Lögberg - 11.12.1958, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 11. DESEMBER 1958
7
Enn um komu
Vilhjólms
Stefánssonar
Skylt er að geta þess, sem
vel er gert, og á ég þar við
móttökur þær, sem Vilhjálm-
ur Stefánsson fékk hjá þeim
Ný-lslendingum í samkomu-
húsi Geysisbyggðar, 11. nóv.
s.l. Minnist undirritaður þess
ekki, að hafa verið staddur á
stærri samkomu meðal Vestur
íslendinga, að undanteknum
Islendingadeginum á Gimli.
Klukkan hálfsjö um kvöld-
ið kom Vilhjálmur ásamt
föruneyti til Geysis. Voru þar
góðbændur og framámenn
mættir til þess að taka á móti
þessum fræga syni Nýja Is-
lands. Var þegar setzt að
snæðingi, sem húsfreyjur
norður þar höfðu reitt fram
af dæmafáum myndarskap.
Ekki legg ég í að birta mat-
seðilinn, enda mundi ekki
nægilegt rúm fyrir hann á
forsíðum Lögbergs og Heims-
kringlu. Mátti sjá á borðum
flestar þær krásir, sem birtast
mönnum í ljúfum draumum
eða á síðum ævintýra, sem
fjalla um kóngafjölskyldur og
annað stórmenni.
Söngflokkar byggðarinnar
sungu ættjarðarljóð, og setti
söngurinn mikinn svip á sam-
komuna. Þeim, sem hyggja
íslenzkuna vestanhafs komna
undir græna torfu, væri hollt
að hlusta á samsöng ung-
menna norður í Nýja íslandi.
Höfuðatriði dagskrárinnar
var þó auðvitað ræða dr. Vil-
hjálms Stefánssonar, og talaði
hann fyrir sveitungum sínum
í hartnær klukkustund.
Sr. Philip M. Pétursson
kynnti ræðumann, en Sigurð-
ur Vopnford þakkaði honum.
Gunnar Sæmundsson stjórn-
aði samkomunni með mikilli
röggsemi, og ekki var það
hans eini starfi. Hann mun
hafa átt frumkvæði um mann-
fagnaðinn, og á tveimur dög-
um hóaði hann saman meira
en fjögur hundruð manns.
Að samkomunni lokinni
hvíldi dr. Vilhjálmur sig um
stund heima hjá þeim rausnar-
hjónum, Hrund og Jónasi
Skúlason.
Sakir lasleika átti frú Eve-
lyn Stefánsson þess ekki kost
að fara norður með manni
sínum. Ráðgert hafði verið að
nema staðar í Árnesi, fæðing-
arstað Vilhjálms, á leiðinni
norður, þ. e. a. s. ef þangað
yrði komið í björtu. En degi
var tekið að halla, þegar hald-
ið var frá Winnipeg, og mönn-
um fannst ótækt, að Vil-
hjálmur færi um hlaðið á
Gimli án þess að staldra við á
Betel. Var því fæðingarstaður
hans Árnes sveipaður kvöld-
skuggunum, þegar hann fór
þar framhjá.
Samkoman í Geysi var til
mikillar sæmdar fyrir heiðurs-
gestinn, dr. Vilhjálm Stefáns-
son, og alla þá, sem að henni
stóðu. Haraldur Bessason
Ég sé land
i.
Ég sé land! — Ég sé land! —
Það lyftist úr Ránar djúpi,
vogskorið, hrjóstrugt, með hreina drætti,
í hrífandi skarlats hjúpi,
hrikalegt, fagurt, þrungið af mætti
norðursins, frera, ísi og eldi
og allskonar hljóðfæraslætti,
það speglast við himin og hafið
heillandi sóllindum vafið.
Ég sé land! — Ég sé land,
með litfögrum borðum og skrauti.
Ég sé lyngbrekkur grænar gróa,
greiðast í blómgresis skauti.
Ég sé niðandi, fallþunga fossa,
freyðandi úðamökk glóa
um gljúfra veggina, glossa
eins og geislandi demanta
í ari sólar er sendir kossa,
seiðandi ástar blossa.
/
II.
Og hljómarnir drjúpa í daginn
— sem dutlungar mannanna þjá —
er leysa úr læðingi braginn
sem lífinu unaðshrif fá.
Og dunurnar berast um dalinn
af dillandi fossa söng
í samhljóm við fjalla salinn
um sumur og dægrin löng.
í hlíðunum hóar smalinn, —
hlustar á vötnin ströng.
III.
Og öræfa kyrrðinnar undur
andi manhs skilur bezt
þegar almættið stendur opið
og altari drottins sézt,
þá er sálin full af sigrum,
sælan hreinust og mest.
I háborgum heiðríkjunnar
er heimurinn ekki til,
því alskygni alverunnar
er eitt, sem ég skil og vil.
Um fuglanna loftvíðu leiðir
leikur sér hugurinn frjáls
og vængjaður vordugur breiðir
veigar um fjöll og háls,
svo farmannsins lifandi langan
leitar sér útþrá, — og kýs,
að dvelja við öræfa angan
í ættlandsins paradís.
IV.
Við undirleik dalanna dísa,
djúpsæið örfast og grær
og morgunsár mannvitsins lýsa. —
í moldinni hjartað slær. —
Skapmáttur frelsis og friðar
í frjóvgandi orku sér nær.
Ef sólin ei síður til viðar
er siglingin öllum fær.
Og náttúru raddirnar roða —
rósum á mannlífið strá
og örfandi bjartsýni boða,
bandalags vonir og þrá.
Treystum því bláþræði bandsins
og blysunum gefum sinn mátt
á leiðinni upp til landsins,
á leiðinni í sólarátt.
V.
í aldanna órofa myrkri
eru einstaklingar á ferð,
sem halda í hendi styrkri
helgrímu og dengja sverð
í litrofi margskonar mynda
og minninga liðins dags,
vinninga, svika og synda
til síðasta hvíldardags.
VI.
I náttúru faðminum fríða
við fossa og lækjanna nið,
und Blástjörnu brosinu blíða,
sem brosir mér jafan við,
við fjallanna fögru borgir
og friðarnis boga lund,
svæfi ég mínar sorgir
og sófna minn hinzta blund.
VII.
Ég sé land! — Ég sé land,
í ljóshafsins flóði vafið,
það lyftist, hækkar, stjörnurnar stækka,
stundirnar hverfa í hafið.
ílskunnar fárviðri linast og lækka,
það líður að náttstað og kveldi. —
Dagurinn liðinn. — Dumbshafið svart,
dyrunum lokar. — Svo birtir um geim. —
Nóttin er liðin. — Norðrið er bjart. —
Nú er sólskin á leiðinni heim.
—Davíð Björnsson
Canada löggjöfin um réttláta atvinnuveitingu
BAN NAR
hlutdrægni í atvinnuveitingum
TILGANGUR LÖGGJAFARINNAR er að vernda verka-
fólk gegn hlutdrægni í atvinnuveitingum, og í verka-
lýðsfélögum vegna kynflokks, trúar, hörundslitar eða
þjóðernisuppruna.
LÖGGJÖFIN NÆR TIL vinnuveitenda við verk og fyrir-
tæki, er heyra undir dómsvald sambandsstjórnarinnar,
og til verkalýðsfélaga, er fara með umboð verkafólksins
við þau. Til þessara fyrirtækja teljast: skipastóll, járn-
brautir, skipaskurðir, ritsími, flugstöðvar, flugferðir,
viðskiptafélög sambandsstjórnar, bankar, útvarp og
sjónvarp, og svo þau verk og fyrirtæki, sem rekin eru í
þágu Canada yfirleitt, eða þau er ekki heyra undir lög-
gjöf fylkisþinganna.
LÖGGJÖFIN FYRIRBÝÐUR atvinnuveitanda að neita
nokkrum manni um atvinnu eða sýna hlutdrægni gegn
verkamanni vegna kynflokks, trúar, hörundslitar eða
þjóðernisuppruna hans. Atvinnuveitanda er og bannað
að skipta við auglýsingafélög, er sýnt hafa slíka hlut-
drægni eða nota spurningar, er sýna manngreiningar álit,
skrifaðar eða munnlegar, í sambandi við atvinnu-
umsóknir.
LÖGGJÖFIN FYRIRBÝÐUR manngreiningarálit hjá
verkalýðsfélögum, hvað snertir inntöku í félagið eða
vinnuveitingu, vegna kynflokks, trúar, hörundslitar eða
þjóðernisuppruna.
HVER SÁ, ER LEGGUR FRAM KÆRU er heyrir undir
ákvæði þessara laga eða ber vitni eða aðstoðar við mála-
ferli, er heyra undir þessi lög, mun verndaður gegn
hefndar-tilraunum, er kunna að verða gerðar gegn
honum.
Auk löggjafar sambandsþingsins hafa mörg fylkin lög-
gjöf um réttláta atvinnuveitingu, sem verndar verkafólk
gegn hlutdrægni í atvinnuveitingum í þeim atvinnu-
greinum, sem heyra undir fylkisdómsvaldið. Fylkin, þar
sem slík löggjöf er í gildi eru, Ontario, Manitoba, Saskat-
chewan, New Brunswick, Nova Scotia og British
Columbia.
Kœrur sem heyra undir löggjöfina skulu sendar í rituðu
formi til
Director of Industrial Relations,
Department of Labour, Ottawa.
Hon. MICHAEL STARR A. H. BROWN
Minister Deputy Minister
CANADA HELDUR HÁTIÐLEGT 10 ÁRA AFMÆLI
UNDIRRITUNAR ALHEIMS YFIRLÝSINGAR UM
MANNRÉTTINDI — 10. desember.