Austri - 12.10.1891, Síða 1

Austri - 12.10.1891, Síða 1
Koma út til nýárs, 3 blöð S mánuði. Verð : 1 kr. 50 aura, erlendis 2 krónur. Borgist fy'rir lok október, annars 2kr. Uppsögn, skriflsg, bund- in við áramót. Ógild nema komin sé til ritstjórans fyrir 1. oktober. Auglýsingar 10 aura línan, eða 60 aura hver þml. dálks. I. «3Í‘g. SEYÐISFIRÐI, 12. OKT. 1891. Nr. 7. Strandferðir í k r i n g u m í s 1 a n d. í siðasta tbl. „Austra" stóð ritgjörb dagsett í Rvík 27. ág. 1891, undirskrifuð A. Ritgjörðin er líkast til frá einhverjum alþingismanni. Er hún ágrip af tilraunum alþingis meb ab útvega landinu hagkvæm- ari gufuskipsferbir framvegis. Eg hefi nú í mörg ár verið búsettur hér, og gjörst hérlend- ur sjómaður, og er vel kunnug- ur gufuskipsferðum hér við land og þori eg að fullyröa, að gufi- skipsferðamálið hefir stcrum af- lagast við meðferð alþingis í sum- ar. Eg er samdóma A um, að flestir þingmenn hafa haft góðan vilja á að bæta gufuskipsferðirn- ar, annað er óhugsandi, en sök- um vanþekkingar og óverkhyggni — máske meðfram fyrir ósam- lyndi — hafa þingmenn búið til hreinustu ómynd úr hinum fyrir- huguðu gufuskipsferðurn. Eg sendi í sumar uppástungu þá? er hér fer á eptir, til alþing- is um áætlaðar gufuskipsferðir frá Reykjavík og á Skagafjörð austanum landið. Var það eink- um tilgangur minn með þessari uppástungu að styðja og efla hin- ar miklu fiskiveiðar hér eystra og nyrðra, þar sem þær mættu viða verða jafn arðsamar og her^ og af þeim ætti strandferðaskip- ið líka að hafa aðalágöða sinn, því þær 10,000 kr. sem eg bað um af landsjóði fyrir pöstflutn- ing, er ekkert stórfé, er litið er til fyrirtækisins og mundi naum- ast hrökkva fyrir ábirgðargjaldi skipsins. En, þar sem alþingi hefir ruglað þessari minni uppástungu saman við hinar núverandi ónógu og óhagkvæmu gufuskipaferðir, þá þykir mér leitt að hafa sent alþingi hana til meðferðar. Eg ætlaðist til ab minni uppá- stungu yrði ekki slengt saman við hina núverandi ferðaáætlun fyrir Vesturlandi eða áHúnaflóa, því eigi má öllu samansafna í einum „stjórnarhatti". f>að er alllíklegt, að einhver mundi bjóðast til að halda nppi strandferðum frá lieykjavík og á Húnaflóa vestan um land, og koma við á Borðeyri. Eg sé að þingið hefir lengt liinar áætlubu strandferðir mínar til Borðeyrar og fleiri hafna, og sett taxta fyrir fargjald. En skyldi mér vera ætlað að taka þessar ferbir að mér svona lag- aðar, þá neyðist eg til að segja hinum heiðruðu þingmönnum ab þeim verður ekki að því. Eg hefl góba von um, ab strandferðir samkvæmt minni ferðaáætlun mundu horga sig að íám árurn liðnum, en því lands- fé hefði ekki verib illa varið, er lagt heíði verið til þess að því- likt fyrirtæki kæmist í verk. Strandferðir í kring um ís- land, sem standi í sambandi við gufuskip frá útlöndum á nokkr- um hentugum verzlunarstöðum, álit eg lífsspursmál fyrir fram- farir íslands. Eg bið hina heiöruðu alþing- ismenn, sem hafa mælt með upp- ástungu minni, velvirðingar, þc eg finni mér skylt að segja álit mitt um málið og láta í ljósi hyggju mína í þessu velferðar- máli landsins, gagnvart fyrir- komulagi alþingis á málinu í þingskjali 462 og er hún þessi: 1- Eg víl ekki fara á Húnaflóa og Borðeyri. 2- Eg vil sjálfur búa til ferða- áætlunina. 3. Eg vil ekki vera bundinn vib taxta hins sameinaða gufu- skipafélags fyrir farþegja og vöruflutninga. Fyrir áðurnefndar 10,000 krón- ur skyldi eg hafa skuldbundið mig til: a. ab útvega gufuskip af fyrsta flokkimeb góðu farþegjarúmi á 1. 2. káetu og yfirbygg- ingu á skipinu handa farþegj- um á 3. farþegjarúmi. b. ab fara 2 ferðir á mánubi á milli lteykjavíkur og Skaga- 4 fjárbar, austan um land og koma við á þeim stöðum, er tilteknir eru á ferðaáætlun minni. c. að fara þessar ferðir frámaí- mánaðar byrjun til nóvem- bermánaðar loka. Ferðaáætlun og allt annab ferðunum viðvíkjandi vil eg sjálfur ráða. f>að mun óþarfi að bera kvíð- boga fyrir því, að engar gufu- skipaferðir verði að ári kring um ísland. Hér er nóg að gjöra fyr- ir gufuskip og nóg til af þeixn, en eg er sannfærður um ab allir munu fara eptir þeírri ferðaá- ætlun, er beztborgar sig. Eyrir gufuskipaleið sem komin er á og menn hafa lært að nota, liefir nokkurra húsund króna tillag litla þýðingu, en það er góður styrkur til þess að byrja meðog komaáfót nýju fyrirtæki. Seyðisfirði 8. okt. 1891. O. Wathne. Seyðisfirði þann 27. júní 1891. Til alþingiemanna úr Horður-Auetur- og Suðuramtinu. Hér með leyfi eg undirskrifaður mér að sækja til alfiingis um 10,000 kr. styrk til fastákveðinna gufuskips- ferða milli Reykjavíkur og Skagafjarð- ar, er gangi austan og sunnan um land. Eg er sannfærður um að pvilík- ar innlendar gufuskipaferðir með við- komustöðum strandlengis mundi stór- um efla framfarir og auðsæld pjóð- innar. f>að er sorglegt til pess að vita, að samgöngurnar á sjó í kring um landið eru ennpá svo skammt á veg komnar. Með pví fjallvegir landsins eru svo illir yfirferðar, er pví nauðsyn- legra, að Island fengi sem fyrst gufu- skip, er gæti komið við á sem flest- um fjörðum og víkum, svo að ibúarn- ir gætu fengið nauðsynjar sinar mei hægra móti en veríð hefir. þær samgöngur er landsmenn hafa innbyrðis við gufuskipaferðir pær, sem nú eru, eru alveg ónógar pess- um tímum og pörfum vorum, og verða pað ávallt á meðan sömu gufuskipin eiga að fara bæði milli landa og um- hverfis ísland. Hæfilega stórt innlent gufuskip gæti hæglega komið við á flestum stöðum strandlengis, einkum á sumr- | um ér mest er pörfin á greiðum sam- göngum. þvílíkt gufuskip mundí og mikið létta ferðir fyrir sunnlending- um, sem á sumrin sækja hingað aust- ur, og norður í land, bæði til sjóróðra og í kaupavinnu. Ennpá liggja pví miður hinar auðsælu fiskiveiðar fyrir austur- og norðurlandi pví nær önotaðar sökum vinnukraptaleysis, pví póstgufuskípin dönsku koma aðeins við á stöku stöð- um, er par til hafa nokkurskonar einkaréttindi, og geta pví náð í sjó- menn og kaupafólk, sem mestmegin hinar löngu og fiskisælu sjávarsjAi fer alveg á mis við; en pam-ausa út- lendingar upp aflanum ogsækjapang- að auð fjár, sem með réttu ætti að lenda í landinu sjálfu. Gufuskip pað sem eg ætla til ferðanna, mun kosta 120,000 kr. og vera úr fyrsta flokki, byrja ferðirnar 1. maí 1892 og hafa 2 farpegjarúm þær 10,000 kr. fyrir póstflutninga, er eg hefi sótt um til styrktar fyrirtæk- inu, mundu aðeins nægja fyrir áhirgð- argjaldi skipsins. Ollu hinu voga eg sjálfur, eins og eg líka legg gufuskipið til fyrir eigin reikning. Eg álit að ferðunum yerði að halda áfram frá byrjun maímán. til loka nóvembermán. og allt árið um kring er samgöngurnar aukast. Eg hefi hugsað mér að koma við á pessum stöðum: Reykjavík, Hafn- arfirði, Keflavík, eða par í grennd, Eyrarbakka, Yestmannaeyjum, Horna- firði, Berufirði, Breiðdalsvík, Fáskrúðs- firði, Reyðarfirði, Eskifirði, Norðfirð', Mjóafirði, Seyðisfirði, Borgarfirði, Lag- arfljótsós, Vopnafirði, Bakkaf., Finna- firði, þórshöfn, Raufarhöfn, Kópa- skeri, Húsavík, Flatey, Grímsey.Eyja- firði, Siglufirði og Skagafirði og snúa paðan aptur sömu leið til haka til Reykjavíkur. I von um að liinir heiðruðu al- pingismenn vilji styðja pettamálund- skrifa eg virðingarfyllst. O. Wathne. Útlemlar fréttiv. frá fréttaritara vorum á Englandi. Margt er á seyöi og mörgu horfir óvænt fyrir hinum afgamla Slysa-Hróa, mannkindinni. —Rúss- ar deyja úr hungri, ræningjar vaða uppi, eins og vant er að vera, á hungurtíbum. Margar fregnir berast af mannáti, og eiga það að vera börn helzt, sem þannig er aldur styttur, til að treina foreldrunum líf. En sönn- ur þessara óskapa eru náttúrlega engar. Keisarinn situr i kynnis-

x

Austri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/141

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.