Kvennablaðið - 30.01.1906, Blaðsíða 2

Kvennablaðið - 30.01.1906, Blaðsíða 2
2 'KVENNARLAÐIÐ veraíákafa að segja blaðamanni að skrifa um sérstakt mál og skamma vissa menn. Þegar svo blaðamaðurinn eðlilega sagði honum, að gera þetta sjálfur* fyrst það væri hans áhugamál og honum svo vel kunnugt, þá kvaðst liinn ekki vilja gera það, því með því skrifaði hann ókeypis í blaðið, og hjálpaði honum. Blaðamenn væru skyldir að skril'a um alt, — »og gera allra skoðanir um Jeið að sínum eigin skoð- unum, þótl þær væru gagnólíkar«, sagði hinn. — Auðvitað! hvernig á blaðamaður- inn að tala máli þeirra, sem liafa gagn- ólíkar skoðanir? Það verða þcir sjálfir að gera. Þess vegna verða konurnar sjálfár að tala fyrir málum sínum. Vel má vera, að ýmsar þeirra séu t. d. Kvbl. ósamdóma um ýms mál. Þá verða þær að sý'na það svart á livílu. Ef Kvbl. heldur fram öðr- um skoðiinum í kvenréltindamálum, menta- málum, barnauppeldi o. s. frv., en fjöldi kvenna lieíir, þá er skaðlegt, að allar hin- ar þegi; þær verða að andæfa því og rök- styðja mótmælin. Kvbl. álítur sig ekki óskeikult. Það vill fegið fá að sjá skoð- anir kvenna yfir höfuð á ýmsum almenn- um áhugamálum þeirra og okkar allra. Eg vona, að það sé ekki almenn ástæða fyr- irþögn kvenna í Kvbl.,að þærvilji ekki skrifa neitt »af því það auðgi ritstýruna«, eins og ein útsölukona, sem er blaðinu velviljuð, heíir sagt, að stæði i vegi fyrir útbreiðslu þess í bennar sveit. Við veslings blaðamennirnir höfum þá ekki leyfi til að auðgast af atvinnu okkar, blaðamenskunni, svo við getum haft sómasamlega ofan af fyrir okkur og fjöl- skyldum okkar, eins og aðrir menn. Við eigum líklega að »syngja af sulti« eins og Sigurður Breiðfjörð, og deyja úr hungri eins og hann. Við yrðum eflaust sjálfstæð- ust í dauðateygjum vesaldómsins.---- Nei, því fer betur, að eg er sannfærð um, að fáir hugsa svona. Hvervetna er verkamaðurinn verður launanna, og islenzk alþýða liefir oft sýnt, að hún kann að meta blöð, þótt konurnar hugsi enn þá, að þeim fari betur að þegja og lilusta á aðra, en að ganga opinberlega fram og gefa tillög- ur um, livað gera skuli þeim sjálfum og þjóðinni til framfara. En þér megið ekki lengur draga yður í hlé. Þér eruð meira enn helmingur þess- arar fámennu þjöðar og hún þolir elcki, að helmingurinn skorist undan að taka opin- beran þátt í framfara baráttunni. Vissulega leggja margar af yður fram góðan skerf með atorku og dugnaði í margs konar lífsstöðu, og það er mikið betra en óþörf mælgi. En ekki dygði samt, að allir baukuðu sjer og steinþegðu. Þá j'rði sam- vinnan lítil, »Orðin eru þó til alls fyrst«, og með þeim má oft vekja aðra til nýrra framkvæmda. Takið því höndum saman, vinnið sam- an og talið saman um hvernig þið getið unnið til mestrar nytsemdar! Konur eru vgnjulega hagsýnar. Þær sem þann kost hafa verða að koma með tillögur sínar opinberlega fram. Grafið ekki pund yðvart í jörðu! V irmustofur handa börnum. i. Þegar vér, sem erum farin að eldast, lítum um öxl aftur í liðna timann, og berum hann svo saman við nútímann, þá sjáum vér að gagngerðar breytingar eru orðnar á hugsunarhæltinum og allri lífs- skoðun manna. En sérstaklega kemur mun- urinn fram í barnauppeldinu, og grund- vallarskoðunum þeim, sem þar er farið eftir. Áður þótti alt fullgott banda börnun- um, ogeftir því var víðast breytt; nú þykir ekkert nógu gott handa þeim og þeirri kenningu er leilast við að framfylgja sem allra lengst. Á heimilunum og í skólunum, hvervetna, eru það börnin, sem borin eru mest fyrir brjóstinu. í öllum siðuðum löndum er mjög mikið gert fyrir þau. Skólahúsin eru bygð með því aðalaugna- miði að þau séu sem björtust, loftbezt, hentust og heilsusamlegust fyrir börnin. Ekkert er til sparað, leikvellir og leikstof- ur og leikáliöld, vanta ekki, auk heldur annað.

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.