Öldin - 09.12.1891, Side 1
ÖLDTN, an Icelandic WeekJy
Record of Current Events
vnd Conteraporary Tliouplit.
öubscr. Price 01.50 a year.
Olafssos & Co. Publisliers.
LD I N
0
Advertising Rates:
1 inch sinple column:
1 month; 3 mo’s; 6 mo’s; 1 year
$1,00; $2,50; $4,50; $8,00.
Adr.: Box535, TYinnipeg, M.an.
I. 10.
WINNIPEG, MAN., MIÐKUDAG, 9. DKSEMBER.
MT
FRETTIR.
UTLÖND.
— Carlsberg-sjóðkimn í Kaupm.höfn,
er vísindafci. danska ræðr yfir, ætlar
að leygja íram fó til að gefa út ið
nýja Obðsafn Jóns rektors Þorkels-
soxar.
— B. Steincxe kaupmaðr andaðr í
Kaupmannahöfn.
— Dr. Jón Stefánsson orðinn aðstoð-
arbókavörðr við kgl. bókasafnið í Kaup-
mannahöfn. • (Sunnanfari).-
— Barnamorðmálið í Kaupmanna-
höfn. Fyrir rúmu ári fanst hálfrotið
barrslík í Eibagade Nr. 9 í Kaup-
mannahöfn. Þar bjó þí maddama
Rasmussen nokkur, sem tók börn til
fóstrs, og var lögregluþiónn se ídr til
að taka hana fasta, Hún kvaðst sak-
laus vera, en sagði 1 ögregltiþjóninum,
að Fransisca Madsen, yfirsetukona í
Ravnsborggade væri sú sem sek væri
í þessu, og narraði hún með þessu
lögregluþjóninn til að fara þangað til
að taka hana (Fr. M.) fasta, en á með-
an hengdi hún (Mad. R.) sig. Síðan
komst það upp, að þetta var stærra
mál en út leit fyrir í fyrstu; hafði
mad. Rasmussen drep ð nálega öll b'jrn,
sem hún hafði tekið t.il fóstrs og feng-
ið meðlag með einu sinni fyrir alt.
Ilaíði svstir hennar hjálpað henni.
Þær drápu börnin á ópíum, sem þær
bæði gáfu þeim í mat og heltu ofan
í þau í svefni. Opíum fengu þær eft-
ir forskriftum írá Móritz Halldórssyni
Friðrikssonar, er var praktíserandi
læknir í Höfn. Hann hafði og gefið
út læknisvottorð um dauðlaga og
dauðaorsök barnanna. Móritz þessi er
íslenzkr í íöðurætt, sonr Halldórs
Friðrikssonar yfirkennara við latínu-
skolann. Undirréttardómr f,11 í máli
þessu 7. f. m. og var Maren Rasmus-
sen (systir þeirrar sem hengdi sigj
dæmd í 16 ára liegningarhússvinnu,
en Móritz læknir Halldórsson Friðriks-
sonar í 3 ára betrunarhússvinnu, —
Ekkert af blöðunum, sem út koma a
íslandi, befir enn í dag nefnt þetta
glæpamál á nafn, af því að sonr
embættismanns í Reykjavík á í hlut,
og sjáit'sagt munu þau þegja um það
enn, er dómr er fallým.
— Vilhiálmr ferð.ilangr Þjóðverja-
keisari hefir nú gefið út postillu. í
henni eru prédikanir, sem keisarinn
hélt sjálfr fyrir skipshötn sinni á her-
skipinu „Hohenzollern", er liann fór
til Noregs. Postillan heitir: ,;Drottins
raust á vötnunum“. Hann verðr nú
líklera næst um hríð kallaðr Vilhjálmr
postillu-keisari.
— Brazilía. 41. gr. stjórnarskrár-
innar kveðr svo að orði: „Varaforseti
þjóðveldisins skal kosinn um leið og
forsetinn; í forföllum forseta gegnir
hann störfum hans, og verði forseta-
embættið laust, tekr va-aforseti við
völdunum“. E11 svo segir 42. gr.:
„Verði forseta-embættið eða varafor-
seta embættið laust af einhvrri ástæðu
áðr en tvö ár eru liðin af embættis-
tímanum, skal ný kosning fram fara“.
Nú var ekki liðið fult ár uf þessu
kjörtímabili Fonseca, og samkvæmt
þvi verðr það skvlda Peixoto’s, sem
að eins gegnir embættinu um stund-
arsakir, að ldta kjósa forseta. Lögá*
kveðni kjördagrinu er 1. Marz.
— 25,000,000 Rússa Tiafa eigi getað
goldið útsvör sín og skatta í ár sakir
uppskerubrestsins þar í landi.
— I b.e.iarst.tórninni í Brussel hafa
komizt upp stór fjársvik; eiun bæjar-
fuiltrúinnfeinhver þ.irlenir „Kr. Ó. Þ.“)
hafði stolið 200,000 frönkum.
— Ekkjb-drottningin af Hollandi
hefir keypt s>r lífsábyrgð fyrir 3 mil-
jónum gyllina til inntektar fyrir dottr
sína drottninguna.
— Einvígi tíðkast mjög í Ítalíu;
að ætla má, þar sem stjórnin, þegar
þing var sett, varð að beiðast leyfis
að setja 17 þingmean undir kæru fyr-
ir hólmgöngur.
í Leipzig hefir verið reist nýtt bók-
hlöðuhús fyrir háskólann, skrautleg
bygging í ítölskum renaissance-stýl,
og kostaði 3 miljónir marka. .
— Hrossaketsát tíðkast nú æ meir
og meir í Berlín. Á fyrstu 6 mdn-
uðnin ársins í fvrra var þar slátrað
6300 hrossuin til manneldis. Fyrra
missiri þessa árs nam talan 7000 full-
um. Og þetta er að eins tala þeirra
hrossa, sem sLitrað var á að.ilslitrun-
arhúsinu. En auk þess eru 42 hrossa-
sldtrhús í Beilín.
— Chb. Berg, inn nafnkendi flokks-
foringi í liði vinstri manna í Dan-
mörku, urn eitt skeið foringi allra
vinstrimanna, síðar forseti neðri mil-
stofu á þingi, kvað vera dáinn, sam-
kvæmt því sein hraðfregnir til Banda-
ríkjablaða segja. Þó er að sjá, sem
skandínavisku blöðin sum í Chicago
og Minneap.dis taki fregninni með
nokkrum efa.
— Dom Pedro, fyrverandi Brazilíu-
keisari, andaðist í París 4. þ. m.
eftir nokkurra daga þunga legu.
BANDARIKIN.
— David Hill ríkisstjóri í New
York ríkinu var kosinn við síðustu
kosning þingmaðr í efri deild banda-
þingsins, og varð því að leggja niðr
ríkisstjóravöld nú er hann fór á þing.
En áðr en hann skyldi við í Aibany,
hefir hann verið að reyna að verja
sínum siðustu dögum þ.ir til þess, að
stela löggjafarþinginu. Ja, það liljóð-
ar skringilega, en það var ekkert mis-
mæli: David ITill hefir einmitt verið
að reyna það, að stela löggjafarþingi
ríkisins. Hill er s 'rveldismaðr (Demo-
crat), en meiri hluti inna kosnu þing-
manna er af flokki samveldismanna
(republicans). Nú liefir Hill sett út
kjörnefndir, þær sem flokksmenn, hans
eru í meiri hluta í, til að falsa upp-
talning atkvæðanna, lýsa ógilj svo 0g
svo mörg af atkvæðum þeirra kasnu
manna o. s. frv. Hvort honum tekst
að hafa þetta fram í brdð, er ós 'ð;
að hinir leiti dómstólanna og vinni
sitt mál er óefað. En að David Hill
skaðar með þessu demokrata-flokkinn,
ekki í New York að eins, iieldr liver-
vétna um ríkin, er því miðr víst.
— Til NorðrtDakota liefir Jobbers’
Union í St. Paul sent 188 þreskivél-
ar í haust og um 9000 verkamenn.
Þó er áætlað, að um fjörðungr ulls
hveitis þar í ríkinu sé enn óþresktr
og verði að líkindum svo til vors.
— í fyrra dag var bandaþingið sett
í Washington. Ekki varð lokið forseta-
kosningu í þjóðfulltrúa-deilJinni (House
of Repr.). Var 18 sinnum gengið til
atkvæða, og enginn náði kosningu-
Þingmenn eru 332 talsins, og eru
138 af þeim endrkosnir menn, er sátu
á síðasta þingi; en 194 af þeim er
síðast vóru þingmenn, vóru eigi endr-
kosnir; 194 eru því nýir, en afþeim
hafa 19 áðr fyrri setið á þi iginu.
Það eru því alls 157 menn á þingi,
sem áðr hafa átt þar sæti einhvern
tíma, en 175 alveg nýir. 87 eru sam-
veklismenn (Republicans) en 245 sér-
veljismen (Democrats) eða bændaflokks-
menn (Farmers Alliance men), en
sá flokkr mun alls vera 8 manns.
— Frá Minneapolis er sagt 28. f.
m., að si dagr hafi verið kaldasti
Nóvember-dagr, sem komið hefir þar
í 10 ár; kuldinn —12 st. á Fahr. í
St. Cloude —18 stig og í Ortonville
—24 stig á Fahr. — Veðrfræðisstofan
í Minneapolis segir, að Nóvembermán.
i ár bafi verið þar jafnkaldari en
nokkru sinni í síðustu 20 ár, eftir því
sem veðrbækrnar skýra frá.
— Frá Grand Forks, N. D., er
skrifað 24. f. m.: „Hingað hafa kom-
ið ungverskir Gyðingar frá Canada,
styrktir vestr þangað frá Norðrálfu.
Þeir eru allslausir, og til að forðast
fátækravamlræði, verðr að endrsenda
þá norðr yfir landamærin. í dag var
einni allslausri fjölskylJu , sem að
norðan kom, snúið bér við, og hún
endrsend til Winnipeg.
— Kjörmanna-samicoma samveldis-
manna í Bandaríkjunum á að liald-
ast í Minneapolis.
— St. Paul er að reyna að na í
kjörmanna sainkomu sjrvelJisflokks-
ins, að liún verði haljin þar.
— Cyrus Field , inn nafnkunni
millíóna-eigandi, sem tók svo mikinn
þátt í að leggja fyrsta málþráð yfir
Atlautshaf, liggr nú fyrir dauðanum,
blálátækr. Hann misti fyrir skömmu
konu sína og hefir síðan farið sí-
hnignandi að lieilsu. Sonr hans rak,
í folagi við aðra, stóra verzlun í
lirook lyn, en hefir tapað fé og svo
svikið felaga sína og skiltavini og
falsað verðskjöl. Hann fór til fóður
síns og kvaðst vera í fjárþröng; ganili
Cyrus FielJ fekk honum lvklana að
járnskáp sínum og sagði hoimm að
taka þar það sem hann þyrfti. Þar
var aleiga ins gamla sjúka manns,
í verðbréfum og peningutn. Sonrinw
tæmdi skápinn, og selji allt, sem
hann fékk þar, en það virðist ekki
hafa hrokkið til. Rett á eftir vur
hann tekinn fastr fyrir svlk. Reyndi
hann þá að drepa sig, en mistókst
það. Hann er nú orðinn vitluus og
fiuttr úr fangelsinu á vitfirringaspit-
ala. En inn gamli maðr liggr dauð-
vona á banasænginni, eins fátækr og
allslaus eins og þegar hann fæddist
í heiminn.
—t í Sargent Co., N.-Dak., er kvart-
að mikið uudan úlfum; gera þeir
mikið tjón á sauðfé.
— Ný Keeley-stofnun. 4 auðmenn
í Detroit, Mich., hafa keypt af Dr.
ICeeley rétt til að nota læknisaðferð
iians við drykkfeldni. Hafa þeir leigt
stórt hús í þorpinu Northville og
ætla að koma þar upp lækninga-stofn-
un undir forstöðu Dr. A. E. Carricr’s.
Svo hafa þeir keypt góða lóð í bæn-
um Northvilie og ætla að reisa þar
á stórkostleg hús fyrir stofnuuina.
CANADA.
— Það er töluvert talað um það
i austanblöðum um þessar mundir,
að Hon. W. R. MereJith muni verða
i nnanri kisráðgjafi í Dominion-stjórn-
inni.
— C. P. R. ætlar að leggja annað
spor til Fort William í viðböt við það
sem nú er, svo brautin verði tvíspor-
uð. En þaö er æði ílt að leggja braut-
ina sumstaðar sakir votlendis, svo að
þuð er búizt við að þetta taki nokk-
uð langan tíma, og telja sumir lík-
legt, að bein braut til Duluth verði
á komin áðr en hinu verkinu er lokið.
UM VEÐR OG VIND.
Það heldr áfram árið að tarm
að vera annálsvert fyrir fátíða veði'-
áttu. I Apríl þ. á. var hér svo mik-
ill hiti, sem frehast hafa farið sög-
ur af um þann tíma árs, og ekk-
ert þvílíát hafði þekzt hór um
mörg ár. Maí snéri við blaðinu
og komu niargir sárkaldir dagav í
þeim mánuði. Júlí var óvenjulega
kaldr, eftir því sem hér er vandi
til og mjög vætusamr. Ágúst hyrj-
aði með á^aflega miklum hitum, en
svo gerðist Ualt veðr, er á leið
mánuðinn, með talsverðum nætr-
frostum. I September var heitara
veðr en menn hafa nokxurn tíma
haft sögur af hór í þeim mánuði.
Og Nóvember aftr hetir verið svo
grimdar-kaldr að elztu menn muna
varla dæmi slíks. Og svo kemr nú
December og byrjar með frostleysu-
dögum, svo rennr af húsutn, og er
það óþekt veðr í þeim mánuði.
(Eftir „Commercial".)
GAMAN
c
o
‘vyvAiv
— Skáldið Crebillon var miklil
hunda-vinr og átti fjöl.la hunda. „Hve-
nær tókstu upp á því að fara að
halda þennan hundasæg?" spurði vinr
iians. „Síðan ég fór að þekkja mann-
eskjurnar“, var svarið.
— Fáfræðin er lífvörðr lyginnar (Dr.
G. Brandes).
— Rivarol sagði um Mirabeau:
Hann gerir allt fyrir peninga, jafn-
vel góðverk.
— Jónatan og Patt g'engu sainan
fram hjá gálga, sem enginn hékk í.
„Hvar heldrðu þú værir, ef gálginn
sá arna væri ekki mannlaus?" spurði
Patt. „Ó, ég væri h: r þi líklega einn
á ferð“, svaraði Jönatan.