Sunnanfari - 01.03.1902, Qupperneq 1

Sunnanfari - 01.03.1902, Qupperneq 1
X REYKJAVÍK * MARZMÁN. 1902 J^igurður Magnússon, óðalsbóndi að Kópsvatni, er fæddur að Berghyl í Hrunamannahreppi 2. des. 1827. Foreldrar hans voru Magnús hrepp- stjóri og síðar alþingismaður, Andrésson, hrepp- stjóra á Seli, Narfasonar, og Katrín Eiríksdóttir, hreppstjóra Vigfússonar á Reykjum á Skeiðum ; en móðir Katrínar var Ing- unn Eiríksdóttir frá Bolholti (frá honum er komin Bolholts- ætt). Þá er Sigurður var á 4. ár- inu, fluttust foreldrar hans bú- ferlum að Syðra-Langholti í sama breppi; ólst hann þar upp hjá þeim þar til hann var 14 ára. A 13. ári var hann staðfestur af síra Jóni Högna- syni í Hrepphólum, og þótti einkar-vel að sér. Þá bjuggu að Kópsvatni merkisbjónin Jón dannebrogsmaður og hrepp- stjóri, Einarsson, bónda á Berghyl, og Katrín Jónsdóttir, bónda í Reykjadal, Eiríksson- ar frá Bolholti. Þau fengu Sigurð íyrir smaladreng, er hann var 14 ára. Kom hann sér þar svo vel, að þau sleptu honum eigi aftur. Var hann hjá þeim upp frá því meðan þau lifðu og lofaðist Kristrúnu dóttur þeirra. Þau hjón, Jón og Katrín, önduðust bæði sama árið, 1855. Hafði Jón áður gjört þá ráðstöfun, með samþykki sona sinna, að Sigurður skyldi taka við jörðinni Kóps- vatni eftir hann. Giftust þau Kristrún 27. des. s. á. Bjuggu þau síðan að Kópsvatni til 1900, eða 45 ár, og búnaðist ágætlega. Gátu þau smámsaman keypt jörðina. Voru þó erfið ár framanaf; þvíáfyrsta búskaparári þeirra kom fjár- kláðinn og svo niðurskurðurinn árið eftir; en þá næsta sumar, 1858, var keyptur nýr fjárstofn i Norðurlandi. Meðan á þessu stóð, þurfti mjög á forsjá og samheldi að halda, og eigi var minst' komið undir þeim mönnum, er gæti haldið fé- lagsskapnum saman. En tii þess var Sigurður manna bezt fallinn. Fekk hann svo mikið orð á sig í þessum framkvæmdum, að ár- ið eftir, 1859, var hann skip- aður hreppstjóri í Hruna- mannahreppi; hélt hann því embætti til 1879, er heilsa hans tók að bila. Tveir voru hreppstjórar í öllum stærri hreppum, áður hreppsnefndir kæmist á; en svo var sem eigi þyrfti hreppstjóra með Sigurði; þar í hrepp þótti eigi ráð ráðið, tnema hans ráð væri. I hreppsnefnd var hann frá því hún komst á, 1874, til 1882. Þótti þar gott mann- val í hreppsnefnd, er síra Jó- hann Briem i Hruna var odd- viti og þeir bræður Helgi í Birtingaholti og Sigurður með honum, ásamt 2 öðrum góð- um bændum. Þótti Hruna- mannahreppur þá einhver myndarlegasti hreppur- inn í sýslunni, og býr enn að því. Allar fram- kvæmdir til hreppsþarfa komu rnest á Sigurð. Var það bæði, að hann þótti manna bezt til þess fallinn, og svo var hann ósérhlífinn og taldi eigi eftir sér að verja tíma og kröftum til almenningsþarfa. En engu minni tíma varði hann til ýmissar liðveizlu við einstaka menn ; því til hans var ávalt flúið, þegar einhver í sveit- SIGURÐUE MAGNÚSSON FRÁ KÓPSVATNI

x

Sunnanfari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.