Kvennablaðið - 30.11.1903, Side 1
tCvennabladið kost-
ar x kr. 50 au. inn-
anlands. erlendis s
kr. (60 cents vestan-
hafs). verdsins
borgist fyrirfram,en
2/2 fyrir 15. júlí.
♦
Uppsógn skrifleg
bundin við ara-
mót, ógild nema
komin se til út-
gef. fyrir x. okt.
og kaupandi hah
borgað að fullu.
9.
Reykjavík,
30. nóverr.ber 1903.
M 11.
Reykjavík í krók og kring.
VII.
ÍÐAST en ekki sfzt teljum vér barna-
skólann.. Það er stórt og fallegt
tvíloftað timburhús að austanverðu
við Tjörnina norðan til, með stórum glugga
röðum móti vestri. Austur úr sjálfri skóla
byggingunni að norðanverðu gengur lang-
ur armur, með gangi inn í skólann og
sérstökum útidyrum. Það er leikfimishús
skólans og er bæði bjart og fallegt, einhver
með stærstu samkomusölum hér .Enda
þarf rúmgóðan sal, þar sem börnin mæta
Öll til bæna, þar er og skólinn settur og
honum sagt upp.
Ut úr skólabyggingunni að sunnanverðu
andspíenis leikfimishúsinu er ætlast til með
tímanum, að önnur áltna verði bygð fyrir
skólaeldhús, sem stúlkubörnin í barnaskólan-
um geti fengið tilsögn í matreiðslu og eld-
hússtörfunv. En lfklega megum við bíða nokk-
ur ár eftir því, að bærinn treystist til að
koma slíkri nauðsynja-kenslu í framkvæmd.
Eftir skólahúsinu gengur breiður gangur
uppi og niðri, og liggja allar kenslustofurnar
að vestanverðu við hann. Þær eru allar bjart-
ar og rúmgóðar. Yfir höfuð ma segja, að
skólinn hafi verið svo vel úr garði gerður
sem föng voru á, að undanskyldu einu aðal-
atriði: Þar er ekki miðstöðvarhitun, eins og
ætlast hafði þó verið til í fyrstu. Öll sú ó-
hamingja stafaði af grein um miðstöðvarhit-
unina, sem stóð í útlendu blaði, sem bygg-
ingarnefndinni barst í hendur, og hún um-
hverfði öllum fyrri ráðstöfunum, og sannfærði
byggingarnefndina um, að bezt væri að halda
sér við ofnana, sem voru þó mjög dýrir. Svo
nú verða instu börnin oft að bakast þar í
steykjandi hita, þrátt fyrir alla „ ventilation"
í skólastofunum.
Af öllum húsum bæjarins, sem ekki eru
bygð a kostnað hins opinbera er St. Jósefs-
spítali veglegasta byggingin. Hann er 70
al. á lengd og 15 á breidd og tvílyftur. Fram-
hliðin snýr beint á móti suðri, og eru á henni
2 útskot með þéttum glergluggum alt um
kring fyrir brjóstveiklinga, svo þeir geti not-
ið sólarhitans, þegar þeir eru á fótum. All-
ur er aðbúnaður og hjúkrun á spítalanum á-
gætur og útbúnaður í kringum hann. Þann-
ig hefir kaþólski presturinn látið grafa eftir
vatni rétt hjá spítalanum, og varð þó djúpt
að grafa, sem næst þvi móts við sjávarmál.
Vatninu er dælt upp. Lokræsi hefir og ver-
ið 'lagt neðanjarðar þaðan og ofan í sjó, en
það hefir bærinn kostað, og er það hinn fyrsti
„klóak“ hér í bæ. Landakot og Landakots-
kirkjan tilheyra Jesúítum eða kaþóiska trú-
boðinu. Nú er gamla íveruhúsið tekið fyrir
skóla, og munu þar helzt eiga að vera þau
börn, sem ætla að taka kaþólska trú, þó eru
lútersk börn líka tekin, og ma furða sig á,
hvernig kaþólskur prestur og kaþólskar nunn-
ur fara að kenna þeim trúbrögð, fyrst þau
eru ein af namsgreinunum, og fyrst kennslu-
bækurnar eru danskar bækur, samdar af ka-
þólskum mönnum handa kaþólskum skólum.
Annars mega embættismenn f Reykjavík eiga
það, að þeir virðast vera frjálslyndir í trúar-
efnum, því ella mundu þeir ekki hafa ver-
ið með þeim fyrstu, að senda börn sfn í
þenna kaþólska skóla, greiða honum þann-
ig braut og auka veg hans með eftirdæmi
sínu. Sumir telja skólanum það til gildis,
að þar læri börnin dönskuna svo vel, af því
alt sé kent á því máli. En naumast munu
Finnar telja það kost á nýju reglugerðinni í