Reykvíkingur - 22.01.1892, Side 1

Reykvíkingur - 22.01.1892, Side 1
Blaðið fœst hjá út- gefanda. Afgreiðslustofa Reykvikings er nú 1 Bankastræti Nr.12. Reykvíkingur. n, i. Háttvirtu Reykvíkingar! Eins og við skýrðum yður frá í fyrra í fyrsta tölubl. þessa blaðs, að nokkrir menn hjer í bænum hefðu ráðizt i að stofna blað, sem eingöngu hefði bæjarmál Reykjavíkur fyrir umtalsefni, og reyna með því að vekja hinn áður sofnaða áhuga bæjarmanna til að fara nú að hugsa sjálfir um sig ogsínmál- efni, — við vorum enda svo djarfir, að benda ykkur á að slíkt fyrirtæki hlyti að vera mjög þýðingarmikið fyrir hinar sönnu fram- farir bæjarmanna, þar sem allir gætu nú þar með betur en áður látið kurteislega í ljósi skoðanir sínar um ýmislegt sem miður virtist hentugt í ýmsum bæjarmálum, bent á annað betra með stuttum leiðbeinandi rit- gjörðum, dæmt um aðgjörðir bæjarstjórnar- innar og hinna ýmsu nefnda, sem hafa á hendi opinberar sýslanir í bæjarins þarfir, og yfir höfuð allt í bænum sem miður virð- ist til hagað, — eins látum við nú yður vita, vorir heiðruðu meðborgarar, að við ó- kvíðnir höldum blaðinu áfram, með sömu stefnu og áður, og erum við vissir um, að það með tímanum ber happaríkan ávöxt fyrir vort borgaralega fjelag. En eins og orðtækið hljóðar, að ekki falli trje við fyrsta högg, eins var ekki að vænta, að þetta blað yrði að fullum tilætluðum notum hið fyrsta árið, þar sem máske klikkukeðjur, skyld- ugleiki og embættis stjettar bróðerni hafa rígbundið suma flokka saman sem rússneska aðalsmenn, en almúgirm hjer er heimsku- lega vanafastur, hálfvolgur en hvorki heit- ur nje kaldur, læst helst enga breytingu hjer á vilja, og teiur það ganga næst „Maje- stæts Forbrydelse11 ef fundið er opinber- lega að gjörðum einhvers meiri háttar, sem þeír svo nefna, en kveina og klaga í hljóði, hver í sínum kofa yfir þessu og hinu, sem þeim finnst miður til hagað. Vor fasti ásetningur er sá, að forðast allt manngreiningarálit, finna að því sem ábóta- vant virðist vera í bænum og benda á ann- að betra, hver sem í hlut á. Þess vegna er nauðsynlegt, að bæjarmenn sendi blaðinu stuttar ritgjörðir viðvíkjandi öllu mögulegu, sem ábótavant er í bænum, og munu þær Númerið kostar 10 a. verða teknar upp í blaðið meðan rúm leyfir. Þrátt fyrir áður upptalda annmarka (og marga fleiri), þá erum við þó glaðir að sjá hvaða ómetanlegt gagn blaðið hefur þó gjört. Það hefur fundið að mörgu sem lagfært hef- ur verið, og sem lagfært mun verða, upp- lýst um margt, sem áður var hulið, þó sumt það yrði ekki lagfært, sem á fyrri tímum var orðinn hlutur, en sem við höfum þó sýnt og sannað (þó bágt gengi), að er til viðvörunar þeim eftirkomandi. Það má eng- | inn hugsa sjer að við berum oss að sem ó- nýtur, huglaus sáralæknir, sem gefur inn sæta mixtúru við banvænu sári. Nei, við munum hugrakkir rista og skera í sárin, þar til hið banvæna er burt sniðið, með þeirri óbilugu sannfæringu, að geta heil- brigðað vort kaunum slegna borgaralega fjelag, og þó við hið liðna ár höfum lítið annað uppskorið fyrir að benda á það sem | óþolandi var, en vanþökk, hatur og næstum ofsóknir, þá bugum við ekki stefnu vora, þvi við vitum nú, að þeir einir, sem ekki þekkja eður vilja þekkja sinn vitjunartíma, | munu líta öðru vísi en vel á málefni vort, en sem betur fer eru þeir nú orðnir fáir, ! því það er ljósasti votturinn, að ekkert blað hefur eins marga kaupendur hjer í bænum i sem Reykvíkingur. Enn um slökkvilið bæjarins. — Eigi fellur eik yið fyrata högg“. — Um kvöldið 19. desember kom lijer eldur upp í litlu einloftuðu geymsluhúsi Þorsteins Tómassonar austur við lækinn; eldurinn kom af lampa sem hengdur var neðan í loftið, en hey var ofan á loftinu og um stund mannlaust húsið; á endanum varð þó eldur- inn slökktur. Það furðaði marga, hvað lengi var verið að yfirbuga svona Iítilfjörlegan eld, og hvað sprauturnar, sem voru í næsta húsi, komu seint, en nú, eins og oftar, liafði staðið á sprautuhúslyklinum, og þarnæst sá maður sjer til skapraunar nú sem fyrri hvaða hræðileg óregla, æfingarleysi og agaleysi er hjer í slökviliðinu, sem nú sýndi sig ljóst við þetta tækifæri, sem mátti heita (sem bet- Janúar, 1892.

x

Reykvíkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykvíkingur
https://timarit.is/publication/139

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.