Kirkjublaðið - 01.07.1893, Qupperneq 14
126
þjóðkirkju 18. maí 1843 gengu rúmiega 400 prestar og'
hálfu fleiri öldungar eða safnaðarfulltrúar, með sjálfum
íorseta kirkjuþingsins í broddi fylkingar, út úr fundar-
salnum til annars samkomustaðar og stofpuðu fríkirkjuna.
Alls urðu það 474 prestar sem sögðu af sjer embættum
í þjóðkirkjunni og slepptu árstekjum, er námu 100,000
pundum, eða tæpum 2 miljónum króna. Iíelzti maður frí-
kirkunnar var dr. Chalmers, sem getið hefir verið stund-
um hjer í Kbl., og væri vel maklegur æfisögubrots við
tækifæri. Hann varð fyrsti forseti hins nýstofnaða fje-
lags, og viturlegri stjórn hans var það mest að þakka, að
fríkirkjan klauf fram úr fjárhagslegum vandræðum og
öðrum hættum og torfærum. Vitanlega hötðu kirkju-
þingsmennirnir að bakskildi brennandi áhuga safnaðanna,
fyrsta árið gáfust 3—4 miljónir króna. Kirkjur og skólar
risu upp og loks ný prestssetur. Nú eru 1122 prestar í
embættum hinnar skozku fríkirkju. Tekjur kirkjunnar
eru nú 600,000 pund á ári og hún leggur af mörkum
100,000 pund til kristniboðs.
Tilefnið til skilnaðarins var aðallega rjettur safnað-
anna til að kjósa presta sína. Skozka kirkjan hafðiþann
rjett skýlausan frá siðbótartímanum, en ýmsar tvíræðar
lagaákvarðanir höfðu takmarkað þann rjett, og loks var
reynt að traðka honum á ýmsan hátt og dómstólarnir
gengu á móti safnaðarfrelsinu og eptir hið svo nefnda
10 ára stríð varð aðskilnaðurinn.
Biskup vígði kirkju að Kálfatjörn 11. f. m. Húsið er vand-
að og mikln musterislegra en tíðast gjörist hjá oss. Yflrsmiður
var Guðmundur snikkari Jakobsson. Kirkjan er stórskuldug og
munu væntanleg samskot meðal sóknarmanna, sem hafa sjálfir fjár-
hald kirkjunnar, og hefir sóknarnefndarmaður Guðmundur Guð-
mundsson í Landakoti hyrjað þau mjög svo höfðinglega með því
að gefa 300 kr., og að auki heita því, að leika framvegis ókeyp-
is á organ kirkjunnar, sem til þessa heíir verið borgað með 50 kr.
á ári.
Vígsluathöfninni er lýst í Isafold XX, 38.
Kosnir eru í Hólmum í Eeyðarfirði aðstoðarpresturinn þar
sjera Jóhann L. Sveinbjarnarson með öllum atkvæðum, og í Holta-
þingum kand. Ofeiqur Vigfússon.