Kirkjublaðið - 01.07.1893, Qupperneq 1
mánaðarrit
handa íslenzkri alþýðn.
III
RVÍK, JÚLI 1893.
8
Alþingissetningarsálmur 1893.
Nú alþing enn vjer setjum
á alvarlegri tíð,
og hverjir aðra hvetjum,
að heyja dagsins strið.
Oss enn þá ættjörð kallar
tii alþings dýru hallar,
að setja lög með dug og dáð
og drengskap fyrir fósturláð:,:
Vor fátæk fósturjörðin,
ó, faðir, treystir þjer,
að gjörvöll lagagjörðin
að gagni verði sjer.
Með lögum land skal byggja
og lýðum heillir tryggja,
:,: og framför efla, dáð og dug,
en deyfð og löstum vísa’
á bug:,:
Það enn er allt of víða,
sem endurbæta þarf;
ó, faðir landa’ og lýða,
vort laga blessa starf.
Þú einn kannt lög að laga,
svo lýðum megi haga,
:,: því lögin þín, vor herra hár,
æ haldast ný um eilíf ár:,:
Oss lát þinn anda leiða,
ó, ljóssins faðir, nú
og sundrung allri eyða
með ást og von og trú.
Vorn blessa konung kæra,
og kristindóminn skæra
:,: lát iýsa yfir land og þjóð,
þá lánast mun oss framtíð
góð:,:
Svo alþing enn vjer setjum
í alvalds nafni nú,
og enn hver annan hvetjum
með ást og von og trú,
með lögum land að byggja
og lýðum heillir tryggja,
:„ og framför efla, dug og dáð,
og Drottins byggja allt á náð:,:
L. H.