Kvennablaðið - 30.04.1910, Blaðsíða 1

Kvennablaðið - 30.04.1910, Blaðsíða 1
K veiinablaðiðkost- ar 1 kr. 60 au. inn- anland8, erlendis 2 kr. [60 cent vestan- hafs) '/* v^rðsins borRÍst fyrfram, en */* fyrir 15. júli. irntitiaBíabíb* Uppsögn skrifleg bundin við ára- mót, ógild nema komin sé til út- get. fyrir 1. okt og kaupandi bafl borgað að fullu. 16. ár. Reykjavík, 30. apríl 1910. M 4. i I Reykjavíkur stærsta úrval af saumavélum íinnst hjá Th. Thorsteinsson Ingólíshvoli. Allar moð 2ja ára ábyrgð. Arerð: 26, 33, 36, 39, 43, 45, 60, 65 til kr. 95 pr. Stk. Prjónavélar beint frá verksmiðjunni i mjög stóru úrvali. Verzlunin flytur ætið mjög vandaða vefnaðarvöru. Við höfum ávalt birgðir af okkar alþekta fiðri. Verð: 65, 75, 1,00 pr. pd. Sendist um alt land. Iðnaöuriim 09 konurnar. Margir halda því fram, að óþarft sé fyrir konur að vera að keppa um ýmsar stöður og atvinnugreinar við karlmennina, og svo að segja taka þar bitann frá þeirra munni. Þær eigi að láta sér nægja heim- ilisstörfin, sem sé þeirra rétta verksvið. Þangað seilist karlmennirnir ekki. En þetta er ekki rétt. Konurnar taka hvergi bitana frá karlmönnunum hér á landi, af því uppeldi þeirra er þannig hátt- að að þær geta hvergi kept við þá, heldur taka karlmennirnir bitann frá konunum, og það einmitt einn af þeim feitustu. Þeir eru búnir að taka til sin allan karlmanna- fatasaum. Og þeir hafa kunnað að gera sér mat wr þeim bitanum. Meðan konurnar höfðu þá atvinnu var húu miklu ver borguð, iem [ kom af því hvorutveggja að þá var allur heimilisiðnaður í lágu verði. og að kon- urnar höfðu ekki næga kunnáttu í þeirri grein til þess að setja mönnum stólinn fyrir dyrnar. Þetta segja svo mótstöðumenn kvenna | að sé augljós vottur þess hversu ófærar konurnar séu til að jafnast á við karla í nokkurri grein. Hvorki í andlegum né verklegum störfum, hvorki úti né inni standi þær körlum á sporði. En þetta er ekki rétt, nemaaðnokkru leyti. Hingað til hafa konurnar ekki get- að kept við karla vegna þess að þeir liafa verið betur búnir undir lífið, þeir hafa frá blautu barnsbeini verið aldir upp til að { taka öll völd og atvinnu að sér. Peir hafa j haft peningana, þeir liafa búið til lögin J og þar svikalaust skarað eld að sinni köku. 1 Þeir hafa hvervetna búið svo um að kon- urnar ættn alt að sækja í hendur þeirra. Og þannig hafa þeir með rétti þess sterk-

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.