Lögberg - 01.01.1959, Blaðsíða 7

Lögberg - 01.01.1959, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 1. JANÚAR 1959 7 SOFFANÍAS THORKELSSON: Gaman er að ferðast Hver skilur heimþrána? — „Hún er raust, sem bergmál jafnan biður, / bunulind, sem komast vill að ós.“ Átthaga- þráin er sterk, hún biður, lyftir manni á hátind von- anna og laðar með blíðmæl- um, vakandi draumsýnum um unað, byggir brýr yfir allar torfærur og sléttar veginn. Hún sigraði mig. Ég lagði af stað ásamt konu minni og föggum í fjórðu ferðina heim 12. maí. Fyrsti áfanginn var til hinnar frægu olíuborgar, Calgary, sem hef- ur gert margan manninn rík- an með olíulindum sínum, en ekki miðlaði hún okkur neinu, en gistingu hlutum við þar í tvo daga og nætur í miklu yfirlæti hjá góðvinum okkar, Ragnheiði Schram Patterson og manni hennar Harry Patterson, miklum myndar- manni; er hann þriðji maður hennar, hefur hún þó við eng- an skilið fyrir dómstólum mannanna. Næsti áfanginn var til Win- nipeg. Þar átti ég heima í 49 ár, bar hita og kulda dagsins, frá 105 til 48 gráðu kulda fyrir neðan zero, sem mun vera 70 gráðu frost; en þrátt fyrir það leið mér þar vel. Þar átti ég margs að minnast, og mörgum góðum og gömlum vini að kynnast að nýju. Margir höfðu horfið þau 11 ár, sem ég hef verið á Vancouver- eyjunni. Nokkrir flutt bú- ferlum úr bænum, en þó miklu fleiri í kirkjugarðana. Þar var gamla verksmiðjan mín starfandi af fullum krafti sem fyr, og margt af mínu gamla vinnufólki, sem alltaf hefur verið mér kært fyrir langa og góða þjónustu við mig og son minn Paul, sem hefur átt hana og starfrækt af miklum dugnaði síðan ég flutti frá Winnipeg. Vorum við gestir þeirra hjóna á þeirra ágæta heimili. 1 Winnipeg undum við okk- ur vel. Hún er ein hinna við- kunnanlegustu borga, sem við höfum komið í, þó byggingar séu þar ekki háreystar, en götur eru breiðar og öll um- ferð greið, enginn hamagang- ur og troðningur, fólkið yfir- leitt viðkynningar betra og félagslyndara, en við höfum átt að venjast síðan við fórum þaðan. Frá Winnipeg fórum við eftir átta daga dvöl til heims- borgarinnar miklu, New York, og vorum þar í þrjá daga. Mest af tímanum þar var ég sporgöngumaður konu minn- ar í stærstu búðunum, meðan hún var að velja sér enn fleiri kjóla og orðlofs pinkla til ætt- ingja sinna á Islandi. Hef ég oft skemmt mér betur. Ég hef aldrei kunnað við mig í New York. Mér finnst ég verða svo óendanlega smár í þeirri geisistærð, sem þar er á flestu, og öll umferð yfirtaks tafsöm og þreytandi. Við fórum að skoða hinar miklu og fögru byggingar Sameinuðu þjóðanna; eru þær stórfenglegar og fagrar, en því miður voru þar þá engir fundir. En þar var margt um manninn og góð regla á öllu og fyrirgreiðsla hin bezta. Engum sem til New York kemur má gleymast það, að leggja leið sína til bygginga Sameinuðu þjóðanna, þar er svo margt og merkilegt að sjá, sem seint mun gleymast þeim, sem gefa sér tíma til að sjá það. Við áttum víst að fara með Loftleiðum til Islands á sunnu daginn þann 25. maí, en töfð- umst einn dag, því mér hafði yfirsést sem oftar að láta skrifa á vegabréf okkar. Vest- ur-lslendingar verða að sæta sömu kjörum sem aðrir út- lendingar, sem til Islands fara, að hafa fullkomin vegabréf. Vegna þess urðum við að bíða næsta dags. Var það hrein til- viljun, að við fengum sæti í flugvélinni þá, eða með þeirri ferð, því altaf eru það fleiri, sem sækja um far en hægt er að flytja. Flugfélar Loftleiða rúma sextíu farþega og sex manna áhöfn, munu þær hafa farið sex ferðir á viku í sumar á milli New York og Evrópu- landanna. Vélar þeirra eru af eldri gerð og fara aðeins 200 mílur á klukkutímanum, eru 14 tíma milli New York og Reykjavíkur. Mér reyndist svo löng seta þreytandi, en öll fyrirgreiðsla á vélunum er hin bezta og ljúfmannleg- asta. Fargjald með Loftleið- um, er að mun lægra en með öðrum flugfélögum, en flutn- ingur þinn má ekki fara yfir 42 pund. Þó vélin færi hægt leið okkur vel á leiðinni og kom- umst lukkuleg heim til fyrir- heitna landsins á ákveðnum tíma. Fagnaði það okkur með glansandi sól og stinnings golu. En kaldur fannst okkur andinn hans, og var það auðfundið, að við vorum kom- in á annað breiddarstig á hnettinum. Okkur var fagnað af mörgu fólki á flugvellin- um, ættingjum Sigrúnar og góðvinum mínum, m. a. móður hennar, Agnesi Pálsdóttur, hún er 84 ára, ennþá ern og ber sig eins og hetja; henni hefur víst verið forvitni á því gömlu konunni að sjá t.engdasoninn, sem var næst- um því jafnaldri hennar. Guðsteinn Sigurgeirsson, bróðir Sigrúnar, og frú Ragn- heiður Finnsdóttir kona hans tóku okkur strax inn á heimili sitt og vorum við gestir þeirra þegar við vorum í Reykjavík. Leið okkur þar hverjum deg- inum öðrum betur, vorum þar eins og heima hjá okkur. Er það eitt meðal margra nýrra heimila í úthverfum bæjarins, stendur það á forkunnar fögr- um stað er gefur útsýn yfir mestan hluta Reykjavíkur- borgar. Á efri hæð hússins býr eigandi hússins, bróðir frú Ragnheiðar, Hjálmar Finnsson. Kynntist ég honum talsvert; hann er yfirmaður Áburðarverksmiðju ríkisins, leizt mér svo, að þar mundi vera réttur maður á réttum stað, enda valinn til þessa starfs af Vilhjálmi Þór, sem allir treysta öðrum fremur til glöggskygni. Fátt get ég sagt ykkur um verksmiðju þessa, annað en það, að hún er svo stórt fyrir- tæki, að mig undraði það, hafði ég ekki búist við að ég mundi nokkurn tíma sjá svo stórkostlegt verksmiðjufyrir- tæki á íslandi. Hún fullnægir vel þörfum landsmanna eins og stendur, ef hún fær nóga orku, en hana brestur nú í ár. Verður því framleiðslan ekki nægileg til að mæta eftir- spurn bænda. En það lagast þegar lokið verður við raf- magnsstöðina, sem verið er að byggja nú, en það verður ekki fyrr en á næsta ári. Hjálmar forstjóri sagði mér, að það væri nauðsynlegt að stækka verksmiðjuna, eftir- spurnin eftir áburði færi svo ört vaxandi; einnig væri brýn þörf fyrir fleiri tegundir áf áburði, en þá einu sem þeir framleiða nú. Ég álít það Grettistak, að koma upp slíku fyrritæki af svo fáum sem Is- lendingar eru. Þarna vinna yfir hundrað manns og allt Islendingar. Áburðarfram- leiðslan er efnafræðileg í strangasta skilningi. Þegar ég fór þaðan, varð ég snortinn af metnaði vegna þekkingar og dugnaðar landa minna, en það varð ég oft, er ég var að skoða verksmiðjur þeirra — nýju húsin, nýju skipin og það sem bændur höfðu afrek- að í túnrækt og byggingum síðan ég var heima 1940. Mér fannst það líkjast fallegum draum, en var þó áþreifan- legur virkileiki. Það sem fyrst og mest vakti athygli mína og undrun, er ég kom til Reykjavíkur, var stórborgarbragurinn, s e m kominn var þar á allt. Stór svæði höfðu verið byggð þar sem engin hús höfðu verið áður, og allt nýtízku bygging- ar hinar prýðilegustu, með mörgum íbúðum (blocks). Eina byggingu var verið að byggí3 UPP á 12 hæðir, og tvær 8 hæða háar, og einnig fjölda margar fjögra hæða, auk kjallara. Ennfremur mörg einbýlishús fyrir þá, sem höfðu haft efni á því. Sagði mér kunnugur maður, að í smíðum væru 14 hundruð í- búðir í bænum, og ekki mundi vera þörf fyrir svo mikinn húsakost á þessu ári, enda yrðu þær ekki alla fullgerðar á þessu ári. Mér virtust byggingar þess- ar vera framúrskarandi vel gerðar og traustar, vel til þeirra lagt af járni og sementi, allar steyptar, veggir, gólf og skilrúm; eik í glugga- og dyra-umgerðum, þykk ein- angrun innan útveggja. Einn galla sá ég á þeim, þó vand- aðar væru,- en hann er sá að stigar eru of brattir í þeim flestum. Flestallar íbúðirnar í einbýlis- og fjölbýlishúsum hafa steyptar útisvalir, prýðis vel gerðar og smekklegar, og öll múrhúðun jafnt utan húss sem innan var ágæt, betri en við eigum að venjast hér. Þökin höfðu þeir líka reynt að steypa, en því var alveg hætt, vegna þess að þeim hættir mjög við að springa. Næstum því öll þessi síðari tíma hús eru svo falleg, að svo víða sem ég hefi farið hef ég ekki séð önnur fallegri né betur gerð. íslendingar eru nú að byggja fyrir framtíðina. Þessi hús fara ekki fljótt úr móð, og ending þeirra er Örugg, þau endast fjölda margar kynslóðir. Það er ekki í Reykjavík einni, sem verið er að byggja þessi ágætu og vönduðu hús, þau er einnig að finna í flestum þorpum lands- ins, vítt og breitt, ekki eitt og eitt á stangli heldur fjölda þeirra , heilu göturnar. Byggingar þessar eru dýrar, mér virtist óvenjulega dýrar, því járn og sement er lítið dýrara á íslandi en hér, og verkalaunin stórum lægri. — íbúðir í þessum húsum eru seldar á 4 til 5 hundruð þús- und krónur, aðeins þrjú til fjögur herbergi auk eldhúss og baðs, sem eru í flestum tilfellum fremur smá. Við vorum tvær vikur í Reykjavík að skoða okkur um, heilsa upp á fólkið, þiggja kaffiheimboð og sitja veizlur, þar á meðal samsæti á Hótel Borg, er Svarfdælingar, bú- settir í Reykjavík, stofnuðu til, og annað í Oddfellow- húsinu, er Vestur-íslendinga- félagið í Reykjavík gekst fyr- ir til að fagna okkur, sem komin vorum að vestan. Þar voru margar ræður haldnar og mikið sagt, mikið log, ekki alt verðskuldað. Var ég einn meðal þeirra, er fékk nægju mína af því. Samsætið í Odd- fellowhúsinu var fjölmennt og fór mjög vel fram, stjórn- aði því okkar góðkunni pró- fessor, Finnbogi Guðmunds- son. Samsætið á Hótel Borg var fámennara, þar voru aðeins gamlir Svarfdælingar saman komnir; skemmtum við okk- ur vel hjá þeim og sátum við ein hjónin að öllu hólinu; fyrir því stóð gamall sveitungi minn, Svarfdælingurinn sem allir lofa, skólastjórinn og skólaeftirlitsmaðurinn Snorri Sigfússon. Finn ég til metnað- ar að vera skyldur manni, sem svo er vel kynntur. Frá Reykjavík brugðum við okkur til London til viku- dvalar þar. Þar hafði ég oft komið áður, en konan ekki, og alltaf skemmt mér vel. Þar er vissulega margt merki- legt að sjá, meðal annars forn gripasöfnin, sem hvergi eiga sinn líka. Englendingar hafa verið hagsýnir að draga að sér fornmuni úr öllum lönd- um og álfum heimsins og hafa kostað miklu til að koma þeim svo vel fyrir sem þeir hafa gert. Vonandi er, að þeir séu allir vel fengnir, heyrt hef ég þó að menn efist um það. En það skiptir þann, sem skoðar þá engu máli, hvort þeir eru stolnir, teknir með ofbeldi eða keyptir. Það er undur fróðlegt að skoða þessi söfn; þau sýna verklega menningu þjóðanna frá fyrstu tímum með undra mikilli ná- kvæmni. Mannvirki eru þarna mörg, á almannafæri, merkileg og fögur, frá ýmsum tímum, og byggingar forkunnar fagrar, einnig frá ýmsum tímum — ekki ein og ein á stangli með kofum á milli, eins og á sér stað víða í borgum Norður- Ameríku, heldur heilu göt- urnar svo langt sem augað eygir. Við segjum, að Englending- ar, sem til okkar koma vestur, séu seinir og silalegir verka- menn, en borgin London sýnir þess engin merki, að þar hafi verið höfð nein vetlingatök við að byggja hana; stök vöndun í verki, smekkvísi og lystræni lýsir sér hvarvetna í byggingarstíl hennar — það hlýtur hver maður að sjá. — Heimsborgin mikla, — New York, — hefur ekkert fram- yfir London, nema hæðina á byggingunum, og það tel ég stóran ókost. 1 London leið okkur vel. Englendingar hafa gott lag á því að fara vel með gesti sína. Flugfélagið Loftleiðir hafði vistað okkur þar á einu bezta gistihúsi borgarinnar, en þó var dvölin þar lítið dýrari en á miðlungs hótelum í Ame- ríku. Þaðan fórum við fyrr en við vildum; hafði okkur ekki enst tími til að sjá nema nokkuð af merkilegustu mann virkjunum þar, — en flug- vélin var komin og við hlut- um að fara með henni sam- kvæmt áætlun til ættlandsins aftur. Reykjavík er Róm íslend- inga. Þangað liggja allra leið- ir. Þar fæst allt, sem menn geta óskað sér, meyjarblíða og munir fagrir, enda dregur hún unga fólkið til sín úr öll- um sveitum landsins með undra afli. „Berið mig þangað sem slarkið er,“ sagði karlinn. Allan þann tíma, sem við vorum í Reykjavík sáum við ekki drukkinn mann eða slark á götum borgarinnar, og mjög óvíða var vín haft um hönd þar sem við komum; en þó kvað vínnautn vera þar mikil, og því miður heldur farið í vöxt, þrátt fyrir víð- tæka og ágæta starfsemi Góð- Framhald á bls. 8

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.