, sem lét þess get- ið á skólafundi fyrsta daginn sem hún kom í skólann, að hann vonaði „að engin slysni hlytist af þessari óvenjulegu nýjung í sögu okkar gamla skóla“. Má nærri geta hvað óþægi- legt hefur verið fyrir Elin- borgu að hlusta á það í á- heyrn 100 ungra pilta, sjálf var hún dul í skapi og orðvör mjög, lét aldrei uppi í minni áheyrn hvað henni líkaði vel eða illa, — en hún var orðin kjarklítil og þreytt við margra ára nám og kyrrsetur, og einu sinni ætlaði að líða yfir hana er hún frétti um slæman skóla hrekk, sjálfri henni óviðkom- andi, sem piltum þótti „engin ósköp.“ Ólafía Jóhannsdóttir vin- kona hennar heimsótti hana við og við þennan skólavetur. Ólafía hafði sjálf hætt skóla- námi eftir 4. bekkjar próf, — fékk ekki skólavist — en það var auðheyrt að henni þótti vænt um að Elinborg ætlaði ekki að fara, eins að. — Ekki datt mér þá í hug að við Ólafía yrðum góðir vinir seinna, til æviloka, því mér þótti hún nokkuð fús til að lenda í stæl- um, þótt annars væri skemti- legt að skrafa við hana. Skólanám Elinborgar gekk sæmilega. Tveir eða þrír pilt- ar urðu fyrir neðan hana við miðsvetrarprófið, og II. eink- unn fékk hún við stúdents- prófið. Ekki setti hún upp stúdentshúfu, það mun ekki hafa þótt „nógu kvenlegt“ á þeim árum. Hún fluttist til Hafnar með foreldrum sínum skömmu síðar, og ætlaði að lesa læknisfræði við háskól- ann þar. Ég held hún hafi ekki lokið því námi, en annars er mér ókunnugt um hagi henn- ar. Vér bekkjarbræður hennar og Bræðrasjóður Lærðaskól- ans fengum kveðju frá henni á 10 ára stúdentsafmæli voru 1907, — en aldrei seinna. Vér vorum 20 stúdentarnir vorið 1897, efnilegur hópur í augum vina vorra og sjálfra vor. Flestum hafði verið nám- ið ljúft og létt, og háar eink- unnir fleiri og venjulegri en hjá nágrönnum vorum á und- Fyrsti kvenstúdentinn ó íslandi Business and Professional Cards ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA í VESTURHEIMI Forsetl: DR. RICHARD BECK 801 Lincoln Drive, Grand Forks, North Dakota. Styrkið félagið með því að gerast meðlimir. Ársgjald $2.00 — Tímarlt félagsins frítt. Sendist til fjármálaritara: Jlll. GCÐMANN LEVY, 185 Lindsay Street, Winnipeg 9, Manitoba. Minnist BETEL í erfðaskróm yðar SELKIRK METAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hitaeinlngar- rör, ný uppfynding. Sparar eidi- við, heldur hita frá aS rjúka flt meS reyknum.—SkrifiB, slmlð tll KELLY SVEINSSON 625 WaU St. Winnipeg Just North of Portage Ave. SUnset 3-3744 — SUnset 8-4481 G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dlr. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH 60 Louise St. WHitehall 2-5227 S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STArmS NOTARY & CORPÖRATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smilh St. Winnipeg WHitehall 2-4624 Van's Electric Ltd. 636 Sargenl Ave. Authorized Home Appliance Dealers GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL McCLARY ELECTRIC — MOFFAT SUnset 3-4890 A. S. BARDAL LTD. funeral home 843 Sherbrook Street Selur llkkistur og annast um öt- farir. AUur útbúnaCur sá bezti. Stofnað 1894 SPruce 4-7474 PARKER. TALLIN, KRIST- JANSSON, PARKER AND MARTIN BARRISTERS — SOLICITORS Ben C. Parker, Q.C. (1910-1951) B Stuart Parker, Clive K. Tallin, Q c„ A. F. Kristjansson, Hugh B. Parker, W. Steward Martin 5th fl. Canadian Bank of Commerce Building, 389 Main Street Winnipeg 2, Man. WHitehall 2-3561 P. T. Guttormsson BARRISTER, SOLICITOR, ‘ notary public 474 Groin Exchange Bldg. 167 Lombard Street Office WHitehaU 2-4829 Residence 43-3864 — Thorvaldson. Eggertson. Basiin & Siringer Banristers and Solicitors 209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg. Portage and Garry St. WHitehall 2-8291 SPruce 4-7855 ESTÍMATES J. M. Ingimundson Re-Roofing — Asphalt Shlngles Insul-Brlc Siding Vents Installed to Help Eliminate Condensation 632 Slmcoe St. Winnipeg, Man. CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. J. H. PAGE. Managing Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS STREET Office: Bes.: SPruce 4-7451 SPrnce 2-3917 Muir's Drug Store Ltd. J. CLUBB FAMILY DRUGGIST SERVING THE WEST END FOK 27 YEARS SPruce 4-4422 ElUce & Home S. A. Thorarinson Barrister and Sollcitor 2nd Floor Crown Trust Bldg. 364 MAIN ST. Office WHitehall 2-7051 Res.: 40-6488 FRÁ VINI THE MODEL FUR CO. D. MINUK, PROP. Fur Coats Made To Order. Repairing, Remodelling, Relining & Storing, and Sports Wear. Tel. WHitehaU 2-6619 Res. JUstice 6-1961 304 Kennedy St. Winnipeg, Man. Dunwoody Saul Smitb & Company Chartered Accountants WHiiehall 2-2468 100 Princess St. Winnlpeg, Maa. And offices at: FORT WILLIAM - KENORA FORT FRANCES - ATIKOKAN The Business Clinic Anna Larusson Office at 207 Atlantic Ave. Phone JU 2-3548 Bookkeeping — Inoome Tax Insurance an og eftir, og framhaldsnám því tilhlökkunarefni- Áætlan- ir um ævistörf voru á reiki, en enginn ætlaði sér að deyja úr leti eða iðjuleysi, og þótt mér sé málið skylt býst ég við að sögufróðir menn fallist á að við það hafi verið staðið. Nú eru einir þrír eftir: Jó- hannes Jóhannesson læknir vestur við Kyrrahafsströnd, dr. Ólafur Dan Daníelsson og undirritaður. S. Á. Gíslason —Lesbók Mbl Dr. ROBERT BLACK Sérfræðingur 1 augna, eyrna, nef og hálssjúkdömum. 401 MEDICAL AltTS BI.DG. Graham and Kennedy St. Office WHitehall 2-3851 Res:: 40-3794

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.