Sunnanfari - 01.05.1912, Blaðsíða 10
42
Því eru þær drunur á dimmuin kvöldum,
sem draumillar hrotur frá liðnum öldum
— sinadráttur hins dauða.
Jón Sigurðsson.
Jóhann Sigurjónsson
Og
Fjalla-Eyvindur.
Það ber sjaldan við, að eptir íslendingi sje
tekið annarstaðar enn hjer á landi. Skáld og
listamenn eiga hægast með að láta taka ept-
Jóhann rithöfundur Sigurjónsson.
ir sjer, og það liefur líka horið við, að ís-
lenzkur skáldskapur hafi komið út á erlend-
um tungum, enn þó svo sje, hefur það í raun
og veru ekki eins mikla þýðingu einsog menn
kynnu að halda, og almenningur erlendis
verður íslenzkum skáldskap lítið kunnugri
fyrir það. Víst er það, að hjer lieima liggur
leið skáldskaparins til fólksins um prent-
smiðjuna, enn erlendis er nokkuð öðru máli
að gegna; þar er viðskiptalííið örara, og tím-
inn dýrmætari enn hjer, og fæstir stytta sjer
þar eins og hjer stundir með lestri; í stað
þess sækja menn leikhús og aðrar þvílíkar
skemtanir. Skáldin þar, sem vilja ná tali fólks-
ins, verða því að gera það á leiksviðinu. —
íslenzkur höfundur, Jóh. Sigurjónsson, hefur
nú orðið til þess að semja leikrit, Fjalla-
Eyvind, sem mun verða leikið á helstu leik-
húsum Norðurhálfu, og væri það ekki óhugs-
andi, að það yrði til þess að vekja athygli er-
lendra þjóða á oss betur enn er, og auka
Guðritn leikkona Indriðadóttir i geríi Höllu
í Fjalla-Eyvindi.
skilning þeirra á hugsunarhætli vorum. Leik-
ritið hefur verið leikið hjer í Reykjavík fyrir
skemstu og hlotið verðugt lof. Vjer flytjum
hjer mynd af leikkonunni ungfrú Guðrúnu
Indriðadóttur í gerfi Höllu, enn það er aðal-
hlutverkið í leiknum, og efast jeg um, að
færustu leikkonum úti í löndum mundi farast
betur, því það var fortakslaust bezti leikur,
sem sjezt hefur hjer á landi. Mynd af Jó-
hanni flytur Sunnanfari líka.