Kirkjublaðið - 01.07.1893, Page 7

Kirkjublaðið - 01.07.1893, Page 7
119 hið minna ljósið til að ráða nóttunni, þar að auki stjörn- urnar o. s. frv.«. — Fimmti dagur: Enn þá gátu að eins kóraldýr haft bústað á yfirborði jarðarinnar, nokkur stór dýr og fisk- tegundir, skeldýr, skríðandi og fljúgandi nöðrur voru og skapaðar— v. 20.—22.: »Vötnin úi og grúi af lifandi skepnum, og fuglar(?) fljúgi yfir jörðina undir himinsins festingu o. s. frv.«.— I hinum hebreska texta stendur: »fijúgandi skepnur« ekki: »fuglar«. Sjötti dagur: Smátt og smátt festist og þornaði yfir- borð jarðarinnar. Úr vatninu, er fyr var gruggugt, hafði skolast kalk og leir, og það var orðið hreint. Hinn blóm- legi jurtagróður hafði dregið til sín megnið af kolsýru gufuhvolfsins, og loptið var orðið hæft andrúmslopt fyrir æðri'skepnur útbúnar liffærum. Hinar upprunalegu plöntu- og dýramyndir þróuðust samkvæmt hinum breyttu lífs- skilyrðum. Skapaðar voru nýjar skordýrategundir, fuglar, spendýr og síðast maðurinn — v. 24.—31.: »Jörðin fram- leiði lifandi skepnur eptir þeirra eðli, fjenað, skriðkvik- indi o. s. frv. Og Guð sagði: vjer viljum gjöra manninn eptir mynd og líkingu vorri o. s. frv.«.— Hjer er ekki einn einasti liður, er eigi sje í hinu ná- kvæmasta samræmi við náttúruvísindin. Að eins má eigi skilja orðið »dagtir« bókstaflega, en það þýðir mjög langt tímabil, sem er samkvæmt orðum ritningarinnar: »Þús- und ár eru hjá Drottni sem einn dagur«. Þýtt hefir úr »Fra Bethesda« V, 16. St. M. J. -----3SS----- „Upplestur” eða „tala”. í grein sjera Hafsteins Pjeturssonar í Kbl. III, 7 með þessari yfirskript er sumt, sem mjer finnst að jeg þurfi að gjöra athugasemdir við. Ekkert af grein minni um prjedikunaraðferð presta * Kbl. III, 1. er ritað gegn ritgjörð sjera Hafsteins um sama mál í Aldamótum 1891, þó að svo hittist á, að skoð- anir okkar í þessu atriði sjeu nokkuð sín á hvern veg. Það var því engin von til þess, að jeg reyndi að lirekja

x

Kirkjublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.