Kirkjublaðið - 01.03.1894, Síða 4
36
undir eins hitt, hversu Guðs opinberun er eins görnul og
sólarljósið á vorri jörð og eins víð og veröldin:
Einn heiðinn höfðingi frá Indiandi mælti svo: ,>í
nafni þriðjungs mannkynsins, í nafni hinna nærfelt 500
milljóna trúarbræðra minna, lærisveina hins ljúfa lávarðar
vors, Búddha — G-átama, færi jeg kærustu þakkir forseta
þessa þings fyrir hans stöku mildi og umburðarlyndi.
Bræður mínir og systur, borin í iandi frelsisins, þjer hafið
nú lært að þekkja trúarskoðanir þær, sem systkini yðar
á Austurlöndum fylgja. Lærið nú að hugsa og álykta án
hleypidóma, lærið að elska allar verur, sakir hins eilífa
kærleika, lœrið að játa yðar sannfæring án yfirdreps-
skapar, lærið að hegða yður ráðvandlega og hreinferðis-
lega, þá mun sannleikans ljós yður upplýsa«. Spekingur
hinnar fornu Sinto-trúar mælti: »Þetta trúarþing er hinn
mesti viðburður veraldarsögunnar, og höfuð-sæmd er það
allrar minnar æfi, að hafa mátt mæta hjer, útrjetta þessa
mína hönd og í auðmýkt votta mínar hugsjónir, sem þjer
og með velþóknun hafið á hlýtt. Ósk míns hjarta er nú
sú, að fulltingja yður eptir mætti í yðar mikla verki,
að stofna allsherjar bræðralag undir því eina sannleikans
eilífa þaki. Þjer vitið, að einingin er afi allra fram-
kvæmda. Jeg, sem eingöngu tala tungu Japans-þjóðar,
jeg má allt að einu styðja þetta mikla fyrirtæki til sig-
urs. Til þess að mæta hjer, þurfti jeg ótal erfiðleika að
sigra. Óvíst er, hvort mjer auðnast optar, að líta nokk-
urn yðar, en svo hefir mikill unaður og fögnuður tyllt
sálir vorar yfir fjelagsskap vorra funda, að jeg gleðst í
voninni um líka samfundi og fjelagsskap í öðru lífi!«.
Kínverskur höfðingi (mandarín) mælti: »Svo sem fjelagi
þessa þings, finnst mjer allar trúaðar þjóðir vera mínir
vinir. Og nú hefi jeg einnar bónar að biðja hið ameríska
fólk, að það vildi breyta svo við landsmenn mína, eins
og það hefir nú breytt við mig. Já, mig tekur hundrað
sinnum sárara til þess, en mín sjálfs. Meiri hluti þeiri'a
er löghlýðið fólk. Kristur kennir oss, að ekki sje nóg,
að elska einungis bræður sína. Jeg er þess fullviss, að
guðræknu fólki þykir ekki þessi bón mín úr hófi fara«.
Anuar Asíu höfðingi mælti þessi fögru orð: »Þú mikla