Sunnanfari - 01.09.1893, Síða 4

Sunnanfari - 01.09.1893, Síða 4
20 f>að kom yfir hann efi og órói, hann fann að honum lá við að spyrja sjálfan sig á líkan hátt og hann átti vanda til. f>ví ætli guð hafi skapað þetta? Fyrst nóttin er ætluð til svefns og hvíldar, meðvit- undarleysis og algleymis, því gerir hann hana þá fegurri en daginn, hýrari en morgunroðann og kveldið, því lætur hann þessa töfrandi sein- fara stjörnu rjúfa næturmyrkrið. Er hún ætluð til þess að kasta friðarblæju yfir þær hugsanir og tilfinningar, sem eru of bljúgar og leyndar- dómsfullar fyrir dagsbirtuna? ý>ví hefir ekki saungfuglinu, er sýngur fegurst þeirra allra, hljótt um sig á nóttunum eins og aðrir saung- fuglar, því fer hann að tísta inni í kolsvarta myrkrinu ? þ>ví er þessi hulda yfir öllu í heiminum, hvernig stendur á þessum titringi hjartans, öllum þessum ástríðum og fýsnum ? Hvernig stendur á öllum þessum glepjandi ginníngum, er menn sjá ekki, af því menn hvíla í rúmi sínu. Hverjum er það ætlað að sjá þessa dýrðlegu sjón, þessa skáldlegu undra sýn, sem himininn verpur yfir jörðina? Presturinn gat ekki skilið það. En niður á árbakkanum sá hann gegnum þokuna karlmann og kvennmann á gángi; þau gengu fram með trjánum, hvort við hliðina á öðru. Karlmaðurinn var hærri en stúlkan, hann hélt utan um hálsinn á vinstúlku sinni og kysti hana við og við á ennið. Alt hafði verið graf- kyrt áður þar niður frá, en nú var eins og það kæmist alt á kvik í kríngum þau, væri aðeins umgjörð utan um þau ein. |>að var eins og þau væru bæði einn maður, og þessi rólega, þögula nótt væri ætluð þeim, og þau geingu beint á móti prestinum. J>að var eins og Drott- inn vildi svara spurníngu hans með því að láta þau gánga beint á móti honum. Hann stóð í sömu sporum; hann var utan við sig og blóðið þaut upp í kinnarnar á honum; það var sem hann sæi viðburð úr biblíunni; það var eins og Rut og Boas geingju þarna eptir guðs vilja og hann sæi ástir þeirra, og ástheitu versin í Lofkvæðinu hljómuðu fyrir eyrum hans, allur hinn skilvitlegi skáldskapur í þessum fun- andi ástaljóðum. »|>að er hugsanlegt að guð hafi skapað þessar nætur til þess að sveipa meö þeim ástalíf mannanna í tignarblæju«, sagði hann við sjálfan sig. þ>au færðust nær og nær honum með hend- urnar vafðar hvort utan um annað. Hann hopaði á hæli. J>að var hún systurdóttir hans, en nú spurði hann sjálfan sig, hvort hann væri ekki guði óhlýðinn. Guð hlaut þó að hafa leyft ástir karlmanns og konu, fyrst hann klæddi þær í svo dýrðlegan búning. Og hann flýði burtu utan við sig og hálf- feiminn, eins og hann hefði geingið inn í þann helgi- dóm, er hann sjálfur var útlægur úr. (S. H. þýddi). Bæn fariseans. (petta er bænin sjálf; inngánginn geta menn lesið hjá Lúlcasi í t8 Kap. 10—12 v. eða í guðspjallinu á II. sunnud. e. Trinitatis). Hér hnig eg við þinn helga stól með hjálm og brynju skarða, þú dýrðarbjarta Daviðs sól og drottinn Jakobs hjarða, þvi nú er Satan orðinn ær, hann eltir mig g kempur þær, sem heyja stríðið harða. Að visu er ennþá alt í ró og eingin tröll á vegi, en Satans lið er legíó og leingi stenzt eg eigi! hann lemstrar bezta þjóninn þinn, og þarna sérðu kutann minn sem sljófgast dag frá degi. Mig sundlar er eg sé þá nauð, hjá Satans ara-grúa, að eiga kannske aungan sauð, sem okkur vildi trúa; ef kistan okkar yrði tóm og autt í þinum helgidóm : við það er þýngst að búa. Hví gerðir þú mig geisla þann á götum fósturslóðar, og slikan garp og gæða mann og gimstein minnar þjóðar? hvi varð eg fólksins fyrirmynd? hvi fékk eg slíka vizkulind og ahar gjafir góðar?

x

Sunnanfari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.