Kirkjublaðið - 01.08.1896, Blaðsíða 1
mánaðarrit
handa íslenzkri'alþýðu.
VI.
KVÍK, ÁGÚST, 1896.
9.
Guðs ríki er innra í yður.
Lúk. 17, ‘10.—23.
Guðs ríki kemur hægt og hljótt,
það helzt í skugga dvelur;
í leynum hjartans ljúft og rótt
það löngum stað sjer velur.
Þótt bert og bjart sje lopt,
það byrgt er mönnum opt;
þótt hjer sje hljótt um rann,
ei heyrast tiL þess kanu.
Það fyrir oss sig felur.
Það kemur ei með ys og þys
nje ofsalátum stríðum;
það keinur ei með ógnar-ris
og umbrotum og hríðum,
það hljótt með friði fer,
ei frama leitar sjer;
en allt þó megna má,
svo mikinn krapt það á
i kyrrðar blænum blíðum.
Menn á það sinni eigu slá
með að eins nokkrum vinum,
hjá öðrum mönnum ei það sjá
en eigin söínuðinum.