Kvennablaðið - 23.01.1907, Blaðsíða 3

Kvennablaðið - 23.01.1907, Blaðsíða 3
&VENNABLAÐIÐ. 3 an svo, að þau félög sem hafa einhver önn- ur verkefni semhliða, fjarlægast þetta að- alverkefni sitt meira og meira. Það Verður þvi eingöngu hjáverk, sem ætti að vera fyrsta verkefnið. Líknar- og mannúðar- störfin sitja i fyrirrúminu. Því hefir oss komíð til hugar að mynda hér kvenfélag í bænum, sem ekkert annað verkefni hefði, en að útvega konum póli- tísk réttindi: pólitiskan kosningarrétt og kjörgengi. Til þess vonum vér eftir lið- veizlu, sem flestra annara kvenna. En með því að margar konur hafa enn ekki fengið ljósa þekkingu á, hvers vegna þessi réttindi væru nauðsynleg, þá yrði þetta félag að takast á hendur, að vekja áhuga kvenna á þessum málum, skýra fyrir þeim þýðingu og nauðsyn þeirra og leitast við að gera þær áhugameiri og þroskaðri til að nota þau réttindi, sem vér höfum þegar fengið. í stuttumáli: Félag- ið jrrði hæði að sýna konum nauðsjm þess að afla sér nýrra réttinda, og að nota sér þau og geyma þeirra vandlega. þjóðfélagið þarfnast hvervetna hinnar nákvæmu, ástríku móðurumhyggju kvenn- anna. Hvar sem litið er á, ættu þær að vera með. Bæði sein kjósendur og löggjafar, allstaðar þar sem ræða skal um unga og gamla, fátæka, bágstadda og sjúka, allstað- ar þar sem menning og siðgæði þurfa tals- menn — þar eru konurnar sjálfsagðar. — Karlmennirnir eru líklega enn þá víðsýnni, þegar til stórmálanna kemur, þeir leggja ef til vill, rýmri grundvöll undir stjórnar- far landanna. En þeim yfirsést oftlega í smærri atriðunum og þar njóta konurnar sin betur, með æfðari hagsýni, meiri nær- gætni og næmari tilfinningum. Alt félagslíf og öll þjóðfélagsskipun mundi græða á því, að karlar og konur stæðu jafnfætis og ynnu saman sem jafningjar og félagar. Að þessu takmarki ættum vér að keppa með öllum þeim kröftum, sem vér höfum yfir að ráða. Ef vér leggjum áhuga og kapp við málið og vinnum allar saman, þá mun þessu marki verða náð á skömmum tíma. Skýrsla um sölu á „Bmr“ I lorva dsensfé agsins. 1905 1906 Vetlingar 632 pör 648 pör Sokkar 596 — 507 — Hyrnur og sjöl ... 163 st. 110 st. Band, fyrir kr. 393,62 kr. 355,04 Vaðmál, fyrir.í. ... — 309,60 — 245,93 Nærfatnaður 87 st. 42 st. Kvennhúfur 384 st. 429 - Ábreiður .... 23 st. 25 - Ljósdúkar 109 - 113 - Kommóðudúkar ... Ýmislegar hvítar 61 - 70 - hannyrðir 81 - 102 - — mislitar liannyrðir 90 - 78 - Serviettur 40 - 54 - Heklingar 80 - 87 - Silfurbelti 35 - 28 - — beltispör 45 - 22 - millubönd ... 5 - 3 - — brjóstnálar ... — millur og 142 - 137 - hnappar 153 - 114 - — munir af ýmsu tagi 78 - 93 - Útskornir spænir Isl. skór, mest sel- 167 - — 115 - skinnskór 557 - 352 Eins og að nokkru leyti má sjá á þessari töflu, hefir ekki selst eins mikið á »Bazarnum«, síðastliðið ár eins og 1905, og eru til þess ýmsar orsakir, sú helzt, að færri útlendir ferðamenn komu til bæjar^ ins 1906 heldur en 1905, en þeir kaupa tiltölulega mest á Bazarnum, innlenda sal- an eykst raunar árlega, en fer sér fremur hægt. — Mikið af öðrum munum en þeim, sem taldir eru í skýrslunni, hafa selst, svo sem svipur, tóbaksbaukar, alls konar út- skornir munir, gamlir og nýir, og margt af ýmsum tegundum, sem yrði of langt að telja upp. Nú er von á mesta fjölda af útlend-

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.