Sunnanfari - 01.09.1891, Page 1
\n 50 anra árg., g
m borgist fjrir \
$ 15. oktober. 0
u) 20 a. nusgin- 5)
js málslina; 25 jj
0 anra smáletur. @
i
\SSOaOSQG
ISTr. 3
SEPTEMBER
1891
Vilhjálmur Finsen
er fæddur í Reykjavík 1. Apríl 1823 og er sonur
Olafs j firdómara Finsens, Hannessonar biskups,
Finnssonar biskups, Jónssonar prófasts hins fróða
í Hítardal, Haldórs-
sonar prófasts í
Reykholti, Jóns-
sonar prófasts sama
staðar, Böðvars-
sonar prófastssama
staðar, Jónssonar
prófasts sama
staðar (d. 1592),
Einarssonar, Sig-
valdasonar langa-
lífs. J>að er stór-
mennakyn. En Sig-
valda langalíf ætlum
vér Gunnarsson, en
eigi son Illuga
svarta eins og talið
hefir verið, og ekki
ætlum vér hann son
Olafar ríku, en hann
mun hafa verið með
Birni og Olöfu og
ætlum vér, að hann
sé sá Sigvaldi
Gunnarsson, sem
er við skiptin eptir
Björn 1467; styðst
þetta og við það
að Sigvaldi langalíf
átti son, er Gunnar
hét, svo að nafnið er í ættinni. Séra Jón
Einarsson í Reykholti var bróðir Gizurar biskups.
Voru þeir frændur drjúglyndir og hyggnir og
horfðu þó ekki í alt; hófst þessi ætt með þeim
bræðrum til metorða og hefir hún verið allþolin,
því að jafnan hafa verið nokkrir afburðamenn í
henni æ síðan og svo er enn. Finns nafnið er
komið inn í Reykhyltingakyn frá Akramönnum
á Mýrum og stafar frá Laga-Finni, er uppi var
á 15. öld, og var
vitur maður. En
Hannes biskup
nefndi sig fyrstur
»P'insen« í þeirri
ætt, en Hannesar
nafnið er komið frá
Hannesi lögmanni
Eggertssyni (d.
1530). Vilhjálmur
Finsen , útskrifaðist
úr Bessastaðaskóla
1841 með bezta
vitnisburði, og tók
1846 próf í lögum
við Kaupmanna-
hafnarháskóla,
einnig með bezta
vitnisburði; tveim
árum síðar fékk hann
heiðurspening há-
skólans í gulli fyrir
ritgjörð umGrágás,
er prentuð er í Ann-
aler for nord. Old-
kyndighed. Hann
var fyrst í rentu-
kammerinu ogsíðan
í íslenzku stjórnar-
deildinni. 1851 varð
hann sýslumaður í Kjósar- og Gullbringusýslu
og árið eptir jafnframt land- og bæjarfógeti og
þjónaði hann þeim embættum þangað til 1860.
Frá því 1856 til 1859 var hann settur meðdóm-
gj
VlLHJALMUR FlNSEN.