Kvennablaðið - 08.10.1910, Blaðsíða 1
Kvonnablaðiðkost'
ar 1 kr. 60 au. inn-
anlands, erlendis 2
kr. [60 ceut vestan-
hafa) '/» ▼pfðBÍns
borgiot fyrfram, en
*/» fyrir 16. jáli.
irÉtma&Iabib.
Uppeögn skriflog
buudin við ára-
mót, ógild nema
komin sé tíl út-
get. fyrir 1. okt
og kaupandi hafl
borgað að fullu.
16. ár.
Reykjavík, 8. okt. 1910.
M 10.
Kvennasala
í Ameríku.
Nýjustu uppgötvanir.
Meðan stóð á bæjarstjórnarkosningunni i
New York síðastl. haust, vakti grein, seni stóð í
nóvemberheftinu af Mac Cíares Magazine
mikla eftirtekt. Hún var undirrituð af Georg
Kibbe Turner, og var um „hvíta man-
salið“. Greinin vakti mikla eftirtekt og átti
mikinn þátt í ósigri Tammanítanna við kosn-
ingarnar. Þar var sagt skýrum orðum að
New York væti miðstöð alls hins hvíta man-
sals.
Bæjarbúarnir í New York urðu óðir og
uppvægir, að slíkar sakargiftir væru bornar á
borg þeina í opinberu riti, og nefnd var kos-
in til að rannsaka þetta mál, með John D.,
son steinolíukongsins Rockefelles í broddi
fylkingar.
Eftir að nefndin hafði lokið rannsóknum
sínum, gat hún því miður ekki annað en
staðfest þessa sögusögn tímaritsins. En hún
komst að íleiru: hún komst að þvi, að þar
fór fram svívirðilegasta barnasala, sem minti
mikið á ákærur Steads forðum í „Pall Mall
Gazette".
Nefndin ákvað nú að rannsaka þetta sví-
virðilega mál til fulls, og fól því tveimur
kvenstúdentum að gera allar þar að lútandi
rannsóknir svo nákvæmlega, sem unt væri.
Þetta hepnaðist. Ungu stúlkunum tókst bráð-
lega að sanna að miili New Yoik og Vestur-
ríkjanna, og milli Alaska og New York væri
geysimikið og svívirðilegt verzlunarsamband
með konur og stúlkubörn.
Til að kynna sér þetta skifta þær verkum.
Önnur fór til borgarinnar Scattle í Washing-
ton-ríkinu, en hin til Janeau í Alaska, og
þar komu þær sór í kunningsskap við for-
stöðukonur „jómfrúhúsanna" ogýmsra annara
grunsamra húsa.
Árangurinn varð enn þá verri en búist var
við. Þessar ungu leyniiögreglukonur upp-
götvuðu ekki einungis Löfnin á „stórkaup-
mönnunum“ i New York, heldur sannfærð-
ust þær einnig um að þar væri rekin stór
verzlun með litlar telpur.
Ungu stúlkurnar hittust nú aftur í Scattle,
fóru síðan heim til New York og fengu rann-
sóknarnefndinni allar skýrslur sínar og skil-
ríki í hendur, og þá fyrst og fremst þær
skriflegu „pantanir" sem þær höfðu fengið
til að útvega svo mörg stúlkubörn, e«m unt
væri á nokkurn hátt.
Vegna þessara ávísana og meðmælabrjefa,
sem ungu stúlkurnar höfðu útvegað sér til
ýmsra, sem við þetta voru riðnir, sem þær
fengu nefndinni í hendur, tókst agentum hins
opinbera málaflutningsmanns, að fá keypt 4
stúlkubörn, sem ættu eftir pöntun að send-
ast til Alaska. Seljandinn hafði líka til litla
ellefu ára telpu, en hélt þó að hún væri ekki
fær um ferðina, af því hún væri veik.
Með þessar sannanir í höndunum gat nú
lögreglan náð tökum á ýmsum, sem höfðu
um 10 stúikubörn til sölu, íeiðubúin að send-
ast eftir fyrirskipunum kaupendanna hvert
sem óskað væri í Ameríku.
Sökudólgarnir voru teknir fastir. Við próf-
in sannaðist það, að í New York væru ýmsir
slíkir kvennasalar. Sannanirnar gegn þeim
voru svo miklar að þeir reyndu ekki að
þræta, en sitja nú inni og bíða dóms síns.
Til sönnunar því í hvíiikum mæli þessi
sala var rekin í New York eru þær upp-
götvanir, sem nýlega hafa veiið gerðar í
„kirkjubænum" Brooklyn, sem er undirboig
frá New York. Þar fannst heill hópur af
stúlkubörnum á aldrinum milli 9—14 ára,