Kvennablaðið - 30.01.1906, Qupperneq 7
KVENNABLAÐIÐ.
7
skilja. En að foreldraskyldurnar sén uppfyltar
við hvert barn, seni fæðist, pað ætti rikið bæði
að liafa rétt og skyldu til að sjá um. Þá mundi
ekki flnnast flokkur af utanveltubesefum óskil-
getinna barna«.
))Það er svo, pað er svo«, hummaði majór-
inn. »Eg kannast nokkurn veginn við petla
glamur«, og hann snéri sér ópolinmóðlega að
unga lækninum, hálfgramur yfir »bænda« rosemi
hans. »Mér sýnist samt að menn á læknisins
aldri ættu að vera komnir af pvi stigi að sjá
nokkuð persónulega móðgandi i pví að vera
háðir mannlegum lögum; en á Ogðu aldri par
á móti, stendur umbóta ákafinn sem hæst og
er eðlilegri«. (Framh.).
Nkýrsla
um „BAZARU Tliorvaldsensfélagsins
1905.
Eins og flestum mun kunnugt, er „Bazar"
Thorvaldsensfélagsins ekki stofnaður í gróða-
skyni, heldur í þeim tilgangi. að styðja ís
lenzkan heimilisiðnað með því að útvega mark-
að fyrir afurðir hans. Fyrirtækið byrjaði 1
mjög smáum stýl 1. júní 1900, og hefir síðan
getað borið sig sjálft, þó þannig, að félagskonur
leggja til alla vinnu ókeypis. „Bazarinn" tek-
ur til sölu alls konar íslenzkan iðnað, svosem:
tóvinnu, hannyiðir, smíðisgripi úrmálmi, horni
og tré. Eigandi ákveður veiðið sjálfur, en
greiðir í sölulaun lO°/o eða einn tíunda part
söluverðs, sem gengur í kostnað.
Smátt og smátt hefur salan farið vaxandi,
einkum síðan fjelagið á síðasta ári sá sér fært
að kaupa hentugt húsnæði handa „Bazarnum"
á góðum stað. Alþingi hefir stutt starfsemi
félagsins með því að veita þvi í siðustu fjár-
lögum lán, með hentugum afboigunarkjöium
til húsakaupanna. Salan hefir aukist smám
saman. Fyrsta ár „Bazarsins" var hún sð
eins 4296 kr. 45 au., en nú síðasta ár var
hún 19306 kr. 25 au. Síðan „Bazarinn11 byij
aði hefir alls verið selt fyrir 61,973 kr. 41 e.
Allir þessir peningar hafa skifst niður milli
eigendanna að frádregnum sölulaunum.
Mest hefir „Bazarinn “ vérið notaður af
Reykjavík og na?rsveitunum. — Fjarlægari
sveitir hafa einnig notað hann nokkuð, en þó
niinna en æskilegr væri. Kemur það að lík-
indum af því, að „Bazarinn" er ekki svo kunn-
ur alrnenningi út um land sem skyldi.
Af því sem selt hefir verið síðastl. ár,
skal sjerstaklega tekið fram það, sem hér fer
á eftir:
Ullarvinna: 632 pör vetiingar, 596 pör
sokkar, 163 hyrnur og klútar. 384 kvennhúf-
ur, 23 ábreiður, band vaðmál og nærföt fyrir
982 kr. 91 e. íslenzkir skór 557 pör. —
Hannyrðir: 170 ljósadúkar og kommóðudúk-
ar, 201 stk. af öðrum hvítum hannyrðum,
90 stk. af mislitum hannyrðum (ýmis konar
vefnaði, blaðaslíðrum, sessum o. fl.). Slllíð-
isgripir: 1. Úrsilfri: 35 belti, 45 beltispör,
5 millubönd, 142 brjóstnálar, 153 millur og
hnappar, 78 aðrir munir af ýmsum tegundum.
2. Úr horni og tré: 167 spænir, mikið af tó-
baksbaukum, hornum, útskornum öskjum,
kössum, rúmfjölum o. fl. Enn fremur heflr
verið selt talsvert af einkennilegum, íslenzkum
munum, svipum, skinnum (t.óuskinn, sútuð
skinn o. fl.), myndir, bréfspjöld, áteiknaðir
hlutir og margt fleira. — Hafi „Bazarnum"
borist forngripir, hefir forngripasafninu ætíð
verið gert aðvart og það látið ganga. fyrir
kaupum.
Almenningur ætti að nota „Bazarinn"
meira en hann gerir. Alt af fer ferðamanna-
straumurinn hingað vaxandi og flestir af þeim
koma á „Bazaiinn". Sérstaklega skal tekið
fram, að síðastliðið ár hefði mátt selja meira
á „Bazarnum“ af spónum, svipum, tóbaks-
baukum, útskornum munum, (einkum öskum),
silfurbrjóstnálum og sauðsvörtum vetlingum.
Allir eru velkomnir, sem vilja skoða „Baz-
arinn“ og fá upplýsingar um hann.
Sá ágóði, sem verða kann af „Bazarn-
um“ verður lagður í sérstakan sjóð, sem síð-
ar verður varið til almenningsþarfa.
Rvík, 22. jan. 1906.
Forstöðunefndin.
Utan úr heimi.
í Stokkhólmi í Svíþjóð var stofnað hlutafélag
1904, sem kallað var „Heimilisþægindi“ („Henitref-
nad“), er hafði þann tilgang, að byggja eitt eða fleiri
stór hús með mörgum smærri hentugum búgtöðum,
handa konum af mentuðu stéttunum sem yrðu að
vinna fyrir sér og sínum. Nú er verið að byggja
fyrsta húsið. í því verða 50 bústaðir með eitt her-