Kirkjublaðið - 01.10.1896, Page 1
mánaðarrit
handa íslenzkri alþýöu.
VI.
RVÍK, OKT.BR. 1896.
12.
Hversdagsstörf.
Eptir Wergeland.
Þjer gremst hve starf þitt óþekkt er,
en aldrei, maður, lærist þjer
að þekkja þína daga.
Þeir líða hægt, svo lítt ber á,
unz loks þeir hverfa’ í dauða-sjá,
sem Jórdan hljótt um haga,
svo hverfur öll þin saga.
En Jesús kom að Jórdans á, —
er Jóhannesi skirðist hjá, —
að Nil og Evfrat eigi.
Já, æfi þinnar leyndu lind
svo lát þú spegla Jesú mynd,
að hann á hverjum degi
æ hjá þjer búa megi.
Þótt hafir þu ei höfðingskjör,
í herrans nafni verk þín gjör;
hann greitt úr öllu getur.
Þá nógu stór þín æfi er,
ef ávöxt fyrir hcnum ber,
er allt hið innra betur
en ytri ljómann metur.
V. B.