Kirkjublaðið - 24.12.1893, Qupperneq 8

Kirkjublaðið - 24.12.1893, Qupperneq 8
228 »Hlýddu — og muntu lifa!« Það var krafa lögmálsins, sem enginn gat uppfyllt. Það var hin horfna Eden, sem hann fjekk að sjá, en ekki skoða; hann fjekk að vita hvað það var, sem hann þráði, fjekk að sjá það sem hann gat aldrei náð, að sjá yfir um, en ekki að Itoma yfir um. Dauðahafið var á milli. Dauðans haf, sem enginn var þá fær um að stíga yfir, lukt gljúfrum og hengiflugum, þögult sem gröfin, dimmt eins og nóttin, geigvænlegt eins og óvissan. Hvernig á jeg að komast yfir dauðans haf? Hingað yfir til hins fyrirheitna lands? Rís mjer engin von, rennur mjer engin huggun, eng- in stjarna, engin sól, hjerna megin við Dauðahafið? Jú, lof sje Guði, hjerna megin eru Betlehemshæðir, hjerna megin Síon, hjerna megin Olíufjallið, hjerna meg- in Golgata. Já, á Betlehems ófrjósömu, grýttu hæðum, sje jeg fyrst dagsbrúnina renna. »Ó, þú Betlehem Effrata!« Þaðan átti að koma sá, se'm konungarnir og keisar- arnir í allri sinni dýrð, og kotungarnir og þeir aumu í allri sinni örbirgð beygja sín hnje oghöfuðfyrir og segja: »Blessaður sje sá, sem kemur í nafni Drottins«. Þar sje jeg dagsbrún renna, dagsbrún vonarinnar, trúarinnar og kærleikans. Ejallið Móría sveipast hinum fyrsta dagsbjarma — gylling morgunroðans sveipar mjúkum gullskýjakransi um tindinn á Nebó, fjalli dauðans. Það kastar geislum ofan í sjálft Dauðahafið. Og á Betlehems hæðum sje jeg standa unga, yndis- fagra mey, fegri, hjartanlegri, elskulegri en allt annað. Og er það ekki von að hún sje svo, mannkynsins lifandí von, mannkynsins önnur móðir, Maria! Og i fanginu heldur hún á barninu —- barninu ný- fæddu, látlausu, brosmildu. kSólin renrnir upp! En það er ekki þessi daglega himinsunna, sem þreyt- ir sitt skeið yfir himinhvelið á einu dægri, írá birtingu

x

Kirkjublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.