Kvennablaðið - 07.10.1908, Page 1
Kvennablaðiðkost*
ar 1 kr. 60 au. inn-
anlands, erlendis 2
kr.ðO [cent vestan-
liafs) '/s vorðsins
borgÍ8t fyrfram, en
J/i fyrir 15. jrtli.
tritiuaBlabtb*
UppsÖgn 8krifleg
bundin við ára-
mót, ógild nema
komin aé til út-
get. fyrir 1. okt.
og kaupandi hafl
borgað að fullu.
14. ár.
Reykjavík, 7. okt. 1908.
M 10.
«9
Beztar og ódýrastar saumavélar
fást í
| vejnaðarvöruverzlun th. chorsteinssens
Ingólfhvoli Reykjavík.
Verð: 26, 33, 36, 39, 43, 45, 60, 65 til kr. 95 pr. st.
® Allar með 2ja ára ábyrg'ð.
(^5^'5^'ÍS
Skifting vinnunnar á heimilunum.
Fátt er það sem mönnum verður tiðrædd-
ara um af búnaðarmálum, en vinnufólkseklan.
Ilennar vegna segja menn að allur sveitabú-
skapur sé að verða því nær ómögulegur hversu
gott árferði og hversu góðar aðrar ástæður sem
eru fyrir hendi. Og það eru ekki einungis smá-
bændurnir á kotjörðunum sem liða við þetta,
heldur einkum þeir sem búa á stóru hlunn-
indahöfuðbólunum, sem útheimta mikinn vinnu-
kraft ef gæði þeirra eiga að geta komið að gagni.
Menn kvarta um að fólkið sé orðið svo kaup-
dýrt að búskapurinn risi ekki undir því, að það
fáist víða ekki, hvað sem sé í boði, og að margt
af því, sem gefi sig i vistir, sé einatt svo vinnu-
iítið og ónýtt að það komi að litlu liði.
Einkum lieyrast kvartanir um vinnukonu-
lcysið. Bændur eru hættir viða að færa frá,
vegna þess að þá vantar mjaltakonur. Suin-
staðar er sagt að stúlkurnar aftaki með öllu að
gera slík verk. Og þótt svo vel sé, að nægileg
kvennavinna fáist á sumrin, þá sé naumast hægt
að komast af á vetrum með matreiðslu, hirð-
ingu heimilanna og þjónustubrögð, þvi þá flytji
stúlkurnar með faríuglunnm suður til Reykja-
víkur eða annara kaupstaða.
Heimilisiðnaðurinn er alveg að hverfa úr
sögunni, sem stafar af sömu ástæðum. Stúlk-
urnar sem áður spunnu, prjónuðu og ófu eru
úr sögunni. Og karlmennirnir, sem áður sátu
alla kvöldvökuna við kembingu eða prjón, liggja
fyiir löngu i gröfum sínum, og sæti þeirra eru
auð. Enginn nútíðar vinnumaður fæst við slíka
hluti.
Og drengirnir, sem eru að vaxa upp eru
ekki vinnusamari eða þægari, sem ekki er held-
ur að búast við. Eftirdæmi þeirra eldri hefir
áhrif á unga fólkið. Það nennir ekki að sitja
við vtnnu þegar fullorðna fólkið sefur eða slæpist,
Eiginlega eru pað fremur karlmennirnir en
kvenfólkið sem hér er um að ræða. Því all-
staðar mun nú fullásett að stúlkur geti aflokið
öllum nauösynjaverkum á heimilunum, þótt
þær séu að allan daginn. Fn karlmennirnir
þurfa vanalegast að hvíla sig alt kvöldið, þegar
þeir koma lieim frá útistörfum sínum.
Með hliðsjón til þessa fyrirkomulags, segja
svo karlmennirnir að það geti aldrei komið til
mála að konur megi skifta sér af opinberum
tnálum. Við það vanræki þær lieimilin, sem