Kirkjublaðið - 01.03.1894, Side 8
40
er hógvær og af hjarta lítillátur, hann kom til að þjóna
öðrum oð gefa út líf sitt til lausnargjalds fyrir marga.
0g Giuðs andi, hinn heilagi andi, hann er eins og
sólin á himninum, hann er líf og ljós mannkynsins, hann
verkar í öllu og gjörir vilja yðar göfugri og áform yðar
helgari.
í einu orði: Guð kristinna manna er kærleikans
Guð, hann birtist í kærleiksverkum. Hver sá maður,
sem þekkir hann rjett, hlýtur jafnframt að elska hann
Og því er það aðalboð krístindómsins og kjarni lögmáls-
ins og þess, er spámennirnir hafa kennt og ritað, að vjer
elsJcum Guð af öllu Jijarta og náungann eins og sjálfa oss;
því að náungi vor er barn sama föður, hann ber merki
Guðs á enni sjei- eins og vjer, hefir sömu þarfir og óskir
og sömu ákvörðun.
Ef kennifeður vekja athygli áheyrenda sinna á þessu
og innræta þeim það með heitu hjarta og þeirri alvöru-
gefni, sem er samfara óbifanlegli sannfæringu, þá munu
þeir optast nær ná takmarki sínu, því takmarki, að verða
yður til sannrar uppbyggingar, að þjer öðlist hið sama
lunderni, sem var í Jesú Kristi. Því að það er ekki skyn-
semin ein, sem þeir eiga að fræða. Með þessum hætti
verður fræðsla þeirra það sem hún á að vera, ekki tómt
sólskin, sem hrekur skýin frá augum skilningsins, heldur
líka frjófgandi regn fyrir hjörtu yðar. Og þegar slíkt
regn og sólskin skiptist á, þá vaxa frækorn hins eilífa
lifs á sífrjóum akri.
En — eigi kennifeðrum yðar að verða nokkuð ágengt,
þá verðið þjer, foreldrar og húsfeður, að hjálpa þeim eptir
megni, allir þjer nánustu kennarar hinna ungu og óreyndu,
sem eru yður á hendur faldir. Ef þjer getið sjálfir leið-
beint þeim fyrst framan af, þá verður það affarabezt.
Og fagurt er að sjá foreldrana safna smælingjum sínum
kring um sig á vetrarkvöldum, og heyra þá kenna þeim
fyrstu stafina í stafrófi náðarlærdómsins, þar sem móður-
leg bliða og föðurleg reynsla hjálpar eptirtekt og skiln-
ingi hinna ungu sálna. Það er fagurt að sjá og heyra,
þegar foreldraástin gjörir börnunum skiljanlegan kærleika
Guðs, þegar foreldrarnir útlista sambandið milli Guðs og