Kirkjublaðið - 01.07.1892, Blaðsíða 4

Kirkjublaðið - 01.07.1892, Blaðsíða 4
töluÖu með og móti bindindisaöferðinni til útrýmingar of- drykkju. Engar tillögur lágu fyrir. Fundi var slitið hálfri stundu eptir miðnætti. Sjera Stefán Thorarensen. fTil ekkju hans). Slá tóninn djúpt, svo ómi húsið hreina og hjartað svari: »Tómleiksstundu þessa jeg þekkti opt, á meðan hann fór að messa, hinn ljúfi, góði, og ljet mig eptir eina*. Slá vonar-tóninn, hugann láttu hressa það hymna-lag, sem nær til innstu meina; nú hallast sól að sölum öldureina: Guðs söfnuð er nú vinur þinn að blessa! Slá trúar-tóninn, líftón allra lýða, þá leiptrar stjarna, dagsins birtu skærri, á meðan nóttin nöpur er að líða. Slá eZsÆM-tóninn, djúpa, himnum hærri, sem helið vorrar jarðar á að þíða, og þá er ávallt einkavin þinn nærri. Matth. Jochwn88on. ------------- Um fjelagsskap i kirkjufjelaginu. Án þess að fara nokkuð út í það, hvað málefni það, sem skólamaðurinn hóf fyrst máls á í okt.bl. »Kbl.« f. á., hefir grætt við það, er fyrst jeg og síðan prófastur síra Þórarinn Böðvarsson höfum um það skrifað, vil jeg að eins stuttlega láta meiningu mína íljósi um það, sem minn háttvirti bróðir segir um unglingafjelög þau, er jeg hefi haldið fram að framför væri í að stofna, og það, sem hann í sambandi við það talar um »fjelög í kirkjufjelag- inu«.— Jeg tek það fram, að jeg sendi ekki »Kbl.« línur þessar til að svara athugasemdum hr. próf. um ritkorn mitt, eða til að gjöra athugasemdir við hans athugasemd-

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.