Kirkjublaðið - 01.05.1896, Qupperneq 4

Kirkjublaðið - 01.05.1896, Qupperneq 4
84 verður dýpra að grafa og lengra að leita, en í sögu hínna einstöku viðburða, sem minnstu ná af lífi lausnarans. Við erum báðir, jeg og þú, eins og postulinn Páll, við höfum aldrei þekkt Krist »eptir holdinu«, við höfum aldrei tekið í hönd honum, við höfum aldrei litið hið göfugmannlega og blíða andlit hans, við höfum aldrei hlustað á tal hans. En þó getum við þekkt hann óend- anlega miklu betur en samtíðarmenn hans, er heyrðu hann og sáu. Við getum þekkt hann eins og postulinn Páll þekkti hann. Hvernig þekkti postulinn Páll hann? Hann lýsir því sjálfur svo áþreifanlega og rainnilega: »Guði þóknaðist, að opinbera son sinn í mjer« (Gal. 1, 15). Það má hugsa um Krist á tvennan hátt. Vjer getum hugsað oss hann eins og raann, sem lifði í 33 ár, fyrir 19 öldura; vier getura fest oss 1 huga og miuni alla hiua kunnu viðburði hins dýrðlega æfiferils lians, alveg á sama hátt og hina undurfögru frásögu Platós um hinar efstu stundir Sókratesar. Slík umhugsun um líf Drottins vors er harla fögur, vekjandi og göfgandi, en þó tekur hún eigi allart hug vorn fanginn, 19 langar aldir með sínum mörgu og rniklu breytingum og byltingum bera skugga í milli vor og myndarinnar, hún festir sig ekki innst og dýpst í eðli voru, það er allur annar vegur til að hugsa um Krist. Vjer verðum að hugsa oss hann, sem hinn lifandi Krist, sem hinn upprisna Krist, sem »allt lifir, hrærist og er 1«; vjer verðum að hugsa oss Krist lifaadi í oss og lifandi í sjerhverjum manni, með síverkandi á- hrifavaldi á allt vort líf. Þessi mynd af Kristi var ein- mitt það, sem Páll postuli kallaði »sitt evangelíum«. Það var leyndardómurinn, sem Guð opinberaði allra fremst og fyrst í Páli postula, og þá einnig í oss fyrir hans orð. Það er lausnin áráðgátu tilverunnar, á leyndardómi syndar, pínu og dauða. — »Kristur í yður, von dýrðarinnar« (Kól. 1, 27). Lolaðu mjer að sýna þjer, hvernig allt ljómar í nýju ljósi við slika skoðun á Kristi. Alveg nýlega kom ein af hefðarfrúm Lundúna tíl einnar líknarsystur vorrar1. i) Kona höí'undarins veitir forstöðu afkastamiklu líkuarljelagi kverma í einu fátækasta bæjarhverfi Lundúna.

x

Kirkjublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.