Kvennablaðið - 07.10.1903, Qupperneq 1

Kvennablaðið - 07.10.1903, Qupperneq 1
Kvennablaðið kosl- ar x kr. 50 au. inn- anlands, erlendis 3 kr. (60 ccntsvestan- hafs). 1U verdsins borgist fyrirfram,en fyrir 15. júlí. 'trntttftBlftbib ♦ Uppsögn skrifleg bundin við ára- mót, ógild nema komin sé til út- gef. fyrir x. okt. og kaupandi hati borgað að fullu. 9. ár. Reykjavík, 7. október 1903. Jti 10. Reykjavík í krók og kring. VI. Á höfum vér nú skoðað oss um í höfuðstaðnum, gengið upp a helztu sjónarhæðirnar, skoðað útsýnið hringinn i kring og litið eftir strætaskipun, götum, stígum og — rennum bæjarins. Nú skulum við skygnast lítið eitt eftir bygging- unum. Fyrst og fremst þeim opinberu, eða þeim byggingum, sem reistar eru og viðhald- ið er af almennu fé, og síðar eftir þeim, sem eru eign einstakra manna eða félaga, Ein af elstu byggingum bæjarins er lands- höfðingjahúsið. Það stendur skamt fyrir austan lækinn, suð-vestan til á Arnarhóls- túninu. Hvorki er það stór né vegleg bygg- *ng> °g Slzt mundu útlendingar og aðrir ó- kunnugir gestir, sem farið hefðu v(ða um lönd og kynnst bústöðum landstjóra og æðstu embættismanna þjóðanna ætla, að hér byggi landshöfðingi Islands. Það er hvítt steinhús, og að því leyti líkt forsetahöllinni í Washing- ton í Ameríku, en þá eru víst Hka líkindin upptalin. Landshöfðingjahúsið okkar er lágt einloftað hús, sem snýr í norður og suður, með kvisti ofan á með fimm gluggum. Það er mjög þakhátt, og ekki breitt. Stafnglugg- arnir uppi á ’lofti eru mjög smáir, svona á- hka og meðal kýraugu. Enda var húsið í fyrstu aðalhegningarhús landsins. Nú er landshófðingi að byggja sér íbúð- arhús, sem hann á sjálfur, syðst í Þingholts- stræti, sem hann flytur eflaust í, þegar nýja stjórnarbreytingin kemst á. Því húsi verður lýst síðar. Annað elsta húsið í borginni af opinber- um húsum er dómkirkjan. Hún stendur niðri í miðjum bænum, sunnan til, og hefir Tjörn- in víst fyrrum náð norður undir hana. Dóm- kirkjan hefir verið allveglegt hús, þegar hún var bygð, og mjög stór eftir fólksfjölda bæj- arins um þær mundir, þótt hún sé nú orðin langt oflítil. Hún var bygð árið 1847, eins og hún er nú Ymsir finna það að henni, að hún sé ekki bygð í neinum „stíl“, og turninn á henni sé bæði lágur og ljótur. í turninum er kirkjuklukkan, sem gamli Thomsen gaf- bænum Á henni eru fjórar skífur, eða fjög- ur andlit, og má því sjá á hana frá öllum átt um bæjarins, þaðan sem turninn sést. Að vestanverðu við kirkjuna, en hér um bil í sömu röð er alþingishúsið. Það átti í fyrstu að standa út á Arnarhólstúni, en þar komst það aldrei lengra en grunnurinn, og þótti nóg, þegar ekki varð af byggingunni. Alþingishúsið er steinhús og mjög veglegt fyrir margra hluta sakir, hvað bygginguna snertir, en stór lýti eru það á því, hvað grunnurinn undir því er lágur, og lýtir það mjög alla bygginguna. Utan á því uppi yfir dyrunum er flatti þorskurinn og fálk- inn í bróðurlegri einingu, en þar út frá báð- umeginn á allri franihliðinni landvættir ís- lands, líklega til að tákna að þorskurinn sé einn af þeim. Um hann hefir þessi staka verið kveðin: „Á þinghúsinu er þorskurinn, það er að segja’ hinn flatti. En kæmist þorskur þangað inn, það væri ljótur skratti". í þinghúsinu er Landsbókasafnið, Lands- skjalasafnið og safn Jóns Sigurðssonar. Þar er líka sa eini vísir, sem vér eigum til mál- verkasafns, sem að vísu er svo örlítill, að varla er teljandi. Stór og fallegur blómagarður er að baki þinghússinu með steinlímdum grjótveggj- um að utan, og inni fyrir ýmsum blóinum

x

Kvennablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.