Sunnanfari - 15.10.1900, Blaðsíða 1

Sunnanfari - 15.10.1900, Blaðsíða 1
VIII 7- REYKJAVÍK 15. OKT. 19OO Yngstu konungshjónin Hérermynd afyngstn konungshjönum álfu vorr- ar, er ríki tóku fyrir 10— ii.vikmn. Það eru þau Viktor Emmanúel III. Italíukonungur og drotning hansHelena. Þau eru séleg og mannvænleg bæði tvö. Hann er þrítugur að aldri eða var i vetur, en hdn 4 árum yngri. Hann á til vaskra að telja, þar sem var faðir lians, Umberto konungur, sá er myrturvarí sumar, og ekki siður afi hans og nafni Viktor Emman- úel II.,er lé/.t fyrir 2 2‘/2 ári. Hann er sagðurár- vakur og áhugamikill um skyldustörf sin, vill skifta sér rækilega af stjórnríkisinsogsjasem mestmeð sjálfssín aug- um. Htin er dóttir Nik- ita Svartfellinga-fursta ogalin upp við fátækt og yfirlætisleysi, á móts við það, sem ella gerist við hirðir þjóðhöfð- ingja, konungaeðakeis- ara, ásamt 8 systkinum sínum. Landið, ríki föður hennar, Montenegro, er örlítil fjallbygð á Balkanskaga norðan og vest- an, austan við Adríaflóa, ekki stærri en ein sýsla á íslandi, en þó með nær ferfaldri fólkstölu, eða 270,000. En höfuðstaðurinn og stjórnarsetrið, Cettinje, er helmingi minna en Reykjavík. Lands- búar eru orðlagðir fyrir hreysti og harðfengi, mjög frægir af viðureign sinni við Tyrkja, er þeir hafa varið fyrir sjálfsforræði sitt öldum sam- an og gert þeim marga skráveifu. Þar ólst Hel- ena drottning upp og vandist snemma við hvers kyns iþróttir, eigi síður karlmannlegar en kven- legar. Hún getur boðið mörgum vöskum karl- ung til bana í sumar eigi harmsögu þá fyr Helena dbotning manni út að ganga í fjöll og klífa hamra, og skotfimi þurfa fáir við hana að þrevta, hvorki maður hennar né aðrir, og er hann þó sagður vel fær maður við iþróttir.’ Hún er fríð sýnum og gervileg; en býður eigi af sér slíkan unaðsþokka sem tengdamóðir hennar, Margrét drotning. Þau voru á skemtisigling lengst úti i Miðjarð- arhafi, er illvirkinn Bresci skaut Umberto kon- á Olafsmessu, og fréttu en annan dag eftir. Það voru mikil viðbrigði og svipleg, að eiga að hætta alveg að leika sér og taka i þess stað að sér vandasama og hættulega stöðu, eftir því sem nú gerist, er enginn þjóðhöfðingi getur óhultur verið um lif sitt, nótt né nýt- an dag, hvort sem vel er þokkaður eða miður. Það fylgir yfirlætis- leysi því, er Helena drotning er upp alin við, að eyðsla verður niiklu minni við hirð nýju konungshjónanna en hinna eldri. Margrét drotning var skrautgjörn mjög. En landsbúar þjáðir af þungum álögum ogkem- ur því vel öll sparnaðarviðleitni. Mun þar og þurfa margt að laga fleira. Um- berto konungur var góðmenni, en lítill stjórx? skörungur. Fjárdráttarspilling rik orðin með höfðingjum þar i landi og fleira misindishátterni. Það eru 4 ár síðan þau giftust, Viktor Emmanúel konungur III. og Helena drotning; en hefir ekki orð- ið barna auðið að svo stöddu. Vittokio Emmanuele iii.

x

Sunnanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.