Sunnanfari - 01.05.1902, Síða 8

Sunnanfari - 01.05.1902, Síða 8
4ö þeim hof, er enn er haft í miklum háveg- um. Fyrir nokkrum árum komust sýningamenn yfir systur þessar og fóru með þær hingað í álfu og sýndu í gróða skyni í stórborgum álf- unnar. Þeim var kent dálítið í ensku, frönsku og þýzku, og þóttu vera hin mestu viðbrigði. Greindar voru þær og buðu af sér góðan þokka, svo kynlegt sem var að sjá þær svona samvaxn- ar, sem ekki er raunar einsdæmi, en eitthvert hið merkilegasta þó, er sögur fara af. Líkam- arnir alveg tveir, en samvaxnir á brjósti og maga öðrumegin og brjósk í samskeytunum. Svona voru þær þangað til í vetur, að brjóstveiki kom fram í annari þeirra, svo að læknar töldu henni eigi lift og gengu að því vísu, að hin mundi og sýkjast von bráðar. Þeir tóku það ráð, að tefla á tvær hættur og reyna að gera það, sem faðir þeirra hafði orðið að hætta við, og skera þær sundur. Það var gert í Paris, og tókst vel. »Nú erum við skildar«, sögðu þær, er þær vöknuðu úr dáinu eftir skurðinn. Öðru veifinu undu þær þvi vel, en öðru veifinu var sem þær söknuðu jafn-náinna samvista. En þær nutu skamma stund hins nýja lífs. Radica dó snögg- lega eftir fáa daga. Doodica var leynd því fyrst. Hún bar sig illa, er hún varð vís hins sanna, og er búist við, að hún muni verða skammlíf úr þessu. Svo var sem þær hefðu eitt líf báðar, meðan saman loddu. Þær fundu samtímis til svengdar og þorsta, sorgar og gleði, og alveg eins báðar. Þær sofnuðu og vöknuðu samstundis báðar, og bar aldrei neitt í milli, nema ef gert var upp í milli þeirra í matgjöfum eða leikfangs. Oft var það, að önnur tók til máls og talaði nokkur orð, en hætti alt í einu og hélt þá hin áfram setningunni. Mælt er, að því hafi spáð verið af læknum, að þótt takast kynni að skera þær sundur, mundu þær ekki lifa báðar eftir það, þótt ekki kæmi vanheilsa til, sízt Radica, með því að hjartað í henni væri ekki á réttum stað, of langt til hægri. Fyrir því var ekki við það átt að skilja þær fyr en í fulla hnefana. Barnaskólinn í Reykjavik. Það er stærsta og veglegasta barnaskólahúsið á landinu, svo sem ekki er tiltökumál, er höfuð- staðurinn á í hlut. Það er nú 4 ára gamalt, reist sumarið 1898 og vígt þá um haustið. En húsnæði það, er barnaskólinn hafði átt áður, keypti landssjóður fyrir 28,000 kr. og gerði að pósthúsi (Pósthússtr. nr. 3). Hið nýja barna- skólahús kostaði um 8o,OiX> kr. Það er tvílyft timburhús járnvarið, í tveim álmum, samföstum á hornum, og er hvor 62 álnir á lengd, en 15 á breidd, og veggjahæð fyrir ofan grunn 10 álnir; ris lágt. Kenslustofur eru 12 alls, 6 niðri og ó uppi, íoX10 álnir hver, og 5 álnir undir loft, allar í vesturálmunni, þeirri er veit niður að Tjörninni og blasir við hér á myndinni. Húsið stendtir í hallanum austan við Tjörnina nyrzt. Hver kenslustofa er ætluð 30 börnum. Gluggar vel stórir og birta mikil. Efri endi norðurálmunnar, er upp gengur frá norðurenda hinnar, er leikfimishús, 26Xf5 álnir, og nál. 7 álna hátt undir bita. Sjálfsagt verður höfuðstaðurinn látinn búa langa- letigi að þessu skólahúsi, þótt ekki taki nándar- nærri öil börn á skólanámsaldri. Bókverzlan Isafoldar hefir til sölu þessar nýjar bækur: Vestan hafs og austan. Þrjár sögur eftir Einar Hjörleifsson. Rvik 1901. Heft 1 kr. 50 a., i skrautbandi 2 kr. 50 a. ísland um aldamótin. Ferðasaga sumarið 1899. Eftir Fr. J. Bergmann. Heft 2 kr., í skrautbandi 3 kr. Reikningsbók handa börnum. Eftir Ögmund Sigurðsson. I. Fjórar höfuðgrein- ar. Rvík 1900. Bundin 75 a. Huldufölkssögur. Úrval úr safni Jóns Árnasonar. Rvík 1901. 1 kr. 20 a. í bandi. IIIIIMIIIMIIinlllll|lni|MMlnii|~illllllllllHIIII|llll»IIIIIIIHIIIIIIIIIIIMHnilllMllmi»lllllllll»[IIHIHItmilllll«llll,llllHIIIIIMIIlllimilHIIIIIII Ritstjóri Björn Jónsson ísafoldarprentsmi'ðja.

x

Sunnanfari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.