Kirkjublaðið - 01.10.1894, Blaðsíða 16

Kirkjublaðið - 01.10.1894, Blaðsíða 16
192 Auglýsing frá ritstjóra Kbl. til presta og annara, sem blaðinu unna. Það er ekki annað sýnna, en að Kirkjublaðið verði að leggjast niður vegna vanskila og áhugaleysis. Mig vantar enn um 200 kr. fyrir tvö hin fyrstu ár, til að íá útlagða peninga, fyrir árið sem leið vantar um 300 kr., og af væntanlegum kostnaði þessa árs er greidd- ur þriðjungur, en um það er eigi að fást. Tala þeirra útsölumanna skiptir tugum, er eigi hafa gjört skilagrein fyrir 2 fyrstu árgöngunum. Með öllum póstunum núna síðast og öilum aðkomu- mönnum til Reykjavíkur síðari helming semptembermán- aðar hafa blaðinu borizt einar 11 — elleíu — krónur, en fjöldi uppsagna. Jeg reyni, ef lifi, eitt árið enn; nái þá blaðið eigi að bera sig, að útsendingar-vinnukostnaði með töldum, hætti jeg. Jeg minnka eigi blaðið, nje gjöri fráganginn ódýrari, jeg þigg engan fjárstyrk og þýðist engan útgáíuíjelags- skap; vilji hinir sjálfkjörnu styrktarmenn blaðsins eigi halda lífinu í því í þeirri mynd, sem það fær hjá mjer, þá gef jeg það frá mjer, þegar jeg hefi lagt til þess 5 ára misjafnlega þakkað starf, og 500—1000 kr. úr eigin vasa. Til eins vil jeg mælast af útsölumönnum, sem fengið hafa ofsent undanfarið, að þeir láti mig vita fyrir nýár hina rjettu tölu. Útsölumönnum og einstökum kaupendum, sem eigi hafa gjört skil, að minnsta kosti fyrir 2 fyrstu árunum, verður blaðið eigi sent frá næsta nýári. Nýir Tcaupendur, sem senda borgun fyrir nœsta ár fyrir fram beint til ritstjóra og burðargjald að auki fá ókeypis álla 4 fyrstu árganga Kbl. og 10 nr. af Smáritun- um. Senda verður þá 2 kr. og 50 a. hjer innanlands og 1 dollar frá Ameríku fyrir 5 árganga, (árin 1891—95). Þetta boð mitt stendu'r eigi lengur en til janúarloka næsta ár. Reykjavík, 2. okt. 1894. Þórhallur Bjarnarson. RIÍSTJÓIU: ÞÓRHALLVB BJARNARSON. Prentaö 1 ísafoldar prentsmiöju. Reykjavik. 1884.

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.