Kirkjublaðið - 01.05.1896, Side 6
86
guðlegi leyndardómur, þannig opinberaður, »von dýrðar-
innar«, og geislum eiKfrar gleði stafaði á hina myrku
œfibraut hennar.
En það er fyrir yður öllum sem fyrir þessarí konu.
Lofið mjer að skýra þetta með alkunnu og einkar merku
dæmi úr sögu visindanna frá þessari öld. í mörg ár
höfðu stjörnufræðingar veitt því eptirtekt, að Úranus,
yzta plánetan sem þá var kunn, hjelt sjer ekki við þá
braut sína, sem lærðir menn hugðu lögum bundna. Tveir
ágætir vísindamenn, annar enskur og hinn franskur, upp-
götvuðu það, hvor 1 sínu lagi og án þess að vita hvor
af öðrum, að það væri einhver ókunnur stór himinlíkami,
sem drægi Úranus til sín út af settri braut, og allir
stjörnuskoðarar voru beðnir að beina sjónaukum sinum í
þá áttinaí himingeimnum, þar sem væri að leita að þessu
ókunna afli, sem truflaði ganginn, og svo stóð eigi lengi
á því, að Neptánus fannst. Alveg er hið sama að segja
um það, að það er alls eigi komið upp hjá sjáifum þjer,
þegar hugur þinn leitar, en finnur eigi hvíld, þegar þig
langar til að verða góður maður, þegar öllu jafnvæginu
er raskað i huga þinum og breytni. Það er eitthvert
sterkt áhrifavald fyrir utan þig, sem veldur sliku. Það
eru áhrifin frá Jesú Kristi, það er persónuvald hans, sem
læsir sig um dýpstu rætur sálarlifs þins, kippir þjer úr
stað og dregur þig, dregur þig til sjálfs hans. Þjer er
jafn-ómögulegt að skilja sjálfan þig og líf þitt án Krists,
eins og það var ómögulegt að skiija gang Úranusar án
Neptúns. Það er mjög athugaverð setning hjá Xenófon
á einum stað. Honum fannst að hann hefði tvær sálir.
Það var alveg rjett hjá honum. Kristur var önnur sálin
hans. Kristur var hans betri maður. Það er lika saga
um gamlan dáta í franska verðinum; hann hafði fengið
kúlu í brjóstið og læknirinn var að reyna að ná henni:
»Skerið þjer bara nógu djúpt«, sagði hetjan, »og þá finnið
þjer myndina af keisaranum«. Vjer getum snúið þessu
við og sagt um hverja einustu mannssál: »Sker þú bara
nógu djúpt, inn að sjálfum hjartarótunum, á bak við allt
og undir öllu, i hinum huldu fylgsnum mannsverunnar,
munt þú finna Krist«,