Kirkjublaðið - 01.05.1896, Síða 14

Kirkjublaðið - 01.05.1896, Síða 14
94 tajög, hafandí kostaS á tiund i þúsund krónur. Óneitanlega góS- ir vextir af 1400 krónum í 4 ár; enda hafa þær verið settar á vöxtu í sjóði hins kristilega bræSralags. ÞaS er annars fyllilega þess vert, aS vakin sje athygli á hinni skörulegu framkomu SauS- árkrókssafnaSar gagnvart kirkju sinni. í hinum rausnarlegu fjár- framlögum hefir veriS tekinn svo almennur þáttur, aS talsvert mun vera fram úr því, er algengt gjörist. Engiini safnaSarmeS- limur var frásneiddur þeirri hluttöku. Einnig börnin gáfu sínar gjafir, og væru þau ung, gáfu foreldrarnir optast dálítiS undir þeirra nafni, svo aS allir gætu verið eitthvaS meS. Auk hinna beinu fjárframlaga, hafa flestir helztu karlar og konur safnaSarins lagt fram mikinn óbeinlínis styrk meS endurgjaldslausri starfsemi í hinum ýmsu nefndum, er kosnar voru til þess á ýmsan hátt að stySja kirkjubyggingarfyrirtækiS. SauSárkrókskirkjusöfnuður er langt frá því að geta kallazt ríkur, en meS allri framkvæmd sinni í kirkjubyggingarmálinu hefir hann greinilega sýnt, hversu ein- huga samheldni og bræðralag á furðanlega hægt meS aS framleiða þúsundirnar. ÞaS er ekki ávallt fátæktin einber, sem stendur gagnlegum og góðum fyrirtækjum fyrir þrifum. Um kirkjuna sjálfa er þaS að segja, aS hún stendur mjög framarlega í röð kirkna hjer á landi, að því er til allrar fegurðar tekur. AS vísu hvílir lítils háttar skuld enn þá á hinni nýju kirkju, en nú er hún líka fullbúin og hefir eignazt allflesta þá skrauthluti, sem vant er í kirkjum aS hafa. Þannig á hún fagra altaristöflu, sem áður hefir verið getiS í Kbl., og vandaS harmóní- um fjekk hún á síðasta sumri. Þá var kirkjan og máluð smekk- legum skrautlitum; þykir þaS verk hafa vel tekizt og miklum mun betur en áSur hefir sjezt hjer í kirkjum. Lýsingarfæri munu í engri kirkju landsins fullkomnari en í SauSárkrókskirkju. Er hún lýst upp meS tuttugu og fjórum olíulömpum. Hanga frá hvelfingu niður lampakrónur þrjár, ein í kór, sexörmuð, og tvær í aðalkirkjunni, fjórörmuð hvor um sig. Vegglampar eru 10 af sömu gerð og lamparnir í kórnum, 4 uppi en 6 niðri í kirkj- unni; allar eru krónurnar og vegglamparnir mjög skrautlegir og fagrir. Bera Ijós þessi hina skýrustu og þægilegustu hirtu. A næsta sumri verSa útvegaSir altarisstjakar í sama stýl og lamp- arnir. — RáSgjört er og að setja ofn í kirkjuna á næsta sumri, og verður hún að því búnu mjög inndælt og aSlaðandi guðshús jafnt á vetrum sem sumrum. Þetta er tekið fram fyrir þá sök, að mjög fælir ofnleysið og nístingskuldinn fólkið frá kirkjugöngum á vetrum; enda er það engan veginn láandi. — Búið er aS vá- tryggja Sauðárkrókskirkju,

x

Kirkjublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.