Öldin - 03.11.1891, Blaðsíða 2
ÖLDIN
gefin út hvern Miðvikudag
að 17 McMicken Str. (12th Str. S.]
af OLAFSSON & CO-
(H. Olafsson. M. Peterson.)
Ritstjóri og ráðsmaðr
(EDITOK & BUSINESS MANAQEB) :
Jón Olafsson
ÖLDIN kostar: 1 ár $1,50; 6 mán,
$ 0,80; 3 mán. $ 0,50. Borgist fyrirfram
Á íslandi kostar árg. 4 kr.
Auglýsinga-verð: 1 þuml. dálks-
lengdar eitt sinn $0,25; 1 þuml. 1 mán
$1,00; 3 mán. $2,50; 6 mán. $4,60; 11
mánuði $8,00.
Sendið peninga í registreruðu bréfi,
póstávísun (P. O. Money Order) eða
Express Co. ávísun eða ávísun á banka
í Winnipeg (ekki á utahbæjarBanka).
011 5réf og borganir sendist til:
Olafsson fy C'o. - - - P. O. Box 535.
Winnipeg, Man.
,,Kyrkjublaðiðu
heitir nýtt ísl. mánaðarrit, er presta-
skólakennari séra Þórhallr Bjarnarson
gefr út í Reykjavík, og byrjaði að
koma út í Júlí þ. á. Það kostar
til nýjárs 25 cts. hór í álfu, og
eftirleiðis 50 cts. árgangrinn. Það
fæst í Winnipeg hjá Wilhelm Paul-
son, og í Bandar. hjá Sigf. Bergmann
á Garðar, N. I).
Bláðið er jafnstórt „Sameining- I
unni“ en helmingi ódýrra.
Síðasta nr. af því, sem hingað
hefn' borizt, er 4. blaðíð. Það er
auðvitað ekki hægt að dæma um
blað eftir svo fám nr., sem enn eru
út komin af Kbl.—Svo er nú Old-
in vitanlegt „vantrúar“-blað og rit-
stjórinn vitanlegr „guðsafneitandi“
(þ. e. trúir ekki á nema einn guð);
lesendr blaðs vors flestir ,,núll“ og
„nihilistar“, eins og von er til, því
allr hávaði landa vorra er það; það !
er svo örlítill minnihluti Yestr-ís- j
lendinga, sem tilheyra kyrkjufélagi
séra Jóns Bjarnasonar, og svo ör-
lítili minnihluti af þeim sem til-
heyra því eru ofan í kaupið rétt-
trúaðii'.
, ,Kyrkjublaðið“ er gefið út af
kennara við prestaskólann, og er
því sýnishorn af vantrúar-jökulgaddi
kyrkjunnar á Islandi •— hreint og
beint ,,vantrúar“-blað, sem hver rétt-
trúaðr Jón-lúterskr maðr ætti að
forðast að lesa.
Hér er sýnishorn. Kitstj. segir
í 4 bl. meðal annars um fólkið á
Islandi nú :
„Menn hugsa nú án efa mikið
meira um þá trú á fullorðnum aldri,
sem þeim hefir verið kend í
æsku, en áðr var, af því þekking
manna er orðin meiri og margbrotn-
ari. Af þessu leiðir sjálfsagt trúarefa
hjá sumurn, en líka traustari sann-
færingu hjá öðrum, en hugsunarlítil
venjutrú veitir. Jeg ber engan kvíð-
boga fyrir því, að kristin trú og kristi-
legt siðferði muni bíða sanDan hnekki
af upplýsingu og menningu, meðan
jeg veit, að hinir upplýstu og beztu
menn hvervetna finna æ betr og
hetr, að kærleikskenning þeirrar
trúar er hið fegrsta, bezta og eft-
irbreitnisverðasta, sem nokhurn tíma
hefir verið boðað í heiminum. Jeg
hygg þvcrt á móti, að eftir því sem
hver þjóð og hvei' einstakr maðr
verðr sannupplýstari, eftir því muni
betr sjást, að hofuðatriði kristilegra
ti'úarbragða,—en það er ltærleiksrik,
guði helguð hreytni,—sé í sínu insta
eðli samkvæmt því, sem göfugast
og bezt er í mannssálinni, og að
] hin blessunarríku, siðbætandi áhrif
kristinna trúarbragða eigi þá hægri
| aðgang að hjörtum mannanna en ellaí;.
Ef þetta er ekki „vantrú“ eftii'
kenning séra Jóns og „Sam.“, þá
erum vér hættir að skilja.
En meira sláandi sönnun fyrir
því, sem haldið var fram í ritlingi
1 J. O. „til hugsandi manna“, að
| lúterska á Islandi sé allt annað
! en Winnipeg-lúterskan, er varla auð-
ið að fá.
Vér höfum ekki allfáa kaupendr
og lesendr meðal lúterskra kyrkju-
manna hér vestra, og þeim jafnt og
vantrúarmönnunum segjuin vér í ein-
lægri alvöru : hverju því blaði, sem
fylgir þessari skoðun, sé heill og
heiðr, hvort sem það er lúterskt
eða únítara-blað eða heyrir einhverri
annari kyrkjudeild til. Yér erum
eigi lúterskir, og vér vitum að rit-
stj. Kbl. hefir aðra kreddu (trúar-
játning) en véi'. En vér förum ekki
að því. Yór virðum og mikilsipet-
um hvern þann, sem prédikar kær-
leikann sem miðpunkt og kjarna
’sinna trúarbragða, hvort sem hann
að öðru leyti trúir eins og vér á
„einn einasta sannan guð og engan
nema hann“, eða á „þríeinan“ guð
eða tvo guði eða engan.
Vér viljum ráða þeim lesendum
vorum, sem kaupa eða lesa „Sam-
eininguna“, að kaupa eða lesa líka
„Kyrkjublaðið“ og bera svo saman.
FRÁ LESBORÐINU.
ER DRYKKFELDNI LÆKNANLEG ?
Ritstjóri ins merka mánaðarrits
Nokth Amekican Review bað í sum-
ar fjóra meðal allra helztu lækna í
Ameríku að svara þessari spurning.
Þessir menn vóru Dr. Win. A. Ham-
mond, Dr. T. D. Crothers, Dr. Elon
N. Carpenter og Dr. Cyrus Edson.
Birti svo tímaritið svörin í Septpmber-
iieftinu. Vér höíðtim tekið greinar
þessir fyrir til að gera ágrip af þeim
í þessum bálk blaðs vors („Frá les-
borðinu").
Blaðið Lögbekg flutti rétt í því les-
endum sínum þýðing á grein eins
þessara lækna, Dr. Hammonds, í heild
sinni, og hættum vér þá við að prenta
útdrátt vorn. Grein Dr. Hardmonds
gefr ljósari hugmynd en nokkurt á-
grip um h a n s skoðun á málinu, en
harila einliliða og því ófullkomna
hugmvnd um, hvað r.æst liggi að álíta
j sannleikann í þessu máli, eins og nú
j stendr.
Þaö er nefnilega íjarri því, að
spurningunni sé full-svarað af inum
4 læknum, svo að sannfærandi sé fyr-
ir þá er sannleikans vilja leita ltleypi-
dómalaust.
Allir 4 læknarnir í N. A. Review
játa það, að lækna megi drykkfeldni.
En þeim keinr öllum saman um það,
að eina aðferðin til þess, sem dugi,
sé sú, að inn drykkfeldi rnaðr fari í
algert bindindi, og þá muni náttúran
sjálf koma líkamanum í samt lag aftr
og smámsaman eyða tilhneigingunni.
Allir viðrkenna þeir, að drykkfeldnin
sé sjúkdómr, líkamlegr sjúkdómr, sem
sjúklingrinn ýmist fái að erfðtim, eða
baki sér sjálfr.—En einmitt þetta vekr
efa manna um, að sjúkdómrinu í
ö 11 u m tilféllum (t. d. þar sem hann er
arfgengr, ef til vill í marga liði) sé
læknanlegr með bindindi einu. En
enda þótt svo væri, þá er því svo
sjaldan að heilsa, að þeirri lækning
verði við komið, því að til þess þyrfti
oft að halda sjúklingnum langan tíma
í varðhaldi. Því að vitanlega hefir
sjúkdómrinn þau áhrif að veikla vilj-
ann, svo að margr, sem sárlangar til
að læknast, hefir ekki sálarþrótt til
að nota þetta eina meðal, fríviljugt
bindindi.
Það liggr og ofr-nálægt að spyrja:
Ef sjúkdómrinn er arfgengr, og hefir
þannig orsök sína í líkamabygging
mannsins, hví skyldi hann þá eigi
geta læknazt með lyfjum? Eina or-
sökin til þess hlyti að vera sú, að
menn skorti enn þá næga þekking á
eðli hans. En sé svo, þá er og alls
eigi unnt að fortaka, að þessi þekk-
ing geti fengizt þá og þegar, og þá
ætti og ráð að geta fundizt gegn þess-
um eins og hverjum öðrum sjúkdómi.
Að því er til þess kemr, livort
sjúkdómrinn sé læknanlegr með lyfj-
um, þá neitar Dr. Hammond því
liarðlega, að lyf geti gert nokkurt
gagn í þessum sjúkdómi. Dr. Car-
penter talar mjög varlega um þetta
og lætr í ljósi efa sinn að eins. En
inir tveir síðast nefndu læknar segja
alls ekkert um það.
Dr. Hammond segir meðal annars :
„Það er ekkert lyf eða lyfjasamsetn-
ing til, sem getí læknað mann af
drykkfeldni—eytt löngun hans og lyst
til áfengra drykkja". Þetta er 'nú
vafalaust hin viðtekna niðrstaða lækn-
isfræðinnar nú sem stendr. En það
hefir borið til fyrri enn nú, að við-
tekin niðrstaða fræðimanna hefir orð-
ið að þoka fyrir staðhefðar-dæmum
reynslunnar; því að „reynslan er sann-
leikr", eins og Jón heitinn Repp
sagði, og það er örðugt fyrir lileypi-
dómalausa menn að sjá annað, en að
svo muni fara með þessa fullyrðing
að lyf sé gagnslaus gegn drykkfeldni.
Það er auðsætt, að Dr. Hammond
stýlar neitun sína svo hiklaust og af-
dráttarlaust, til þess að beina henni
sérstaklega gegn staðhæfingu Dr.
Keely’s í Dwight (Illionis); sem kveðst
hafa læknað mörg hundruð manna af'
drykkfeldnis-sjúkdómi, og það á ör-
skömmum tíma, með eins konar sam-
setningu af klóruppleysing (bíclorhid)
af gulli. Dr. Keely hefir það til síns
máls í þessum ágreiningi, að hann
getr bent á hundruð (ef eigi þúsundir)
lifandi vitna, sem geta vottað það að
hann hefir læknað þá. Og þeir hafa
komið fram hrönnum saman, síðan
greinarnar i N. A. Review komu út,
og hafa borið vitni. Og það hafa
ekki verið neinir einfeldningar, svo
sem þeir er venjulega láta ginnast til
að gefa húmbúgslyfjum meðmæli, né
lieldr neinir nnituþægir misendismenn,
eins og nokkrir læknar (stundum
dæmdir glæpaþrjótar), sem láta íol
vottorð fyrir góða borgun. Nei,
það hafa verið hámentaðir, valin-
kunnir menn, sem hafnir eru langt
yíir allan óráðvendnis-grun. Það eru
bæði ritstjórar, háskólakennarar, prest-
ar, þingmenn, landstjórar, hæstaréttar-
dómarar í tölu þeirra sem Dr. Keely
iiefir læknað. — Meðal annars var fyrir
skörnmu átakanleg grein í blaðinu
New York Sun frá manni, sem sjálfr
hafði lækning þegið í lækningarstofn-
uninni í Dwight hjá Dr. Keely. Hann
getr þess meðal annars, að meðan
hann var þar til lækninga, hafi ná-
lega á hverjum degi komið þangað
(til Dwight) meiin, sem komu að eins
til að sjá aftr staðinn,. sem var orð-
inn þeim svo kær, að þeir kváðu sig
langa ineira til að sjá hann aftr, en
til að sjá aftr æsku-stöðvar sínar, því
að í Dvvight liefðu þeir í sannasta
skilningi endrfæðzt. Það má auðvitað
deila um það, hvort læknfngin muni
verða æfilöng, því að fiestailir menn-
irnir, sem læknazt hafa, lifa enn. En
að lækningin hefir dugað nú í mörg
ár, er ómótmælanlegt, og nálega allir,
sem verið hafa undir læknismeðferð
Dr. Keely’s, eru sjállir sannfærðir um,
að batinn muni vera æfilangr. Og
fyrir mann, sem verið hefir drykk-
feldr, og þráð að læknast, er þetta
eigi lítilsvert. Það hlýtr í allra aug-
um að vera að minnsta kosti fullt
eins mikils vert, eins og sú fullvrð-
ing eins læknis, þótt merkr sé, að
drykkfeldni muni ekki verða með lyfj-
um læknuð.
Dagblaðið Skandinaven, sem gefið
er út í Chicago (73 mílur þaðan í
suðvestr er Dwight), lét nýlega mann
úr ritstjórn blaðsins fara suðr til
Dwight, til þess að grenslast eftir
læknastofnuninni, og liefir hann í blað-
inu geíið fróðlega lýsing af því sem
hann sá og komst að raun um, og
höfum vér í hyggju að reyna að fá
rúm bráðlega í blaði þessu fyrir ágrip
af skýrslu hans.
Mál þetta er alt svo mikils vert,
jafnmikið heims-böl sem drykkfeldnin
er, að það er þess vert í alla staði,
að það sé rannsakað. Og efreynslan
siaðfestir það til fullnaðar (sem allt
útlit er fyrir), að drykkfeldni sé lækn-
anleg með lyfjum, þá ætti landstjórn
Bandaríkjanna að fullborga Dr. Keely
fyrir, að gera öllum heyrum kunna
aðferð sína og samsetninguna á lyfinu
—alveg eins og Þýzkalands-stjórn fór
að við Dr. Kock.
tíMÆLKl.
Victoria drottning ræðr nú yfir 367
miljúnum mánna í öllum álfum lieims-
ins, og er það inn mesti mannfjöldi,
sem nokkur einn stjórnandi hefir
nokkru sinni yfir ráðið frá heimsins
sköpun til þessa dags.
— Margt verðr fágætt á Chicagó-
sýningunni, sem við er að búast. Með-
al annars verðr þar að sjá stórfeng-
legasta planka, sem nokkru sinni hefir
til verið. Þaö er nýbúið að vinna
hann í Californíu; hann er úr rauða-
viði. Tréð, sem hann er úr skorinn,
var sagað sundr 24 fetum fyrir ofan
jörð, og var svo plankinn höggvinn
úr stofninum, sem þannig stóð eftir.
Árhringirnir á trénu sýndu, að það
var 1500 ára gamalt. Tveir menn vóru
í máiiuð að höggva plankann; hann
er 20 feta og í) þuml. langr og 10
feta og 5 þuml. breiðr, og gæÞ því
einn nægt í gólf á stóru berbergi.
PJÁBJSTÁM.
Smásaga frá Bandaríkjunum
eftir Le Roy Armstkong.
(Niðrl.). „Og það er bezt að útkljá
það hér þar sem við erum“, svaraði
Reltier þurlega. „Þér byrjuðuð á þessu.
Þér hélduð honum í skuldabandi með-
an liann var heilbrigðr, og nú reynið
þér að ræna hann aleigu sinni með-
an hann er veikr. Það er vafalaust
tilgangr yðar
,að skjúta’ aldrei yfir mark, en ávalt
hitta',
eins og Pope segir; en í þetta skifti
liafið þér skotið yfir markið. Hvort
viljið þér nú lielclr, taka viö upphæð
skuldarinnar með laga-vöxtum, eða
lialda áfram að bjóða betr?‘
Lavater gafst upp. Hann seldi og
afhendi skrifiega að lögum skuldkröfu-
rétt sinn prentaranum Latone Peltier-
En það var ekki óðara þurt blekið á
afsalsskjalinu, og Lavater komin11 út
úr dyrunum, heldr en kaupandi lét
útbúa annað löglegt slcjal Þess efnís,
að liann seldi og afiieiuli í hendr J.
Q. Hammerton allan þann eignrétt
til skuldarinnar, er hann hafði ný-
keypt, og hélt hann síðan beina leið
af upðboðsstaðnum og heim á skrif-
stofu Segulstalsins, og var svo inni-
lega glaðr og þakklátr í huga, eins
og hann væri nýbúinn að erfa „öll
rlki veraldar og þeirra dýrð“, eða all-
ir hans óvinir liefðu verið gerðir að
fötaskör hans.