Öldin - 01.11.1894, Page 19

Öldin - 01.11.1894, Page 19
ÖLDTN. 179; ur um mann allan, or maður les dagsetn- inguna á þessum plötum, því þar ,má sjá ártöliti 1880—81—82. Hér getur að iíta mann, sem var í blóma aldurs síns fyrir einum 8 árum. Hann var fullur af lífi og fjöri, hló og hjalaði, át og drakk. Og að sjá hann nú ! — Fyrir framan beinagrinda raðirnar er hlaðið upp kistum og kössum úr svört- um við, koparslegnar og vel að öllu búnar, og á lokinn er gluggi með gleri 1 svo hægt sé að sjá inn í þær. Manni dettur ósjá’f- rátt í hug fcrðakoffort, sem hinir fram- liðnu hefðu keypt í feinhverri búðinni áður en þeir lögðu út í hina löngu “vegferða- reisu”, eins og gamla fólkið segir. Til beggja hliða eru aðrar geysi-stór- ar hvelfingar, enda er það meira en litið svæði, sem hann tckur yfir þessi kyrkju- garður neðanjarðar. Kvenna-hvelfingin er enn hjákátlegfi en karlmanna, því þar enda lýsir sér til- gerð í klæðnaði kvenn-múmíanna, íglingr- inu, sem á þær hefir verið sett. A höfðinu eru drifhvítar knipplinga-húfur, skreyttar böndum, . og ber þær undarlega af við hið svarta, rotnaða og skræinaða andlit. Hend- urnar standa fram úr ermunum á nýja kjólnum, eins og skornar trjárætur áað sjá, og sokkarnir, sem hanga á fótunum, virð- 'ist vera tómir. Stundum hafa múniíurnar að eins skó, langt um of stóra fyrir liina skrælnuðu fætur. Ungu stulkurnar eru út af fvrir sig, þcssar hryllilegu ungu stúlkur, í hvítum klæðum með málmkrúnu- tákni sakleysisins á enninu Þær líta út sem fjörgamlar kerlingar, svo er andlitið skælt og skrælt, og þó eru þær ekki eldri en 19—20 ára. Hvílík voða-sjón. Við komum inn í eina hvelfingu, al- skipaða litlum glerkistum. Það er barna- reiturinn. Það er naumast hægt að ráða í hvað í kistunum er, svo mjög er allt orðið rotið, vanskapað og umbreytt—vegna þess að beinin í börnunum eru miklu meirari en í þeim fullorðnu. Manni vöknar um augu að sjá þessa sjön, því mæðurnar hafa- fært þau í fbtin, gern þau seinast voru í, er- þau lifðu. Og þær koma liingað til að sjá. þau aftur svo búin. Stunduni eru Ijósmyndir Iiengdar upp hjá iíkunum, sem 3ýnir hvernig hinn látni leit út í iífantla llf.. Etikert getu'- verið hræðilcgra né fengið meir á mann, eil bessí samjöfnun og þær hugmyndir, er hjá oss vakna við þann samanburð. Við förum gegmun einn gang, sem cr lægri og dimmari en annars staðar, og er fátæklinga-reiturinn að því cr mér sýndist. I einu horninu, mjög skuggalegu, hanga um tveir tugir lika rétt undir þak-vind- auga einu, sem loftið utan frá sti'cymir inn um í sterkum kviðum. Þau cru klædd í svarta sloppa og dregið að hálsi og fótum, og cins og lialla sér hvort upp að öðru, nlstandi af kulda og veinandi um hjálp. Manni dettur ósjálfrátt í hng drukknaðir sjómenn, og að vindurmn væri enn þá að leika sér að því, að blása á brúnu olíufðtin þeirra. Manni virðist som enn séu þeir skjálf- andi af angist, cins og það augnablikið, sem særinn svalg þá í sig. Seinast lítum vér yftr presta-livelfing- una — virðingarmesta hvelflngin í þessum jarðgöngum. í fljótu bragði cr þessi hvelflng einhver sú viðbjóðslegasta yfir að líta, prestarnir og prelátarnir eru klæddir í þeirra g-eistlega tignarbúning, ýmislcga litan, svartan, rauðan og fjólulitan. Én virði maður fyrir sér hvcrn fyrir sig, getur maður ekki varizt hlátri, því hjákátlegri og öllu leiðinlegri stellingar getur ma'ur varla óskað sér. Sumir eru sem syngjandi, aðrir scm mcð bænir á vörum, ”horfancli til himins með krosslagðar hendur. Á blá- skallanum á þessum krúnurökuðu herrum situr embættis húfan, en á sumum er henni tiklrað utan í annan vangann, á öðrum heflv hún sígið niður fyrir augun. Þetta er grimudans dauðans, sem gullskrautið og preláta-búningurinn gerir enn hlægilegri.

x

Öldin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.