Alþýðublaðið - 23.09.1960, Síða 3

Alþýðublaðið - 23.09.1960, Síða 3
Alþýðublaðið — 23. sept. 1960 3 New York, 22. september, (NTB-Reuter) EISENHOWER Bandaríkj'a- forseti hvatti í dag Sameinuðu þjóðirnar til að hefja heiferð gegn fátækt, fáfræði og sjúk- dómum í Afríku og skoraði á stórveldin að koma í veg fyrir lað kæmi til vígbúnaðarkapp- hlaups í Afríku. Hann hvatti til stofnunar öryggisliðs SÞ, — friðunar geimsins og sömuleið- is til afvopnunar undir eftir- liti. Hann bar mikið lof á Hamm arskjöld fyrir !alla framkoinu hans í Kongómálinu, en gagn- rýndi þau ríki, sem hefðu tor- veldað aðgerðir SÞ þar með und irróðri og aðgerðum gagnstæð- um stefnu SÞ, — Viðstaddir á fundinum voru Krústjov, Tito Og aðrir forsætisráðherrar. Eisenhower har .fram tillögu í fimm Uðum: 1) ekki skuli skipt sér af innanríkismálum Afríku- ríkjanna, 2) aðstoð við að tryggja öryggi Afríkuríkjanna, án þess að komi' til hættulegs vigbúnaðarkapphlaups milli þeirra, 3) aðstoð við Kongó — vegna vandræðaástandsins þar og bauð veruleg framlög af hálfu USA fil 100 milljóna doll ara sjóðs SÞ í því augnamiði, 4) alþjóðleg aðstoð til að hrinda í framkvæmd áætlunum um þróun og uppbyggingu, 5) að- stoð SÞ ti'l menntunar. Forsetinn kvaðst ekki vilja fara inn á fleiri mál, þó að sí- auknar ógnanir við íbúa Vestur Berlínar yllu miklum áhyggj- um, t. d. Þá_ minntist hann á brot Rússa á friðsamlegri’ um- ferð um hið opna haf, er þeir j skutu niður bandaríska flugvél yfir Barentshafi. I Eisenhower kvað þær breyt- j ingar, sem væru að gerast í Afr- j íku, einnig vera að gerast ann- ars staðar og SÞ bæri að auka áætlanir sínar um efnhagslega og félagslega þróun í frelsi einn ig til annarra heimshluta, t. d. Suður- og Mið-Ameríku og Aqsturlöndum \ nær.. Menn mættu ekki gleyma því, að milljónir svelta í ‘lítt þróuðu löndunum, á meðan ýmis lönd heíðu miklu meira en þau þyrftp. Hvorki Krústjov eða Castro j klöppuðu, að ræðu Eisenhowers 1 lokinni. Tito fylgdist hins veg- ar vel með og fulltrúar Afrí.ku- ! þjóða hlustuðu af mikilli at- hygli. en afvopnun New York, 22. september. (NTB-Reuter). JOSIP TITO, forscti Júgó- slavíu, lýsti því yfir í ræðu sinni á allsherjai^þinginu í dag, að ekki væri Um neitt annað að ræða í heiminum í dag eða á morgun en friðsamlega sambúð. Tito tók til máls á eftir Eisen- hower. „Ef ekki er hægt að ná samkomulagi um algjöra af- vopnun, verðum við að vera réiðubúnir til að fallast á tak- markaða afvopnun. Sú hætta, sem í henni felst, er augljós- lega miklu minni, en sú, sem felst í takmarkalausu vígbún- aðarkapphlaupinu í dag“, sagði Tito. 'Tito mælti gegn tilhneiging- um til að deila heiminuim í tvo hluta, sem hann taldi höfuðor- sök kalda stríðsi'ns og valda á- róðri' og öfgum, sem gerðu sam- komulag stöðugt erfiðara. Það væri engin lausn að halla sér Kærf yfir óðum lög- reglufor- ingja New York, 22. sept. 1 (NTB/'REUTER). Stephen Kennedy, lögreglu- stjóri í Ncw York, hefur beðið bandaríska utanríkisráðuneyt- ið um að bera fram mótmæli við Sovétríkin vegna atburðar, sem Zakarov, yfirmaður lög- regluliðs Krústjovs í New Yorkj hefði verið flæktur í nýlega. Kvað Kennedy Zakarov hafa fyrir tveimur dögum ráðizt á tvo bandaríska lögreglumenn að ástæðulausu. Gerðist betta, er Krústjov heimsótti Castro, forsætisráðherra Kúbu, á hóteli hans i Harlem. Bandarískir lög- reglumenn höfðu slegið hring um Krústjov og virtist Zakarov gramur yfir þessum nauðsyn- legu varúðarráðstöfunum. Réð- ist hann á hópinn og sló a. m. k. tvo lögreglumenn, áður en þriðji lögreglumaðurinn greip hann og hélt honum, þar til hann róaðist, segir i bréfi Kennedys til ráðuneytisins. TITO að öðrum hvorum hinna deil- andi aðila. Hann lét í ljós áhyggjur af endurvakningu þýzks hernað- aranda og benti sérstaklega á vaxandi áhrif hermanna. Löhdon, 22. sept. RÆÐU Eisenhowers var vel tekið í hinum vestræna heimi, að því er skeyti herma, er bor- izt hafa til London. Hún var já- kvæð, uppbyggileg og framsýn Framhald á 13. síðu. EISENHOWER Salan fær e fara til Algier París, 22. september. (NTB-Reuter) RAOUL SALAN, yfirmaður franska hersins í Algier, var í dag stranglega bannað að fara aftur til Norður-Afríku, en und anfarið hefur hann gagnrýnt stefnu de Gaulles í Algiermál- inu. Salan var fyrir nokkrum dög um kallaður til Parísar til að gera greih fyrir gagnrýni á. steínu de Gaulles. í morgun átti Salan fund með Pierre Mesmer, landvarnaráð- herra, off eftir þann fund upp- lýstu góðar heimildir, að hers- höfðingjanum hefði verið bann að að snúa aftur til Algier. Salan var ei'nn a-f aðalmönn- unum bak við uppreisnina í Algi er í maí 1958, er leiddi til þess, að de Gaulle kom til valda. Sala staðfesti það síðar í kvöld, að sér hefði verið bannað að fara til Algier aftur. Hann kvaðst hafa beðið um skriflega tilkynningu um, að nærveru hans í Algier væri ekki lengur þörf. Hann dró enga dul á, að hann teldi sig ekki eiga þetta ski'lið af frönsku stjórninni. Áhugalausir um handtöku Leopoldville, 22. september. (NTB-AFP). STJÓRNARNEFNDIN, sem í gær tók við völdum í Kongó, — virðist ekki hafa verulegan á- huga á Lumumba, fyrrverandi forsætisráðhcrra. — Lumumba kvað enn halda sig í villu sinni í grennd við stjórnarráðsbygg- inguna og gæta SÞ-sveitir frá Ghana, Súdan og Marokkó húss ins. Nefndin hefur ekki gert neitt til að framkvæma handtöku- skipun þá, sem fyrir 16 dögum var gefin út á hendur Lumumba — og í dag vísaði nefndin á bug öllum spurningum um Lumum- ba með því að segja, að hún hefði ekki áhuga á þeim herra- manni. Aðrir aðilar í Leopoldville telja, að handtökuskipunin sé enn í iu.Uu gildi og frá lagalegu sjónarmiði geti handtakan farið fram hvenær sem sé Byssu- maður tekinn New York. 22. sept. (NTB/REUTER). Maður nokkur með riff- il í höndum var handtek- inn Manhattanmegin við Queensboro-göngin undir Austurá í New York í dág, er Eisenhowcr forseti var á leið ásamt fylgdarliði sínu frá Idlewildflugvelli til Waldorf-Astoriahótels- ins. Bifreiðalest forsetans var stöftvuð á meðan mað- urinn var fluttur burtu. Það kom í ljós síðar, áð þetta var 66 ára gamall Ungverji, sem kvaðst hafa verið á leið til byssusmíðs til að láta gera við griji- inn, sem var sænskur að gerð. ( hmwwwimwwmwmmw

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.