Sunnanfari - 01.11.1913, Blaðsíða 8

Sunnanfari - 01.11.1913, Blaðsíða 8
88 mentast var óslökkvandi, og komst hann á þann hátt sjálfkrafa niður í mörgu, bæði málum og öðru, og þar kom, að hann lang- aði til að geta náð stúdentsprófi, þó að hann tæki að gerast roskinn. Urðu þá margir, bæði danskir menn og íslenzkir, til þess að liðsinna honum, en hvað hann mátti sjálfur að sér og á sig leggja á þeim árum, mun fáum kunnugt til hlítar. Nikulás varð stú- dent 1885, og var þá nær 34 ára gamall. Heimspekispróf tók hann árið eptir (1886). Þegar hann hafði lokið stúdentsprófi fékk hann hinn svo nefnda Garðsstyrk, og hagur hans hægðist á ýmsa vegu. Tók hann þá að stunda nám á Fjöllistaskólanum danska, og naut hann þar svo mikils álits, að hann var settur þar áður langt leið, og áður hann lyki embættisprófi, aðstoðarkennari til tveggja ára fyrst, og síðan enn um eitt ár til. Þvi næst leysti hann af hendi meistarapróf 12. Dec. 1890, og hafði alt undir jöfnum höndum: stærðfræði, stjörnufræði, eðl- isfræði og efnafræði. Var honum þá nokkru síðar veiltur styrkur til utanfarar, og dvaldist hann þá um eins árs skeið í París. Þegar hann hvarf aptur til Danmerkur, var búið að gera hann að föstum kennara við Fjöllista- skólann. Enn þess átti hann ekki leingi að njóta, því að þá var hann tekinn að kenna sjúkdóms þess, sem varð banamein hans (krabbi í maga), og andaðist hann í Kaup- mannahöfn 21. Júni 1898 nær 47 ára gamall, einmitt þá, þegar hann eptir mörg og þung ár átti að fara að njóta ánægjunnar og upp- skerunnar af því, sem hann hafði á sig lagt og erfiðað svo einhuga og eptirminnilega fyrir. Á stúdentsárum sínum (1890) hafði Niku- lás feingið verðlaunapening háskólans í gulli fyrir ritgerð um gagnsæi ógagnsærra hluta í vökva. Nikulás sá um íslenzka almanakið öll árin 1889—1898. Veraldarmaður var Nikulás ekki mikiil. Hann helgaði sig allan lærdómum þeim, sem hugur hans stóð til, tvístraði sér ekki og varð því afbragðsmaður í sinni grein. Vísur eptir Árna Böðvarsson (d, 1777). í tilhugalífinu til Ingu seinni konu sinnar. Hún var frá Fjósum í Laxárdal. Árni bjó á Ökrum á Mýrum: Opt vér lirósuni ungri drós yndis kjósanlegri, er á Fjósum reflarós Rínar Ijósum fegri. Ælti eg ekki, vífaval, von á þínum fundum, leiðin eptir Langadal laung mér þætti á stundum. Þó hafi eg brent í höfði vín, sem hafnar geði vondu, hjartans yndis elskan mín ætíð blessuð »kondu«. Árni átti að vera til sakramentis, og var þá kominn í elli. Hafði pyllu í vasanum og fékk sér hressingu í krókbekk, og varð naumt fyrir að koma í tappanum, þegar kona hans sagði honum, að komið væri að skriptum: [Eg lók upp flöskutetrið mitt, tírnann hef eg1) nauman. Eg get nú ekki á gatið hitt. Guð náði mig auman! Réttvíst, guð, er ráðið þitt. raunum mínum hægðu; svona fór nú svallið mitt, syndaþrælnum vægðu. Andatrú. (Gömul vísa, ort fyrir 1777). Anzaði karlsins andað lík — í því fjandinn vælir: — Heim á pall í Hlöðuvík hafið mig, piltar sælir! 1) [Hjálpaðu mér, hjartað mitt | hef egtímann, aövir. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Sunnanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.