Lögberg - 19.09.1957, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 19. SEPTEMBER 1957
Úr borg og bygð
— DÁNARFREGNIR —
Jón Valdimarsson, bóndi
frá Langruth, lézt á Almenna
spítalanum í Winnipeg, 13.
sept. s.l. Hann var fæddur 25.
sept. 1888 að Engidal í Suður-
Þingeyjarsýslu, sonur Davíðs
Valdimarssonar og Guðbjarg-
ar Jónsdóttur, konu hans, og
kom hann vestur með þeim
rúmlega ársgamall. Jón bjó
allan sinn búskap í grend við
Langruth, og tók hann mikinn
og giftudrjúgan þátt í félags-
málum byggðarmanna. Hann
var ókvæntur, en lætur eftir
sig eina systur Kristlaugu
Finnbogason, og bróður Valdi-
mar Valdimarsson, bæði bú-
sett í Langruth. Jarðarförin
fór fram frá lútersku kirkj-
unni í Langruth á mánudag-
inn 16. sept. að viðstöddu nær
öllu byggðarfólki, af ýmsum
þjóðum, enda var maðurinn
vinsæll mjög. Séra V. J. Ey-
lands flutti kveðjumál.
★
Sigurður (Sam) Magnússon,
Spy Hill, Sask. lézt 8. sept. s.l.,
74 ára að aldri. Hann var
fæddur í Pembina, N.D., en
fluttist til Hólabyggðar í
Sask. um aldamótin og rak
þar búskap. Hann lifa kona
hans, Pauline og þrír synir,
Joe, Paul og Bjössi.
★
Helgi Borgfjörð Thorvald-
son, 59 ára, að Oak Point,
Man. dó 8. sept- s.l. á heimili
sínu. Hann var fæddur í Win-
nipeg, en hafði í 32 ár stundað
búskap í Oak Point-bygð.
Hann tók mikinn þátt í mál-
um bygðar sinnar, var með-
limur Oak Point Community
Club og um mörg ár forseti
þess félags. Hann tilheyrði og
Canadian Legion númer 66125
og var fyrrum forseti þar.
Hann var og friðdómari síðari
árin. Hann var í fyrra stríðinu
í 108. herdeildinni í Evrópu.
Hann lifa kona hans, Margrét
Kristine, 3 synir, Gunnar og
Gordon, í Winnipeg, August
að Oak Point og fimm dætur,
Mrs. W. G. Tomm, Mrs. W. F.
Mitchell og Rose, allar í Win-
nipeg, og Gloria og Gladys að
Oak Point. Móðir hans, Sól-
veig Thórðarson lifir hann
einnig og býr að Lundar.
Ennfremur tveir bræður,
Barney í Selkirk og Rútur í
California, og fimm systur,
Mrs. E. Storseth í Winnipeg,
Mrs. J. Brown, Mrs- J. Wester-
ly, Mrs. E. Lansdown og Mrs.
H. Jennekins, allar í Toronto.
Útförin fór fram frá Com-
munity Hall, Oak Point á
fimtudaginn 12. sept. — Séra
P. M. Pétursson flutti kveðju-
málin. Jarðsett var í Brook-
side grafreit. ^
^ ★
Thorkell Stefán Thorkels-
son, 53 ára, fyrrum að Gimli,
en nú að 278 Davidson St.,
St. J'ames, dó 8. sept. s.l. á
General Hospital í Winnipeg.
Hann var fiskikaupmaður. —
Hann lifa kona hans, Grace,
sonur, William, tvær dætur,
Mrs- Dorothy Du-Gray og
Sylvia. Ennfremur móðir hans
Mrs. Guðný Thorkelsson, og
4 bræður, Ágúst, Halldór,
Björn og Júlíus, einnig 5 syst-
ur, Mrs. S. Campbell, Mrs.
Earl Harris, og Mrs. J. Jo-
hannsson. — Útförin var gerð
frá lútersku kirkjunni á Gimli
11. september.
☆
— HJÓNAVÍGSLUR —
Þann 7. september voru
gefin saman í hjónaband í
lútersku kirkjunni á Gimli
Donna Mae, einkadóttir Mr.
og Mrs. E. S. Einarson, og
Wilfred Leonard, yngsti sonur
Mr. og Mrs. G. W. Árnason.
Brúðurin er útlærð hjúkrun-
arkona, en brúðguminn út-
skrifaður í búfræði frá Mani-
tobaháskóla. — Heimili ungu
hjónanna verður í Winnipeg.
Elsie, Ann, dóttir Mr. og
Mrs. B. Bjarnason, Gilbert
Plains, Man., og William Nor-
man Cole voru gefin saman í
hjónaband 7. þ. m. í St. Philips
Anglican kirkjunni. Heimili
þeirra verður í Winnipeg.
Gefin voru saman í hjóna-
band í Knox kirkjunni í Bran-
don 7. september s.l. Joyce
Marie, einkadóttir Mr. og Mrs.
Barney Thordarson, og Robert
James Glendenning frá Win-
nipeg.
☆
Forseti Kirkjufélagsins, séra
Eric H. Sigmar, hefir dvalið
vestur á Kyrrahafsströnd
undanfarið í embættiserind-
um og heimsótt þar fjóra söfn-
uði, sem í Kirkjufélaginu
standa, í Seattle, Blaine, Point
Roberts og í Vancouver. Á
sunnudaginn setti séra Eric
inn í embætti sem prest Blaine
safnaðar séra Albert Neu-
bauer og að kvöldi þess sama
dags prédikaði séra Eric á
Point Robert og kynti séra
Neubauer söfnuðinum; hinn
13. þ. m. vitjaði séra Eric
Hallgrímssafnaðar í Seattle
og heimsótti Vancouverstöfn-
uð hinn 16. þ.m.
☆
374 Whytewold Rd.,
St. James, Man.
September 9th, 1957
Donaíions io Sunrise
Luíheran Camp:
Children’s Trust Fund:
Mrs. C- Paulson,
Gerald, Sask........$10.00
Mrs. Anna Austman,
Víðir, Man........... 5.00
Ladies Aid Freyja...... 50.00
Jr. Ladies Aid,
Arborg, Man......... 12.00
General Fund:
Gimli Lutheran
Ladies Aid ......... 25.00
Received with thanks.
Thanking you,
Anna Magnússon,
Treasurer.
☆
Mrs. Júlíus Gíslason frá
Ashern var stödd í borginni í
fyrri viku. '
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sunnudaginn 22. sepi.
Æskulýðsmessa kl- 11. —
Dennis Eyjólfsson flytur er-
indi úr prédikunarstól. Með-
limir ungmennafélags safn-
aðarins annast aðra þætti
guðsþjónustunnar.
Innsetning Sunnudagaskóla
kennara fer einnig fram.
Kl. 7 e. h.
Sameiginleg guðsþjónusta
fyrir alla meðlimi og vini
safnaðarins, fer fram á ensku.
Veitingar í neðri sal kirkj-
unnar að lokinni messugjörð.
☆
— MESSUBOÐ —
Sunnud. 6. október fer fram
messa og altarisganga í Guð-
brandssöfnuði við Morden,
Man., kl. 2 e. h. Standard
Time. Mælt verður á ensku og
íslenzku.
S. Ólafsson
The Annual Fall Tea of
Jón Sigurdson Chapter, IODE
will be held in the T- Eaton
Co. Assembly Hall, Saturday
September 21st from 2 to 4.30
■p.m. — Receiving with the
Regent, Mrs. E. Isfeld, will be
Mrs. H. J. Mather Provincial
President, and Mrs. Eric
Willis Municipal Regent.
Convener: Mrs. B. S. Ben-
son.
Table Captains: Mrs. P.
Goodman, Mrs. S- Jónasson,
Mrs. D. Medd, Mrs. F. Wilson,
Mrs. H. A. Bergman, Mrs. H.
Skaptason.
Handicarft: Mrs. H. F.
Danielson, Mrs. E. J. Helgason.
Home Cooking: Mrs- J. F.
Kristjánsson, Mrs. S. Gillis,
Mrs. T. Hannesson.
Novelty: Mrs. E. W. Perry,
Mrs. G. Gottfred.
Come and chat with your
friends and support the
Chapter in its worth while
work.
☆
Deildin FRÓN hefir ákveðið
að halda sinn fyrsta skemmti-
fund á nýbyrjuðu starfsári,
mánudagskveldið 7. okt. nk.
í neðri sal Lútersku kirkjunn-
ar á Victor St. Frekar auglýst
síðar. —J. J.
☆
Tilvalin afmælisgjöf
Gleðjið vini ykkar, þá er
ekki fá Lögberg, með því að
senda þeim blaðið í afmælis-
gjöf eða jólagjöf, þegar þar að
kemur.
Ný Ijóðobók eftir
Með ljóðabók sinni Svörl
verða sólskin (Akureyri, 1951),
sem hlaut óvenjulega lofsam-
lega dóma, tók Guðmundur
Fríman skáld á Akureyri sæti
framarlega í hópi íslenzkra
samtíðárskálda. Með ágætum
kvæðum, er síðan hafa komið
út eftir hann í ýmsum íslezk-
um tímaritum, hefir hann
orðið fastari í þeim sessi.
Það er því gott til þess að
vita, að nú í haust (sept.-okt.)
kemur út eftir hann ný ljóða-
bók. Verður hún 7 arkir á
stærð í stóru broti og til út-
gáfunnar vandað eftir föng-
um. Áskriftarverð bókarinnar
er kr. 55.00 heft, en kr- 70.00
í skrautbandi. Þeir, sem kynnu
þingi í fögrum kvæðum og
að vilja gerast áskrifendur að
bókinni, geta snúið sér beint
Séra Jóhann Frederickson,
fyrrum prestur í Glenboro,
Manitoba, var settur inn í
embætti í svensku lútersku
kirkjunni þ. 8. sept. s.l. Dr.
Otto Olson, Jr., prófessor við
Luther College and Seminar í
Saskatoon, og séra F. Lewis
frá Calgary framkvæmdu at-
höfnina. — Séra Jóhann þjón-
ar Faith söfnuði í Rollings-
Hills og Solem söfnuði í
Scandia, Alta. — Séra Jóhann
og kona hans fluttu til Alberta
seinnihlutann í ágúst. Heimili
þeirra er í Scandia.
Guðmund Frímann
til höfundar (Hamarsstíg 14,
Akureyri) eða til undirritaðs.
Kvæði Guðmundar eru
löngum auðug að ljóðrænni
fegurð og að sama skapi list-
ræn um efnismeðferð. Oft
bergður hann einnig upp
glöggum og samúðarríkum at-
burða- og mannlýsingum.
Guðmundur er Húnvetning-
ur, fæddur að Hvammi í
Langadal, og stendur djúpum
rótum í mold átthaga sinna,
enda hefir hann lofsungið
æskudalinn sinn fagra í Húna-
eftirminnilegum, og mættu
sveitungar hans muna honum
það. En ljóðavini almennt vil
ég hvetja til að eignast þessa
nýju bók hans.
Skal þess jafnframt getið,
að hann er snjall ljóðaþýð-
andi, og kemur einnig í haust
út eftir hann stórt safn ljóða-
þýðinga á vegum Isafoldar-
prentsmiðju í Reykjavík.
RICHARD BECK
— Eruð þið Maggý orðin
sátt aftur?
— Já, hún fitnaði svo mikið
eftir að við opinberuðum, að
hringurinn náðist ekki fram
af fingrinum á henni, það var
ekki um annað að gera en
sættast.
KAUPIÐ og LESIÐ\
— LÖGBERG!
Veiðifíminn er kominn
ATHUGIÐ HVENÆR OG HVAÐ
MARGA FUGLA MÁ SKJÓTA
——T í M I N N —
WATERFOWL ÓTAKMARKAÐ (alla dagana)
(„Hádegi“ á byrjunardögunum þýðir Central
Standard Time). (Reglugerð Canada-stjórnar)
ENDUR, GÆSIR, COOTS, RAILS OG
WILSON'S SNIPE
Norðan \ið 55. breiddargráðn (Innifelur Churchill og Hudson Bay umdæmiö) Hádegi 2. september (mánudag) til 2. nóv- ember (laugardag). — (Snipe til 30. septem- ber) (Mánudag).
Milli 53. og 55 breiclclarf^ráðu (Innifelur The Pas Marshes) Hádegi 12. september (fimmtudag) til 23. nóv- ember (laugardag). (Snipe til 12. október) (laugardag).
Sunnan við 53. breiddargráðu (A8 fráskilinni Delta Waterfowl Control Area) Hádegi 20. september (föstudag) til 30. nóv- ember (laugardag). (Snipe til 19. október) (laugardag).
Delta Waterfowl Control Area Hádegi 27. september (föstudag) til 30. nóv- ember (laugardag). (Snipe til 19. október) (laugardag).
ENDUR EINGÖNGU
Snnnan vlð 53. breiddargráðu — Á ræktuðu1 landi eingöngu (ekki innan við Í00 yards viS nokkurt vatn) Notkun báta á vötnum og Hádegi 6. september (föstudag) til hádegis 20. september (föstu- dag). mýrum Whitewater og Dog-
vatnanna, og notkun vélbáta á vötnum og mýrum White-
mouth Lake til aö veiða vatnafugla er bönnuð.
— FUGLAFJÖL D I —
ENDUR
Daglega ......10
í vörzlum ....30
Engin tímatak-
mörkun
(Allt fylkið)
COOTS & KAITiS
Daglega ........15
1 vöralum ......30
Engin tímatak-
mörkun
GÆSIR
Daglega ......5
'1 vörslum ...10
Engin tímatak
mörkun
WIIaSON’S snipe
Daglega .....8
I vörzlum ...16
Engin tímatak-
mörkun
GAME
Manitobo Department of
Hon. F. C. Bell, Minister
Ekki má skjóta fleiri en
eina WOOD DUCK daglega.
BRANCH
Mines and Natural Resources
J. G. Cowon, Deputy Minister