Lögberg - 03.07.1958, Síða 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 3. JÚLt 1958
Lögberg
OeflQ út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
203 KENNEDT STREET, WINNIPEQ 2, MANITOBA
Utanáekrift ritstjórana:
EDITOR LÖGBERG, 30S Kennedy Street, Wlnnlpeg 2, Manitoba
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Skrifstofuetjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Verð $5.00 um áriö — Borgist fyrirfraxn
"Lösberg” ls published by Columbia Press Limlted,
303 Kennedy Street, Winnipeg 2, Manitoba, Canada
Printed by Coiumbia Prlnters
Authorized as Second Class Mall, Post Oífice Department, Ottawa
WHitehall 3-9931
Hin nýja stjórn Manitobafylkis
Á mánudaginn tók Dufferin Roblin formlega við forsætis-
ráðherraembætti Manitobafylkis, — fyrsti Conservative for-
sætisráðherra fylkisins síðan að afi hans Rodmond Roblin lét
af því embætti fyrir 43 árum. Mr. Roblin hefir nú útnefnt 9
menn í ráðuneyti sitt, og eru sumir þeirra fyrir tveimur
stjórnardeildum. Er talið að hann hafi í hyggju að veita sér
þannig olnbogarúm, ef hann skyldi fá hreinan meirihluta í
næstu kosningum, myndi hann skipa fleiri ráðherra. Sem
stendur er ráðuneytið þannig skipað:
Dufferin Robb'n—Premier & Provincial Treasurer.
Errick Willis—Deputy Premier, Agriculture Minister, Acting
Public Works Minister.
Gurney Evans—Minister of Mines and Resources, Acting
Minister of Industry and Commerce.
Síerling Lyon—Attorney-General.
John Thompson—Minister of Labour, Acting Minister of
Municipal Affairs.
Dr. George Johnson—Minister of Health and Welfare.
Jack Carroll—Minister of Public Works.
Marcel Boulic—Provincial Secretary.
Slewart McLean—Minister of Education.
Atkvæðamesti ráðherrann næst forsætisráðherranum er
Errick Willis; hann er 62 ára að aldri, var áður formaður
fiokksins og Public Works ráðherra í sambræðslustjórninni
frá 1940 til 1950.
Mr. Evans er hagfræðingur að menntun og einn af þing-
mönnum Winnipegborgar. Talinn mjög hæfur maður.
John Thompson átti sæti á síðasta þingi, þingmaður fyrir
Virden. Hann er fimmtugur að aldri. Yngsti maðurinn í ráðu-
neytinu er Sterling Lyon aðeins 31 árs að aldri. Jack Carrol,
37 ára gamall, er harðvörukaupmaður í The Pas. Stewart
McLean er bæjarstjóri í Dauphin. Marcel Boulic, franskur
að ætterni, þingmaður frá Cypress.
Meðalaldur þessara níu manna ráðuneytisins er 44 ár, og
er það ekki hár aldur fyrir menn, er skipa slík sæti; ráð-
herrana ætti því ekki að skorta starfsorku, og ef þeir eru
búnir hæfileikum að sama skapi, má sennilega vænta ýmissa
framkvæmda af þeirra hálfu. Þó er það varhugavert, hve
sumir þeirra hafa litla reynslu í stjórnmálum.
Það mun ósk allra þeirra, er bera hag Manitoba fyrir
brjósti, að hinu nýja ráðuneyti auðnist að gefa fylkinu vitur
lega og styrka stjórn, — að gifta fylgi starfi þess.
Dr. George Johnson
Við nýlega afstaðnar fylkiskosningar í Manitoba var Dr.
George Johnson spítala- og héraðslæknir á Gimli kosinn á
fylkisþingið í Manitoba fyrir Gimli-kjördæmi; hann fylgir
íhaldsflokknum að málum og er þar af leiðandi stuðnings-
maður hins nýja forsætisráðherra Hon. Dufferin Roblins,
sem nú hefir skipað hann heilbrigðis- og velferðarmálaráð-
herra. Þetta er vandasamt og virðulegt embætti, sem aðeins
úrvalsmenn eru færið um að gegna.
Hinn nýi ráðherra, íslenzkur í báðar ættir, er fæddur í
Winnipeg, sonur Johns heitins Johnson, deildarstjóra hjá T.
Eaton félaginu, og ekkju hans frú Laufeyjar Johnson, sem
tekið hefir mikinn þátt í málefnum Fyrsta lúterska safnaðar.
Dr. Johnson er ágætur félagsmaður og vafalaust fullbúinn
þeirri miklu ábyrgð, sem samferðasveit hans hefir falið hon-
um á hendur. Hann er kvæntur Dorise dóttur Dr. Ágústs
heitins Blöndals og eftirlifandi konu hans frú Guðrúnar
Blöndal; þau eiga fimm börn — þrjár stúlkur og tvo drengi.
Lögberg árnar hinum nýja ráðherra og fjölskyldu hans
gæfu og gengis í framtíðinni.
Bréf fró Los Angeles
— 17. júní í Las Angeles —
Af vissum ástæðum voru
hátíðahöldin, 17. júní í Los
Angeles, haldin föstudags-
kveldið 20. þ. m., lengsta dag
ársins. Mannfagnaður þessi
fór fram í “Old Dixie” matsölu
húsinu á Western Ave. Kl. 8
um kvöldið var sest að góðum
kvöldmat í hinum stóra og veg
lega sal, skreyttum flöggum
o. s. frv. Örn Harðarson setti
samkomuna í fjarveru for-
setans Hreiðars Haraldssonar,
sem hafði skroppið til Japan-
Kynnir kvöldsins var Halldóra
Sigurdson; leysti hún hlutverk
sitt af hendi með mestu prýði,
enda ágætlega máli farin og
myndarstúlka. Þar næst voru
sungnir þjóðsöngvar Islands
og Bandaríkjanna undir stjórn
Sigurðar H. Helgasonar frá
Morro Bay með undirleik frú
Hildar Lindgren konu hans.
Þá söng Emily Sigurdson
nokkra söngva, sem nutu sín
vel í hinum stóra sal — söng
hún bæði á íslenzku og ensku.
Jónas Kristinsson mælti fyrir
minni Islands; var gerður góð-
ur rómur al ræðu hans. Al-
mennur söngur fór fram undir
stjórn Gunnars Matthíassonar
Fjögra manna hljómsveit lék
fyrir dansinum, en stjórnandi
hljómsveitarinnar var Charles
Armond; hann er kvæntur
konu frá Islandi. — Um 160
manns sóttu samkomuna.
Hér stunda nú nám, einkum
í verklegum fræðum, 16 ungir
menn frá íslandi. Án efa eru
hér eins margar ungar stúlkur,
að frátöldum hinum mörgu
giftu konum hér frá íslandi.
Dansað var af miklu fjöri til
kl. eitt um nóttina. Á meðan
Islendingar í austri og vestri
eiga samleið eins og svo greini
lega kom þarna í ljós, er allt
i lagi, svo að ég noti orð hins
unga Islands.
Á öllum okkar samkomum
eru ætíð góðir gestir, bæði frá
íslandi og Canada. í þetta sinn
voru til dæmis mættar fimm
konur úr Reykjavík, sem hér
eru í heimsókn hjá börnum
sínum. Nöfn þeirra eru: Rósa
Þorsteinsdóttir og Mínerva
Jósteinsdóttir, þær eru mæður
Þorsteins Guðmundssonar og
konu hans Margrétar, þau
eru búsett á Hermosa Beach.
Með þessu fólki voru ung hjón
frá Englandi, Mr. og Mrs.
Norman Taylor, þau hafa
dvalið á Islandi all-lengi; Mr.
Taylor talar sæmilega ís-
lenzku- Hafði hann séð í blöð-
um samtal við konur þessar
og leitaði uppi Guðmundsson
fjölskylduna. Móðir Jónasar
Kristinssonar, Jóhanna Guð-
laugsdóttir er hér stödd; hún
er systir Jónasar Guðlaugs-
sonar skálds og rithöfundar,
sem lézt í Danmörku 1916. Sú
fjórða er Anna Thorsteinsson,
dvelur hún hér hjá dóttur
sinni, Sonju Tryggvadóttur.
Hin fimmta er frú Eyleifs-
dóttir, er hún hér hjá dóttur
sinni, Ástu Bæringsdóttur
Purches; hugsar hún sér að
eyða sumrinu í Ameríku með
dætrum sínum, sem allar eru
giftar, ein í Alaska, og önnur
í Georgia. — Þá var þarna
Stanley Ólafsson ræðismaður
Islands með frú sinni. Stanley
var nýlega sæmdur orðu frá
Þýzkalandi, og fyrir nokkrum
árum var hann sæmdur orðu
frá Hollandi fyrir prýðilegar
móttökur Júlíönu Hollands-
drottningar þegar hún heim-
sótti Los Angeles, en Stanley
var formaður móttökunefnd-
arinnar. Má með sanni segja
að hann komi ætíð Islandi
fram til sóma og það er oft! —
Þarna var skáldkonan okkar í
“Sunland” frú Ingibjörg Guð-
mundsson ásamt fjórum son-
um sínum og konum þeirra.
Frá Hollywood var mættur
Halldór Halldorson, áður Win-
nipeg; ber hann sýnilega aðals
merki Hjarðarfellsættarinnar
frá Miklaholtshreppi. Frá San
Diego Björgvin Guðmundsson
frú hans, sonur þeirra og
tengdadóttir. Frá Morro Bay
Eileen og Jón Thorbergsson.
Frá La Mesa Edward og María
Þorvaldsdóttir Bradwell, eru
þau alkomin hingað frá
Toronto, Canada. Frá New
York Axel Axelsson Ketils-
sonar og systir hans Beta
Thomas, Fred og Helga Frið-
geirsson, nýkomin úr ferða-
lagi til Canada.
Á sunnudaginn var bauð
frú Guðný Thorwaldson um
20 manns til þess að kynnast
þessum góðu gestum frá Is-
landi; en til hennar er ætíð
hressandi og gott að koma.
í næsta mánuði fara alfarin
til íslands Rögnvaldur John-
sen frá Vestmannaeyjum á-
samt konu sinni Stellu Valdi-
marsdóttur og þremur börn-
At-vikavísur
Hnignun
Lífsins hjöllum Elli á,
enginn völlinn skeiðar;
jafnvel tröllin tapa þá
trú á fjöll og heiðar.
Dagsbrún
Líða dætur drauma hjá,
dagsins mæta trafi, —
austur glætan guðar á
glugga, úr nætur hafi.
Til vinar míns
Þó við heimsins sturluð stig,
stöðu hátt þú náir:
Bardagann við sjálfan sig
sigrað hafa fáir!
Bjarisýni
Bjarma á fjallið fagra slær,
fönn þess skalla heiðir.
Alt er fallegt, fjær og nær,
færar allar leiðir! —PÁLMI
Á eynni Kuwait í Persneska
flóanum eru embættismenn
landsins látnir hafa mikla pen-
inga-upphæð til eigin afnota
til þess að þeir freistist síður
til að auðga sig á kostnað
ríkisins.
um sínum, en í Ameríku hafa
þau dvalið í mörg ár.
í næsta mánuði er von á
blómarós frá Islandi til Long
Beach til þess að taka þátt í
hinni árlegu fegurðarsam-
keppni — eru Islendingar hér
farnir að undirbúa móttöku
hennar með Olive Swanson í
fararbroddi.
Skúli G. Bjarnason
Fögur minningargjöf
Frú Aldís Pétursson, sem
nú er tli heimilis á Betel hefir
gefið húsgögn í eina íbúð
heimilisins í minningu um
mann sinn Sigfús Franklin S.
Péttursson, er andaðist 14.
marz 1958. „Flestir þeir, er
þekktu Franklin vel, myndu
kjósa að líkjast honum sem
mest, ættu þeir kost á slíku.
Þar er til grafar genginn góður
drengur, trúr sjálfum sér og
trúr öðrum til æviloka.“ T. B.
☆
ADDITIONS
to Betel Building Fund
Helen M. Lloyd,
1708 — 48th Avenue S. W.
Calgary, Alberta, $10.00
------------0---
Concordia Congregation,
Bredenbury Sask. $500.00
This donation by the con-
gregation is primarily made
for the porpose of assisting in
a very worthy effort, and also
in appreciation of the love and
care received by former mem-
bers of our congregation who
were at one time or other
residents in the Home.
Gísli J. Markússon,
Pres. Concordia Congregation
"Betel"$205,000.00
Building
Campaign Fund
—180
Make your donatlons to tha
"Belel" Campaign FundL
123 PrlncaM Street,
Wlnnipeg 2.