Kirkjublaðið - 01.12.1896, Síða 1

Kirkjublaðið - 01.12.1896, Síða 1
mánaðarrit handa íslenzkri alþýðu. VI. RVÍK, DES.Bli. 1896. 14. Áskorun. Evangelisku trúarbræður! 16. febrúar 1497 fæddist Filipp Melankton í Bretten. Bráðum eru liðin 400 ár frá þessum dýrðlega fagn- aðardegi, og fjögra alda afmælisdagurinn gefur hinum mörgu miljónum evangelisk-kristinna manna nýja hvöt til þakklætis við Guð, sem eptir langt myrkur gaf kristni sinni á ný fagnaðarerindi sitt, og til endurminningar um hina dyggu votta, er hann gjörði að hæfum verkfærum náðar sinnar. En hver þeirra skyldi, að Lúther fráskild- um, standa nær til þess, að minningu hans væri í bless- un haldið á lopti, fyrst og fremst af sonum hinnarþýzku siðbótar, en því næst einnig af evangelisk-kristnum mönn- um meðal allra þjóða, heldur en Melankton, því að nafn hans er skráð gullnu letri á söguspjöld gjörvalls hins prótestantiska heims ? Að vísu þóttist hann ekki mega yfirgefa sitt kæra Vittenberg, þótt honum bj^ðist ný og álitleg staða á Englandi, Sviss, Frakklandi og víðar, en til hans streymdu úr öllum áttum stórir hópar námfúsra manna, ungra og gamalla, er gjörðust lærisveinar .hans og brugðu siðar upp ljósi guðlegs orðs og blysi evangel- iskra vísinda og evangeliskrar menntunar í átthögum sín- um; og hin mörgu ritverk hans og brjef breiddust út jafnvel til fjarlægustu landa og gjörðu þar marga að eld- heitum lærisveinum fagnaðarerindisins. Fjögra alda afmælishátíð Melanktons vekur á ný

x

Kirkjublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.