Kvennablaðið - 10.06.1910, Blaðsíða 1

Kvennablaðið - 10.06.1910, Blaðsíða 1
Kvennablaðiðko8t- ar 1 kr. 60 au. inn- anlands, erlendis 2 kr. [60cent vestan- hafs) */* v®rðains borgist fyrfram, en /» fyrir 16. júli. Uppsögn 8krifleg bundin við ára- mót, ógild nema komin sé til út- get. fyrir 1. okt og kaupandi hafl borgað að fullu. 16. ár. Reykjavík. 10. júní 1910. M 5. Asla Krisiín Árnadottir heitir hún, unga islenzka stúlkan, sem er orðin fyrsti iðnaðarmeistarinn hér á landi. Karlmennirnir liafa þar í fyrsta sinni orðið á eftir konunum. En þeir mega líka við því, því í öllum iðnaðargreinum og námsgrein- um hafa þeir orðið fyrri til. Hún er aðeins 26 ára, og búin að vera við málaranámið í 7 ár. O- kunn öllum fór hún fyrst til Dan- merkur eftir, að hafa verið við mál- aranám í 3 ár í Rejrkjavík. í Dan- mörku dvaldi hún um slceið og tók þar sveinspróf og kom hingað heim eftir tveggja ára tíma. Vann fyrir fari sínu á einu af Thore-skipunum með því að mála eitthvað af því að innan á leiðinni hingað heim. Um haustið fór hún aftur utan og fór síðan til Hamborgar til að fullkomna sig í iðn sinni. Gekk hún þar á málaraskóla og tók meistarapróf í marsmánuði í vetur, eftir tvegg'ja ára tíma. Nú ætlar hún að setjast að i Kaupmannahöfn í íélagi við aðra stúlku, sem að vísu ekki hefir leyst meistaraprófið af hendi, heldur tekið aðeins sveinspróf. Asta Árnadóttir er dóttir Árna Pálssonar frá Narfakoti, sem marga gamla Fjall- konu lesendur mun reka minni til að oft ritaði í Fjallk. mjög skj'rar og vet ritaðar ritgerðir. Á Ásta því að telja til skynsamra og dugandi foraldra, enda hefir móðir hennar barist áfram með börn sín síðan föður þeirra misti við. Þau eru alls 9 á lífi. Prófmyndir frk. Ástu og margt fleira hefirverið hér til sj7nis, og er að dómi þeirra; sem bezt hafa hér vit á slíku, mjög vel gerðar og bera langt af samskonar málverkum hér. Ymsar konur hjer í bænum tóku sig saman og héldu henni kvöldboð þ. 5. þ. m. í Iðnó, ásamt móður hennar. Voru þar saman komnar inilli 50—60 konur. Veislan

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.