Lögberg - 05.12.1957, Blaðsíða 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 5. DESEMBER 1957
Lögberg
GefiB út hvern fimtudag aí
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
303 KENNEDY STREET, WINNIPEG 2, MANITOBA
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG, 303 Kennedy Street, Winnipeg 2, Manitoba
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Skrifstofustjöri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram
"Lögberg” ls published by Columbia Press Limited,
303 Kennedy Street, Winnipeg 2. Manitoba, Canada
Printed by Cblumbia Printers
Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
WHitehall 3-9931 ______
RICHARD BECK
í ótthagana andinn leitar
Akureyri, 9. júní 1957. — Preniverk Odds Björnssonar H.F.
íslendingum hvar, sem þeir eru í sveit settir, mun
kunnugt um það, að dr. Richard Beck, þessi óþreytandi trú-
boði íslenzkrar menningarerfða bæði á íslandi og engu síður
á erlendum vettvangi átti sextugsafmæli hinn 9. júní síðast-
liðinn, og var þess að verðleikum víða minst, þó ábærilegasta
virðingartáknið væri mikil og glæsileg bók, er dáendur
afmælisbarnsins létu safna til og hlutuðust til um að kæmi
út í minningu atburðarins. Þetta er heldur engin smáræðis-
bók því hún telur hvorki meira né minna en 178 blaðsíður í
stóru broti. Framan við meginmál bókarinnar standa á sjö-
unda hundrað nöfn manna, kvenna, vísindafélaga, háskóla og
annara stofnana, er fundu hjá sér sterka hvöt til að þakka
dr. Beck hina margháttuðu menningarstarfsemi hans í þágu
norrænna fræða.
Vandað æviágrip dr. Becks ritar séra Benjamín Kristjáns-
son prestur til Grundarþinga, er mjög eykur á gildi bókar-
innar og skýrir litbrigðaríkan starfsferil þessa merka fræði-
manns; er ágripið eins og séra Benjamíns var von og vísa
öfgalaust, en auðkent af þeirri hreinskilni og sannleiksást,
er ritverk hans mótast af; frá hendi slíks manns má jafnan
vænta sannmats á mönnum og málefnum-
Séra Benjamín lýkur ummælum sínum með svofelldum
orðum:
„Margar eru þær hlýju kveðjur, sem Islandi og íslend-
ingum hafa borizt með vestanblænum frá þessum trölltrygga
vini lands og þjóðar. En á sama hátt munu fjöldamargir
hollvinahugir hverfa vestur um hafið til að fagna með dr.
Beck sextugum, árna honum heilla og minnast afreka þessa
austfirzka sægarps, sem svo örugglega hefir numið sér land
á túnum Braga og Sökkvabekk Sögu.“ —
Þungamiðja þessarar voldugu bókar, er vitaskuld dr.
Beck sjálfur ; lesmálið er að lagmestu leyti hold af hans holdi
og blóð af hans blóði; er hér um að ræða innviðamikið safn
af ritgerðum og fyrirlestrum við ýmis tækifæri, er endur-
spegla á fagurlegan hátt ástarjátning höfundar til íslands og
þjóðarinnar, sem landið byggir; það dylst engum, er með
athygli les umrætt meginmál, að á bak við hverja línu felst
heilsteyptur maður, sem ritar af innri þörf, maður, sem veit
hvað hann vill og lætur sér hugarhaldið um, að sem flestir
íesendur sínir fái notið hins dýrl/íga útsýnis af sömu
sjónarhæð.
Lesmál bókarinnar ber fagurt vitni glöggskygni höfundar
á hörpuhljóma hins íslenzka strengleiks; þessu til sönnunar
nægir að vitnað sé í hinar meitluðu ritgerðir um góðskáldin
Jón Magnússon og Tómas Guðmundsson, og hefir höfundur
tíðum vísað til hins fyrnefnda í ræðum sínum og styttri
erindum; enda margt svipað um lífsskoðanir þeirra.
I hinum snjalla ljóðaflokki sínum, Björn á Reyðarfelli,
sem er stórbrotnasta skáldverk Jóns Magnússonar, stendur
þetta mergjaða erindi:
I
„Mér fanst hann vera ímynd þeirrar þjoðar,
sem þúsund ára raunaferil tróð
og dauðaplágum varðist gadds og glóðar,
en geymdi altaf lífs síns dýrsta sjóð.
— Því gat ei brostið ættarstofninn sterki,
þótt stríðir vindar græfu aldahöf,
að fólk, sem túlkar trúmenskuna í verki,
það tendrar eilíf blys á sinni gröf.“
Dr. Beck hefir iðkað trúmenskuna í verki, og munu þess
sjást lengur merki en meðan hann er ofan jarðar.
íslenzka þjóðin stendur í þakkarskuld við þá menn alla,
er hönd lögðu á plóginn varðandi útgáfu áminstrar bókar,
þó skuld hennar sé stærst við dr. Beck sjálfan fyrir lang-
varandi forustustarf á vettvangi íslenzkra menningarmála.
Sameinuðu þjóðirnar fullnægja ekki
ítrustu óskum manna
Raeða forseta íslands, herra Ásgeirs Ásgeirssonar
Góðir Islendingar!
Þetta síðasta starfsár hinna
Sameinuðu þjóða hefur leitt
tvennt skýrt í ljós. Fyrst það,
hve máttvana samtökin eru,
þegar við þá er að eiga, sem
engin tillit taka, og hitt annað
hve mikils hinar Sameinuðu
þjóðir geta mátt sín, þegar
skilyrðin eru hagstæð. Það eru
góð skilyrði, þegar hinar ein-
stöku þjóðir sýna félagslyndi
og ábyrgðartilfinningu gagn-
vart samtökunum og tilgangi
þeirra, en ill, þegar synjað er
um allt samstarf. Þetta var
raunar alltaf vitað, og liggur
í augum uppi. En bæði Súez-
og UngverjalandsmáJ hafa
valdið meiri umræðum en
áður um takmörkuð áhrif og
völd hinna Sameinuðu þjóða,
og ýmist vaxandi vonleysi eða
kröfum um úrbætur.
Það tvennt hefur skeð, sem
vert er að rifja upp fyrir al-
menningi á þessum minnis-
degi, það fyrsta, að neitunar-
vald Öryggisráðsins hefur
verið takmarkað, og hitt ann-
að, að stofnað var gæzlulið
hinna Sameinuðu þjóða. I ör-
yggisráði getur einn aðili
stöðvað öll afskipti og íhlutun,
hvað sem við liggur. En nú
geta tveir þriðju hlutar at-
kvæða á allsherjarþinginu
ráðið úrslitum í hverju máli,
án tillits til hins gamla neit-
unarvalds.
I sambandi við Súezdeiluna
var og stofnað, í fyrsta sinn,
gæzlulið tíu þjóða til meðal-
göngu á ófriðarsvæðinu. Það
lið var að vísu fámennt, og
hefði hver ófriðaraðili sem
var, getað rutt því úr vegi.
En svo fór þó ekki, því á bak
við var ósýnilegt afl hinna
Sameinuðu þjóða, almennings
álitið í alþjóðamálum. Gæzlu-
liðið var stofnað vegna þess-
ara sérstöku átaka einna sam-
an, en vaxandi kröfur eru á
dagskrá um öflugra og varan-
legt gæzlulið, sem hinar Sam-
einuðu þjóðir stýri til trygg-
ingar og öryggis heimsfriði.
Það er þó of snemmt að gera
sér vonir um öfluga alþjóða-
lögreglu, eins og fyrirhugað
var við stofnun hinna Samein-
uðu þjóða, en öllum er það
ljóst, að friður og réttvísi þarf
bakhjarl, ekki síður í milli-
ríkjaviðskiptum en innan-
landsmálum.
Það er mála sannast, að hin-
ar Sameinuðu þjóðir full-
nægja ekki hinum ítrustu
óskum né framtíðarvonum um
öi'yggi og frið. Það er bezt að
gera sér engar tálvonir- Frið-
samlegri stjórnmálaviðureign
innanlands er stundum lýst
svo, að hún sé barátta fyrir
því, að ná svo góðum árangri
sem framast er mögulegt. —
Þessi skilgreining á ekki síður
við í alþjóðastjórnmálum.
Mannkyninu virðist það á-
skapað, að það sem fæst og er
frekast kleift, nær sjaldan eða
aldrei hinni hæstu hugsjón.
Hinar Sameinuðu þjóðir ná
ekki lengra, en sem svarar
þeim samtakamætti, sem þær
stýra á hverjum tíma. Það
stekkur enginn langt yfir hæð
sína. Við sitt eigið afl, hafa
hinar Sameinuðu þjóðir ekki
öðru að bæta, en því alþjóða-
áliti, sem þeim tekst að skapa
í hverju máli. Alþjóðaálit
skapar alltaf nokkuð aðhald.
Og þegar litið er á þessa hlið
í starfsemi hinna Sameinuðu
þjóða á síðasta starfsári, þá
er sízt um afturför að ræða.
Allur almenningur þráir frið
og farsæld, og starfsemi hinna
Sameinuðu þjóða er tákn og
traust þess hugarfars.
Ég mun ekki rekja starfsemi
hinna Sameinuðu þjóða í
þessu stutta ávarpi. — En
barnahjálp, flóttamannafyrir-
greiðsla, tækniaðstoð, mat-
vælastofnunin og margt fleira
eru dæmi þeirra viðleitni, sem
heimurinn má ekki án vera,
og nú fyrst er sýnt á alheims-
mælikvarða. Hver veit hve
langt verður komizt um lausn
hinna stærstu alþjóðavanda-
mála á þessum vettvangi, ef
haldið er áfram í einbeittri trú
á mikla möguleika. Öryggi
óttans á þessari atómöld
hrekkur ekki til frambúðar.
Gagnkvæmur skilningur og
traust, samhjálp og umhyggja
þarf að útrýma óttanum og
styrjaldarhættunni. Með vax-
andi samúð og samstarfi á al-
þjóðavettvangi mun heiti
„hinna Sameinuðu þjóða“ að
lokum reynast sannnefni. —
En allt getur brugðizt til
beggja vona. Framtíðin veltur
á hugarfari og stefnu þeirra,
sem forustuna hafa.
ADDITIONS
to Betel Building Fund
Kvenfélagið „Eining“
Lundar, Man. $10.00
1 minningu um kæran
heiðursfélaga, Mrs. Stein-
unni Kristjánsson, dáin á
Betel í júní 1957.
----0---
Kvenfélagið „Eining“,
Lundar, Man. $10.00
I kæra minningu um
R. Margréti Thorsteinsson,
Lundar, dáin 15. sept. 1957.
------------0---
Frá Mrs. Boggu Sigurðsson,
Lundar, Man. $5.00
1 minningu um kæra vin-
konu R. Margréti Thorstein-
son, Lundar, lézt 15. sept-
1957.
----0---
Mr. og Mrs. A. M. Freeman,
Lundar, Man. $25.00
----0---
Lundar þjóðræknisdeild,
Lundar, Manitoba $25.00
----0---
Mr. F. R. Lount,
815 Wellington Cres.,
Winnipeg 9. Man. $150.00
Hinar Sameinuðu þjóðir eru
hin víðtækustu alþjóðasamtök,
sem til hefur verið stofnað.
Enn eru þau ung að aldri. Vér
megum ekki vera mjög bráð-
lát- Allt er lengi að vaxa, sem
lengi á að standa. Framtíðar-
möguleikarnir eru miklir, og
gifta mannkynsins í veði. Yfir
þessum degi blakta allir fánar
hinna einstöku sameinuðu
þjóða — og bera við himinn
líkt og friðarbogi.
Vér óskum hinum Samein-
uðu þjóðum allra heilla, og
gefi Guð góðri viðleitni sigur!
—VÍSIR, 25. okt.
— Mikið ósköp geta konur
verið falskar.
— Nú, hvernig þá?
— Ég setti hjúskaparauglýs-
ingu í blöðin um daginn og sú
eina sem gaf sig fram var
kærastan mín.
"Betel"$205,000.00
Building
Campaign Fund
—180
Maka your donaiions io iha
"Betel" Campaign Fund,
123 Prlnceas Slreat,
Winnipeg 2.
/
"HOLIDAY PUNCH'
Beat separately yolks
and whites of 6 eggs.
Add % cup of sugar
to yolks while beating.
Add 14 cup of sugar
to whites after beating
very stiff. Mix egg whites with
yolks. Stir in 1 pint of cream and
1 pint of milk. Add 25 oz. Sea-
gram’s V.O. Canadian Whiskey
and 1 oz. of Captain Morgan
Gold Label. Stir thoroughly and
serve very cold, with grated
nutmeg in cocktail glasses. Makes
five pints.