Sunnanfari - 01.05.1902, Page 1

Sunnanfari - 01.05.1902, Page 1
REYKJAVÍK X * MAÍMÁN. 1902 Guðmundur Friðjónsson fyrir henni. Og þá er vel, er hvortveggja fer saman. Hann er tvímælalaust orðinn eitt höfuðskáld þjóðar vorrar, þótt hvergi nærri sé fullséður enn, heldur á bezta framfaraskeiði, maður skamt yfir þrítugt; og er því rneir en mál til komið »að sýna« hann almenningi, en það stendur ekki öðrum nær en Sf., sem hann hefir lagt svo mikla rækt við síðustu árin og á hon- um að þakka mikið af ágæt- um skáldskap, bæði í sam- föstu máli og sundurlausu. Það eru merkileg tímaskifti að þvi, hvernig árar að and- iegum gróðri i ýmsum hér- uðum landsins. Um þessar mundirog alllanga hrið undan- farið ber Þingeyjarsýsla sýni- lega af þeim öllum, og eink- anlega að skáldmentinni. En langfyrstan ber þar að telja G. F. Þótt minna beri jafnan að líta á vexti en gæði listaverka, má vel geta þess, að frá- leitt liggur jafnmikið eftir nokkkurt höfuðskáld vort eins og G. F. á jöfnum aldri, ef saman eru lögð ljóð hans og skáldsögur. Það sýnir, að hann lætur ekki skáldmentar- dísina dotta hjá sér, og verður þó að sinna henni i hjáverkum frá líkamíegri vinnu fyrir sér og sínum. En vitanlega er það þeirri alúð, árverkni og elju að þakka, eigi síður en mikilli og frum- legri skáldgáfu, hve vel honum fer fram í skáld- mentinni ár frá ári. Það leynir sér ekki í um- gengni hans við ljóðadísina, að í brjósti hans fer æ vaxandi bæði ástin til hennar og virðingin Ljóðasafn G. F. kemur út í sumar, ásjálegt rit, er veita mun almenningi kost á að meta, hvort hér er rétt með farið eða ekki. Það er eitt með öðru, er mjög prýðir búning ljóða G. F., hve óvenju-orðhagur hann er. Og ætti að tilnefna í fljótu bragði, hvert yrkisefni honum léti bezt, mundi það verða íslenzk náttúra, dauð og lifandi, blið og stríð. Mun varla neinu skáldi voru fyr né sxðar láta betur að fara í hennar ham og gera hana nærri þvi jafn-hugnæma hvað sem út snýr á henni. Þar við er og samtvinnuð gagnheit, en látlaus ættjarð- arást. G. F. er fæddur 24. okt. rhú9 og eru foreldrar hans Friðjón Jónsson bóndi á Sandi í Helgastaðahreppi (og hreppsnefndarm. um 40 ár) og kona hans Sigurbjörg Guðmundsdóttir bónda á Síla- læk, en föðursystir þeirra Jóhannesar Þotkelssonar og Indriða á Syðrafjalli. Hann var 2 vetur í Möðruvallaskóla fyrir 9—10 árum; naut að öðru leyti ekki annarar fræðslu í æsku en þeirr- ar, er tiðkast rneðal alþýðu. Hann kvæntist 17. des. 1899 Guðrúnu Oddsdóttur, bróðurdóttur Bald- vins homöop. Sigurðssonar í Garði. Gagnkunnugur rnaður G. F. og skilríkur vel segir svo af honum: »Lítið bar á skáldgáfu hans fram að tvítugs- aldri. Voru það helzt kerskivísur, er frá honum Guðmundur skáld Friðjónsson

x

Sunnanfari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.