Reykvíkingur - 01.03.1896, Blaðsíða 3
11
Bjarna Jónssyni cand. mag. og Kr. Ó. Þor-
grímssyni, um meðmæli til landshöfðingja
til að fá leyfi til að halda uppi sjónleikjnm
í bænum næstu 5 vetur. Ályktað að veita
meðmælin þannig, að leikfjelagið greiði í
bæjarsjóð 10 kr. eða 5 kr. fyrir kveldið,
eptir því, hvort það er eitt um leiki hjer
eða ekki. — 4. Kom fram beiðni frá Gísla
Þorbjarnarsyni búfræðing, um hækkun á
borgun fyrir mælingu á lóðum bæjarins, úr
150 kr. upp í 200 kr. gegn því, að hann
tilfæri á mælingarskýrslunum stærð mat-
jurtagarða, hvort sem eru erfðafestulönd eða
eigi; þar sem hjer er um breyting á fjár-
hagsáætluninni að ræða, var ályktuninni
frestað til næsta fundar. — 5. Thorvald-
sensfjelaginu leyft leikfimishús barnaskólans
til bannyrðakennslu í vor sem fyrirfarandi
ár. — 6. Brunabótavirðingar: Hús Einars
Árnasonar, Yesturgötu 4659,oo kr., skúr við
sama hús 132,oo kr., hús Eyjólfs Þorkels-
sonar Austurstræti 7971,oo kr. — Allir á
fundi. Fundi slitið.
6. bæjarstjórnarfundur, 19. marz.
1. „Sportfjelag Reykjavíkur“ sækir í brjefi
18. þ. m. um leyfi til að nota Austurvöll
í vor og sumar ókeypis til íþróttalegra
leikja meðal fjelagsmanna. Fjelaginu leyft
að nota í þessu skyni 2 nyrðri reitina á
vellinum, undir umsjón lögreglustjóra, að
völlurinn eða grasrótin í honum ekki spiil-
ist, og skyldi hún að öðrum kosti taka leyf-
ið af fjelaginu. — 2. Formaður lagði fram
skýrslu um, hvað kosta myndi að fá brunn-
gjörðarmann frá útlöndum (Khöfn) til að
leita hjer að vatnsbólum með borunarverk-
færum. Eptir skýrslunni mundi maðurinn
kosta um eða yfir 2000 kr., að minnsta
kosti, með því að dvelja hjer eina skipsferð
yfir (c. 6 vikur). Yar ákveðið að fresta
málinu um sinn í von um að fá nokkrar
frekari upplýsingar með næsta skipi (frá
dr. Þ. Thoroddsen). — 3. Erindi frá Fr. B.
Anderson um raflýsing í bænum var ákveð-
ið að gengi milli fulltrúanna til yfirlesturs
til næsta fundar. — 4. Alþingiskjörskrá
fyrir 1896—97 framlögð og undirskrifuð af
bæjarfulltrúunum. — 5. Síðari umræða um
hækkun borgunar til Gísla Þorbjarnarsonar
búfræðings fyrir mælingu á lóðum í bæn-
um. Var hækkunin samþykkt. — 6. Beiðni
firá Jóni Eiríkssyni og Jóhannesi Jónssyni,
sem hafa tekið að sjer, fyrir ákveðna borg-
un, að taka burtu klöppina fyrir sunnan og
vestan hegningarhúsið, um hjálp til að kaupa
púður til sprenginga. Bæjarstjórnin vildi
ekki sinna beiðninni. — Allir á fundi. —
Fundi slitið.
Iðnaður og sýningar.
Það er furða, hve nauðalítið er gert til
þess að koma iðnaði vorum í betra horf en
nú er, eða hve lítið er hlynnt að iðnaðar-
greinum vorum; ekkert er gert til upp-
hvatningar þeim sem við iðnaðinn fást, svo
að þeir vandi og læri verknað sinn betur;
þeir eru ekki einu sinni, opt og tíðum, látnir
njóta sannmælis um, að þetta og hitt sje
allvel af hendi leyst, hvað þá heldur að þeir
sjeu að nokkru leyti styrktir í efnalegu til-
liti, og þó eru — sem betur fer — margir
meðal iðnaðarmanna, sem vanda verk sitt
furðanlega eptir lærdómi og ástæðum.
Það sýnist ekki nema sanngjarnt og
jafnvel sjálfsagt, að hið opinbera styrkti lík-
lega, efualitla iðnaðarnámsmenn til utan-
farar, að minnsta kosti að einhverju leyti;
því það er margur af iðnaðarflokki vorum,
sem hefur hæfileika, en getur ekki efnanna
vegna leitað sjer fullnægjandi og fullkomn-
ari kennslu; ef þetta, eins og jeg tók fram,
getur orðið, þá er það fyrsta skilyrði til
þess að iðnaði vorum fari fram svo veru-
legt sje. Iðnaður hjer á landi verður allt
af’í smáum stíl, sem og náttúrlegt er, þar
sem fátækt og fámenni er svo mikið, en þó
gæti hann og ætti að vera í góðu lagi fyr-
ir því, ef meðul væru til þess og áhugi á
að bæta hann.
Iðnaðarmönnum er það sjálfum að kenna,
að þeir ekki hafa vakið máls á þessu, sem
sjálfkjörnir frumhefjendur þess; þeim ætti
þó ekki að standa á sama, hvernig iðnað-
ur þeirra er, og hvað sagt er um
hann; auðvitað má standa á sama, hvað
þeir menn segja, sem ekki bera nægilegt
skynbragð á að dæma um það, og sem leggja
dóm sinn á verk annara af illgirnislegum
hvötum eða öðrum svipuðum ástæðum; apt-
ur á móti eru þær aðfinnslur, sem byggðar
eru á skynsamlegum ástæðum, lærdómsrík-
ar. En sem sagt: iðnaður vor œtti að vera
svo &f hendi leystur, að vjer gætum mót-
mælt ýmsu með rökum, sem oss er borið
á brýn að miður fari.
Eins og flestum mun kunnugt vera, þá
eru víða haldnar iðnaðarsýningar um hinn
menntaða heim, og þangað er sent margt
það, sem listin og iðnaðurinn framleiðir, og
sjerstaklega eru það valdir hlutir, og nýjar
uppfundningar, sem þangað er sent; það
hlýtur því efalaust að vera mjög lærdóms-
ríkt og gagnlegt fyrir iðnaðarmenn að koma