Kirkjublaðið - 01.07.1892, Síða 6

Kirkjublaðið - 01.07.1892, Síða 6
118 ans fleygja stöðugt nýjum öldum inn í hugsunarlíf mann- anna; hver lærdómsaldan rekur aðra með nýjum og apt- ur nýjum boðskap. Hinn óendurfæddi mannkynsandi leit- ar að nýjum og öruggari ástæðum fyrir efablendni eða vantrú sinni. Vantrúarstraumarnir taka nýjar stefnur og breiða sig út í ýmsum myndum, og ungir og gamlir, lærðir og ólærðir, verða á vegi þeirra. Hinn óendur- fæddi mannsandi vill allt annað en kristindóm. Hans boð- skapur heitir framrás, heimsmenning, »humanitet« (mann- úð) o. s. frv., og sem eðlilegt er, er hjer engum eins mikil hætta búin sem hinni uppvaxandi kynslóð, og hættan er því meiri, sem heimurinn opt fær framúrskarandi krapta og hæfilegleika í sína þjónustu. Það má nú að visu segja, að vantrúarstraumarnir fari hægt hjá oss, það eru mest undirstraumar, en öndvegissúlur hinnar vantrúuðu heims- menningar eru ef til vill á leiðinni, og sumstaðar hafa þær rekið á land, svo allan varhuga þurfum vjer að gjalda þeim. En því meir sem heimurinn starfar mbti Krists kirkju, því margbreyttari nýjungar sem fram koma í gleðiboðskap holdsins, því starfsamari verður kirkjan að vera. Eptir mótstöðunni verður hún að haga fram- sókn sinni. Því fastákveðnari sem fjelagsskapurinn er í heimsins þjónustu, því ákveðnari fjelagsskap verður kirkju- fjelagið að beita í smáu og stóru. Ef nú sá fjelagsskap- ur, sem þar er stofnaður, er í sannkristilegum anda, ef hann fram kemur og myndast samkvæmt þörfum og kröf- um tímanna, sje það hans mark og mið, að upplýsa og staðfesta kristna menn i trúnni og að kenna þeim að vinna saman í einum kærleiksanda, þá hlýtur slíkur fjelags- skapur að vera máttarstoð kristindómsins. Það er svo langt frá því, að kirkjufjelagið hafl ýmigust á honum, að það miklu fremur tekur við honum með feginshendi og styður hann og eflir á allar lundir. Hann bendir ekki á annað, en andlegan þroska kirkjufjelagsins sjálfs. Þó að þessi fjelagsskapur kunni að vera nýr 1 kirkjufjelagi voru, já, þó hann hafi aldrei heyrzt á voru landi Islandi, þá á ekki við að hrinda honum frá sjer sem nýmóðins og útlendum, ef menn vita, að hann hefir verið kristin- dóminum til stuðnings og eflingar í öðrum landskirkjum.

x

Kirkjublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.