Kvennablaðið - 18.02.1903, Page 1

Kvennablaðið - 18.02.1903, Page 1
Kvennablaðid kost- ar i kr. 50 au. inn- anlands, erlendis 2 kr. (60 centsvestan- hafs). 1/2 verðsins borgist fyrirfram,en 3^ fyrir 15. júlí. ♦ Uppsögn skrifleg bundin vid ara- mót, ógild nema komin sé til út- gef. fyrir 1. okt. og kaupandi hati borgað að fullu 9. ár. Reykjavík, 18. febrúar 1903. M 2. Reykjavík í króklogjkring. REYKIAVÍK (TJARNARMEGIN). I. Útsýnið frá Árnarhnli. P MSUM mönnum mundi ef til vill hafa þótt betur eiga við, að lýsa útsjóninni frá Hólavelli, heldur en frá Arnarhóli. En af því að fyrsta hugmyndin að þessum greinabálki, er ekki upphaflega frá mér, heldur mannin- um mínum sál., þótt eg taki hana nú eins og að erfðum, til þess að láta hana ekki falla alveg niður, þa vil eg láta þessar greinar ganga algerlega í sömu átt og eg vissi til að hann ætlaði sér. Auðvitað viðurkenni eg vanmátt minn til þess að gera þær svo úr garði að nokkur líking verði á móti því, sem hann mundi hafa gert, ef honum hefði enst aldur til. En ýmsar myndir hygg eg megi þó draga upp fyrir sjónum lesendanna, sem skýri fyrir ókunnugum afstöðu og ástand höf- uðstaðar landsins. Þeir sem kunnugir eru aftur á móti staðháttunum og bæjarbrag hér, geta svo borið þetta saman við sína reynzlu.

x

Kvennablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.