Kirkjublaðið - 01.03.1893, Page 15
ina«. I ljóðabókinni er ab sönnu sagt, að hann haíi ort hana, þeg-
ar hann sá, ai) sálmum þeim, er hann hafði sent til bókarinnar,
hafði yerið breytt at) honum fornspurðum. En Tómas bóndi Tóm-
asson á Hvalnesi á Skaga, skilrikur maður og skáld, dáinn hálfní-
ræður 1866, sagði mjer einu sinni, að sjera Jón hefði sjálfur sagt
sjer, að breyting M. St. á öðru versi í sálminum nr. 270 í sálrna-
bókinni hef'ði verið svo afleit, að hann hefði ekki getað stillt sig
um að yrkja þennan kveðling, án þess að bugsa úti, að af honum
hlytist sú rimma sem varð.
Það er auðsjeð af' ljóðabókinni, að Jón Sigurðsson hefir ekki
vitað af þessari breytingu, því þar er sálmurinn prentaður eptir
messusöngsbókinni, og 7 skálda nefndin heflr ekki vitað það held-
ur, því enn er sálmurinn nr. 368 í nýustu bókinni með breytingu
Magnúsar, næstum óbrjálaðri.
Sjera Jón sýndi Tómasi versið, eins og hann hafði ort það, og
sagðist hann hafa skrifað það hjá sjer, og inn í sálmabók sína
þegar hann kom heim; það gjörði jeg líka, og er nú ef til vill sá
eini, sem veit hvernig það var upphaflega. JÞess vegna finn jeg
mjer skylt, að láta það loksins koma fyrir daginn, eins og það var
ort af sjera Jóni, svo smekkleysan í annari hendingu tilreiknist
honum ekki lengur. Það var þannig:
fMig þó heimsæki marglold nauð
og meinsemd líkamans,
þó daglegt hljóti að bresta brauð,
svo bannist nauðþurft hans,
raskast þó ei mín hugar-hægð,
hef eg allskonar gæða nægð
í faðmi frelsarans*.
Ó. S.
-----3S6------
Sunnanfari og háskólavonin.
Sunnanfari flytur i síðastkomnu blaði sínu (febrúar) myndir af
merkisprestunum sjera Stefáni Thorarensen og sjera ísleifi Gísla-
syni, sem önduðust f. á.
Því er sízt að neita, að blaðið hefir sýnt klerkdóminum íslenzka
fuilan sóma, með því að flytja myndir og æfisögur helztu manna
kirkjunnar, er nú eru uppi, þeirra Hallgríms biskups, sjera Helga
lektors, sjera Þórarins og sjera Jóns Bjarnasonar í Winnipeg, auk
þess hófst blaðið með mynd Pjeturs heitins biskups og hefir nýlega
flutt einkar-góöa mynd af Guðbrandi biskupi.
Sf. tók nokkuð óstinnt hinni hógværu athugasemd Kbl. við
kvæði Þ. E. um Örlög guðanna; en eigi hefir jSbl. síður úr öðrum
áttum fengið þungar ákúrur fyrir hógværðina. Kbl. hefir engu að
bæta við athugasemd sína við kvæðið, nema benda hinum heiðruðu