Lögberg - 03.07.1958, Síða 1
\ •ui<» "li'jvCl
\ÖRY YEA?. .
IM 18. tlMS
AVAILABLE AT
YOUR FAVORITE
CROCERS
71. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 3. JÚLI 1958
NÚMER 27
Bréf úr Húnaþirtgi
TJÖRN, VATNSNESI. 20. JÚNÍ
Kæri Einar og lesendur
Lögbergs:
Ég þakka ykkur öllum fyrir
síðast. Mikið var það ánægju-
legt að koma vestur og heilsa
upp á ykkur. Því miður hitti
ég ekki alla að máli, sem ég
vildi í upphafi, en tími vannst
bara ekki til þess. Mér þótti
það sérstaklega leiðinlegt, að
geta ekki komizt til Víðis, en
ég vona að þið öll, sem ég
hafði svo góð kynni af í Víði,
skiljið það, að þótt andinn sé
Settur í embætti
Séra Donald Olsen
Á sunnudaginn 29. júní, kl.
3 e. h., var fjölmenni mikið
viðstatt messugjörð að Grund-
ar-kirkju í Argylebyggð, en
hún er stærsta kirkja presta-
kallsins. Við þessa athöfn var
hinn nývígði prestur sveitar-
innar, séra Donald Olsen,
formlega settur í embætti.
Forseti kirkjufélagsins, séra
Eric H. Sigmar, framkvæmdi
innsetninguna með aðstoð séra
Valdimars J. Eylands, sem
einnig var þar staddur. Ávarp-
aði hann prestinn í ræðu, en
forseti talaði til safnaðanna.
Sameiginlegur söngflokkur
gerði guðsþjónustuna hátíð-
lega með miklum og fögrum
söng. Árni Sveinsson stýrði
söngnum og spilaði á hljóð-
færið. I messulok töluðu þeir
B. S. Johnson, forseti presta-
kallsnefndarinnar, O 1 s e n,
meðlimur safnaðarráðsins í
Glenboro, og svo hinn nýi
sóknarprestur. Kaffiveitingar
fóru fram í samkomuhúsi
skammt frá kirkjunni að guðs-
þjónustunni lokinni, og var
veitt af mikilli rausn, eins og
Argyle-búum er lagið. Presta-
kallið fagnar mjög hinum
unga presti og fjölskyldu
hans, enda er hann vel mennt-
aður og prýðilega vel gefinn
maður.
reiðubúinn, þá er holdið oft
veikt.
Ferðalagið í Bandaríkjun-
var þreytandi. Þótt það sé
gaman að koma í hús og á
bæi verður það samt þreyt-
andi, þegar til lengdar lætur.
Ég kom til gamla landsins
2. júní — í kulda. Það var
fyrir neðan 50. Síðan hefur
hlýnað í Reykjavík, en hérna
fyrir norðan er enn mikill
kuldi og enginn gróður að
ráði. Það voru mikil viðbrigði
að fara úr 86 stiga hita í New
York- Þar í borginni hitti ég
góðan vin íslands og Canada,
Frank Henderson að nafni. Ég
þarf ekki að geta þess, að
hann er af skozkum ættum og
getur rakið ætt sína aftur til
Ebenezer Hendersons, sem
kom til íslands fyrir um 100
árum síðan frá Edinborg á
vegum brezks biblíufélags og
skrifaði síðan endurminningar
frá íslandi. Frank Henderson
er viðskiptamaður í Manhat-
tan og hefur gert mörgum Is-
lendingum — flugmönnum,
sjómönnum og öðrum greiða.
Nú ætlar hann að gera út í
Florida og til þess hefur hann
fengið sex unga íslendinga
héðan sér til aðstoðar.
Ég var búinn að vera í
Reykjavík í nokkra daga, þeg-
ar ég hitti Steina Jakobs og
konu hans á götu. Þeim leið
þá vel og létu vel af sér á
Fróni.
Eftir nokkra daga kemur
séra Haraldur Sigmar ásamt
fjölskyldu sinni til okkar.
Hann ætlar að vera við ferm-
ingu hér á Tjörn.
Hér á Fróni er því miður
ekki gott ástand í efnahags-
mólum. Gjaldeyrisskortur er
mjög tilfinnanlegur. Margar
vörur hafa hæækað verulega
í verði, en launahækkun er
fimm prósent. Framtíðarhorf-
vörur hafa hækkað verulega
og er vonandi að verkföll
skelli ekki á, en margir eru
hræddir um það. En hvað
þýðir að “worry” yfir því?
Sólin er nú að síga í Ægi
langt út á Húnaflóa, það er
kyrrt veður en þó kalt. —
Lömbin liggja hreyfingarlaus
og þeim er alveg sama um
efnahag þjóða. Það er björt
sumarnótt, og hér langt frá
þys og hávaða lífsins situr
maður og nýtur kvöldkyrrðar-
innar. Mér verður hugsað til
Guðmanns Levy og frú Mar-
grétar og allra þeirra samtala
Framhald á bls. 8
Mynd þessi sýnir vígslu þeirra guðfræðikandidatanna,
Donald Olsen og Wallace Bergman, er fór fram á nýafstöðnu
kirkjuþingi í Winnipeg. Séra Eric H. Sigmar, forseti félagsins,
framkvæmir vígsluathöfnina, en vígsluþegar krjúpa við
altarið. Á myndinni má einnig sjá Dr. Valdimar J. Eylands,
en hann flutti vígsluræðuna.
Myndin að ofan sýnir athöfnina, er systir Laufey Olson hlaut
djáknavígslu í Fyrstu lútersku kirkju á kirkjuþingi því sem
fór fram 8.—11. júní s.l. Þeir sem myndin sýnir eru frá vinstri
til hægri: Séra Ólafur Skúlason, skrifari Kirkjufélagsins, Dr.
Alvin Bell, fulltrúi Djáknadeildar Sameinuðu lút. kirkjunnar
í Ameríku, séra Eric H. Sgmar, forseti Kirkjufélagsins, og
Dr. V. J. Eylands, vara-forseti þess, og prestur Fyrstu lútersku
kirkju. Þeir embættismenn Kirkjufélagsins, sem að ofan
greinir, voru allir endurkosnir í embætti sín í lok þingsins.
DR. GEORGE JOHNSON
Hinn nýi heilbrigðismálaráð-
herra Manitobafylkis.
(Sjá ritstjórnargrein)
Hlýtur "Fullbrighr
námssfyrkinn
Senatorarnir frá Wash-
ington ríkinu hafa nýlega til-
kynnt að séra Harold S. Sig-
mar, fyrrum presti í Kelso
þar í ríkinu, hafi verið veittur
„Fullbright“ námsstyrkurinn
fyrir skólaárið 1958—’59. —
Gerir þessi styrkveiting hon-
um mögulegt að stunda fram-
haldsnám við Háskóla íslands,
en hann stundar nú guðfærði-
kennslu við þá stofnun. — Er
það mikill heiður að hljóta
námsstyrk þenna, og er hann
aðeins veittur þeim, sem hafa
hlotið viðurkenningu fyrir
hæfileika og dugnað.
Séra Harald fór til Islands
fyrir ári síðan, samkvæmt til-
mælum guðfræðideildar há-
skólans þar, og kennir þar
guðfræði.
Mannarán í Cuba
Uppreisnarmenn í Cuba,
sem fylgja Fidel Castro að
málum gegn Batista forseta,
hafa nýlega rænt 40 Banda-
ríkjamönnum og þrem Canada
mönnum, sem stunda atvinnu
þar í landi. Gera þeir þetta
til að draga athygli heimsins
að uppreisninni. Ekki er þó
talið að þeir muni gera þess-
um föngum sínum mein, og
eru amerísk stjórnarvöld að
reyna að semja við uppreisn-
armennina að fá fangana
lausa. — Einn þeirra er ís-
lendingur, Harold G. Kristjan-
son; foreldrar hans eru Mr. og
Mrs. Otto Kristjanson í
Geralton, Ont. Harold Krist-
janson lauk prófi í verkfræði
við Queens-háskólann 1944, og
hefir lengi verið í þjónustu
amerísks námufélags í Cuba.
Hann er kvæntur konu af
amerískum ættum.
íslenzkur rokkur
sýndur
1 dagblaðinu Saskatoon
Phoenix, 7. júní, birtist mynd
af íslenzkum spunarokk. Talið
er að rokkurinn hafi verið
smíðaður á Islandi árið 1856
og var hann eign Ingibjargar,
móður Vilhjálms Stefánssonar
landkönnuðs. Ingibjörg hafði
rokkinn með sér þegar fjöl-
skyldan fluttist vestur um
haf árið 1877, og gaf hann
seinna náinni vinkonu sinni,
Mrs. Kristínu Johnson að
Wynyard ,Sask. Johnson syst-
kinin voru ellefu og búa 4
þeirra í Saskatoon- Mr. Fred
Davidson, er kvæntur einni
systurinni og búa þau í
Saskatoon. Hann færði forn-
minjasafninu — Western De-
velopment Museum of Saska-
toon — rokkinn, og verður
hann sýndur og á hann spunn-
ið dagana sem frumherjanna
verður minnst — Pion-Era
vikuna.
Slysfarir
Á þriðjudaginn fagnaði
þjóðin 91. afmælisdegi Canada,
en sá fögnuður var sorgum
blandinn, því að frá kl. 6 e. h.
á föstudaginn til miðnættis á
þriðjudaginn týndu yfir 100
manns lífi sínu vegna slys-
fara; 48 fórust í bílslysum, 45
drukknuðu og 7 létu lífið af
öðrum slysum.