Reykvíkingur - 01.02.1898, Blaðsíða 1
Afgreíðslustofa Reyk-
víkíngs er hjá útgef
anda, Aðalstræti
nr. 8, opxn hvern virk-
an dag allan. Nýir
kaupendur gefi sig
fram.
Reykvíkingur.
Blaðið kemur út eínu
sinui í hverjum mán-
uði og kostar í Rvík
i kr. um árið, út um
land og erlendis burð.
argj. að auki 25—5oa.
Borgist fyrir lok jiílí.
VIII, 2.
1. febrúar
1898.
Númerið
kostar ÍO a.
Líði ykkur öllum sem bezt.
Nú í þessurn mánuði, fer jeg eins og
vant er til útlanda, að velja mjer nýjar vöru-
byrgðir og þar sem kunningsskapur og vel-
vild, ríður nú orðið töluverðan baggamun
með það, hvar menn kaupa, þá vona jeg að
hinir heiðruðu skiptavinir mínir, nær sem
fjær, sýni mjer enn þá sömu velvild, sem að
undanförnu og kaupi hjá mjer það, sem þeir
geta fengið eins ódýrt og hjer hjá öðrum,
eða máske ódýrara. — í fjærveru minni hef
jeg svo undirbúið að „Reykvíkingur" heldur
áfram að koma út eins og að undanförnu.
Skyldu bæjarmenn, sem halda blaðið ekki fá
það, er það er borið um bæinn, þá gjöri þeir
svo vel og vitji þess í búð mína, sem er op-
in frá því snemma á morgnana, til seint á
kvöldin.
Dæmdir skuldaþrjótar.
í vor og í sumar, fjekk húsbyggingar-
nefnd iðnaðarmannahússins hjá mjer vörur,
sem numdu kr. 42,03 aurum. Eptir margar
árangurslausar tilraunir að fá þettað borgað á-
samt ýmsum skætingi, er jeg ijekkafþví að jeg
gaf þeim þettað ekki. Þá að lokum stefndi
jeg þeim herrum, Magnúsi Benjamínssyni,
sem formanni húsbyggingarinnar og Matthí-
asi Matthíassyni, sem þáverandi formanni
fjelagsins, og samnefndarmanni M. B.s.
Með undirrjettardómi uppkveðnum 16.
des. f. á. var mjer tildæmd skuldin að fullu:
kr. 8,00 í málskostnað og 5°/o frá sáttakæru-
degi. Eptir að jeg hafði fengið afrit af dómn-
um, bað M. B. mig að lofa sjer að sýna
Matthíasi hann, og lofaði hann að láta mig
fá dóminn eða peningana samdægurs. En
svo liðu dagar og vikur, að ekki fjekk jeg
dóminn til baka, og heldur ekki peningana.
Þá er hans var vitjað til M, B. þá átti hann
að vera hjá M. M. og þá er hans var svo
vitjað til M. M. þá átti liann að vera hjáM. B.
— Fjórða janúar bað jeg svo lögreglu-
þjóninn, sem er annar stefnuvotturinn, að
fara til þeirra, og fá dóminn og að hann
yrði svo birtur þeim, en allt fór á sömu
leiðina sem áður, að liann fjekk ekki dóminn.
Hver vísaði frá sjer, og hinn til hins. Varð
jeg svo að fá nýtt afrit til að birta þeim.
Það er óhugsandi að þessi lúalegi, lítilmennsku
vesalegi mótþrói, hafi stafað af öðru en því,
að reyna að krafsa í bakkann svo lengi sem
unt var, með sína aumkvunarlegu peninga-
þröng, sem stafar af gortaralegum þembings-
skap, og flónskulegri óframsýni forkólfanna,
því fjelagið í heild sinni átti engan þátt í
þessari krakkalegu, vanhugsuðu, fásinnuflæm-
ings undanfærslu, sem gjörði þá bara hlægi-
lega. ___________
- Verzlunareignaskipti.
Sú fregn flaug hjer um bæinn, um ára-
mótin, að fyrverandi farstjóri D. Thomsen
hafi keypt verzlun föður síns, og að hann
taki á móti henni nú þegar, eptir aðbúið er
að gjöra upp vöruupp-talninguna. Söluskil-
málarnir eru hermdir að vera þessir: að D.
Th. eigi að gefa 25 þúsundir fyrir hús og
lóð, og allar vörur með 50°/o afslætti. Uti
standandi skuldir fyrir io°/o — eða sem um
semur og borga svo einungis eptir hentug-
leikum. Það er þó mjög gleðilegt að það
varð þó ábýli úr þessari selstöðunni, en hverj-
um skyldi það vera að þakka? — Andlegr-
ar stjettar „Generalar", eru á stundum fínir
„spekulantar", í málum þeim, sem þá eða
þeirra varðar, en örðugt veitir þeim eins
og öðrum í upphafinu endirinn að skoða.
Hinn nýi barnaskóli Reykvíkinga.
Sökum hins milda tíðarfars, þá er nú
komið langt á veg að grafa fyrir barnaskóla-
grunninum, og allmikið er nú búið að kljúfa
af grjóti til grunnsins og þegar keyrslufæri
fæst, er verið að draga það að grunninum.—
Frá tveimur trjesmiðum hefur komið að sögn
tilboð að setja upp skólann, annað frá Jóni
nokkrum Sveinssyni; — hann býðst til að
setja upp skólann fyrir 12 þúsund krónur auk
lo°/o sama sem 13 þúsund og 2 hundruð
krónur, hitt tilboðið var frá öðrum — 12
hundruð krónum lægra. En á hverju að
þessir herrar hafa byggt sín tilboð, er óskilj-
anlegt, þar sem þá var ekki ákveðið hvað